Vísir - 10.07.1965, Page 8

Vísir - 10.07.1965, Page 8
8 V í S I R . Laugardagur 10. júlí 1965. <3 VÍSIR Otgefandi: Blaðaútgáfan VISIR Ritstjóri: Gunnar G. Scbram Aðstoðarntstjóri: Axei Thorsteinson Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson Þorsteinn ö. Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Askriftargjald er 80 kr. 6 mðnuðl 1 lausasölu 7 kr. eint. — Simi 11660 (5 Ilnur) Prentsmiðja Vísis — Edda h.f Dýrkeypf samkomulag þá hefur náðst samkomulag í kaupgjaids- og kjara- málum við Dagsbrún, Hlíf og fleiri verklýðsfélög hér sunnanlands. Það er gleðiefni að vinnufriður skuli loks vera tryggður um hríð. Efni samkomulagsins er hins vegar lítið gleðiefni. Þar er gert ráð fyrir 4% beinni kauphækkun og vinnutímastyttingu, sem nemur alls 9.1%. Hækkar tímakaupið þannig um 13.1%. Við þetta bætast alls kyns taxtatilfærslur, aldurshækkanir og ýmis fríðindi þannig að kaup- hækkunin er allmiklu meiri en 13%. Þetta mun þýða verulega aukningu verðbólgunnar í landinu með.öll- um hennar meinsemdum og fylgikvillum sem al- kunnir eru, ef ekkert er að gert. I stað þess að vinna að stöðvun verðbólgunnar hefur hér verið samið um að halda henni áfram. í öðru lagi mun samkomu lagið sliga útflutningsframleiðsluna og gera henni torkleift mjög að keppa á erlendum mörkuðum, nema til ráðstafana sé gripið sem rétta hlut hennar. Kaupgjaldssamkomulagið á Norður og Austurlandi miðaðist við um 11% kauphækkun Betur hefði farið að því fordæmi hefði verið fylgt við sunnan- samningana. JJér við bætist að samkomulagið hefur þau áhrif á vísitöluna að hún mun vegna verðtryggingarinnar enn hækka kaupið um ca. 8% á næstu mánuðum í viðbót við það sem um hefur verið samið. Það er ekki fjandskapur við hið vinnandi fólk þótt bent sé á að slíkar upphlaupshækkanir þolir ekkert efna- hagskerfi án þess að riða til falls. Spurningin er því: hve varanleg verður þessi kjarabót á næstu mánuð- um? Notkun félagsheimilanna gkúli Þorsteinsson framkvæmdastjóri Ungmennafé- lags íslands hefur nýlega gert félagsheimilin að um- ræðuefni og sagt, að ugglaust mætti nýta betur þessi milljónafyrirtæki í sveitum en nú er gert. Á sumrin mætti nota þau fyrir æskulýðsbúðir og ef til vill einnig fyrir gisti- og greiðasöluhús á þeim árstíma. Þetta séu nokkuð dýrar byggingar til að standa auð- ar og þannig notkun sé að skaðlausu fyrir þá aðra starfsemi sem félagsheimilunum er ætluð. Hér eru óvenju skynsamlegar tillögur á ferðinni. Sífellt er verið að tala um nauðsyn þess að bæta úr hótel- skortinum úti á landi. Og sumarbúðir fyrir kaup- staðabörn skortir mjög. Er þetta ekki einmitt lausnin? Herferð gegn hungri í heim- inum „Hjálp til sjálfshjálpar“ eru einkunnarorð 80 félagasamtaka víða um heim, sem hafa á stefnuskrá sinni aðeins eitt mál — HERFERÐ GEGN HUNGRI í HEIMINUM. Á íslandi tók æskan málið f sínar hendur, ÆSÍ og aðild- arfélög þess stóðu nýverið að stofnun félagasamtaka, sem munu þegar þau eru komin á fastan grundvöll standa fyrir kynningarstarfsemi hér á landi, fjársöfnun og öðru, sem gagnar í baráttunni gegn hungrinu í heiminum. Fyrsti liðurinn í kynningar- starfseminni er koma Danans ; : Kjeld B. Juul. hingað: látiááOdSfiij Júul er gúðfræðihguSiiáð MsngfH! ' og yfirmaður þeirrar- rdeildaí ' FAO, Matvæla- og landbúnaðar stofnunar Sameinuðu þjóðanna, í Evrópu, sem hefur umrætt mál á dagskrá sinni. Hefur hann þegar haft tal af ýmsum ráðamönnum hér á landi og hefur ríkisstjórnin og stjórnmálamenn allra flokka heitið liðsinni sínu. Á fundi með blaðamönnum skýrði Juul frá því, að framtak æskunnar á íslandi væri ein- stætt og mjög hvetjandi, „því að við beinum orðum okkar sérstaklega að ungu fólki í heiminum". Juul skýrði frá þeirri ógn- vekjandi staðreynd að helming- ur jarðarbúa þjáist af hungri. „Þetta er fólki ekki almennt kunnugt um því er það einn liðurinn í „herferðinni" að gera þessa staðreynd ljósa hverju skólabarni. Helmingur meðbræðra þeirra þjást vegna hungurs, 10—15% svelta, en 35—40% eru vannærð, vantar bætiefni í fæðu sína“. „Ástandið er ljótt, mann- kynið missir tökin. á þessu vandamáli, ef við gerum ekki eitthvað og það innan tíðar. Þetta er tímaspursmál, eftir 30 ár hefur tala jarðarbúa tvöfald- ast“. Juul er bjartsýnn þrátt fyrir þessar ömurlegu stað- reyndir. En hann spyr: „Hvern- ig getur heimurinn verið stöð- ugur, þegar helmingur mann- kyns þjáist?“ Herferðin gegn hungri í heiminum hófst árið 1960 á vegum Sameinuðu þjóðanna og var áætluð fimm ára stöðug barátta en nú þykir ekki van- þörf á að bæta öðrum fimm árum við. Margt hefur þegar verið gert, kynningarstarfsemi, gefnir út bæklingar og pésar, sjálfboðaliðar sendir til þess að kenna ýmsum þjóðum fram- leiðslustörf, aðrir sendir til þess að gera þeim vandamálin ljós og hjálpa þeim í baráttunni við hungrið. Þegar hefur 250 milljónum dollara verið varið í herferðina gegn hungrinu. „Við verðum að fá alla til þess að taka þátt í baráttunni. FAO vonar að íslendingar beini sér gegn vandamálum í sam- bandi við fiskveiðar, að hjálp komi frá íslandi. Það er ekki svo langt síðan að þið I’slend- ingar áttu við sömu vandamál að stríða“. Á fundinum var rætt um fé- lagssamtökin hér og á hvern hátt þau munu verða rekin. Skrifstofu hefur þegar verið komið upp að Fríkirkjuvegi 11, og er Jón Ásgeirsson forstöðu- maður hennar. Á síðustu fjár- lögum voru veittar 75 þúsund krónur til hennar. Sigurður Guðmundsson formaður nefnd- arinnar hér gegn hungri f heim- inum sagði, að enn hefði ekki verið ákveðið hvernig Islend- ingar myndu beita sér í barátt- unni gegn hungrinu, hvort kæmi til mála að velja eitt sér- stakt land eins og t.d. Marokkó eða dreifa hjálpinni, lagði hann sérstaklega áherzlu á að ekki væri verið að gefa ölmusu heldur værj þétta hjálp til sjálfsbjargar. Á fundi með blaðamönnum. Frá vinstri Elías Snæland Jónsson, Jón Ásgeirsson, Kjeld B. Juul, Ragnar Kjartansson og Sigurður Guðmundsson.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.