Vísir


Vísir - 10.07.1965, Qupperneq 11

Vísir - 10.07.1965, Qupperneq 11
Óstýriláta stúlkan í HVÍTA HÚSINU Hún er nokkurs konar drottn ing hinna 24 m'illjón táninga í Bandaríkjunum, sem líta á hana sem tákn baráttu þeirra gegn hinum fullorðnu. Hún er nokkurs konar drottn ing f augum eins valdamesta manns heimsins. Sá er fað'ir hennar. Hún á það til að bregða sér í hvers kyns djarfa og allt að þvf ósiðsamlega dansa, t.d. „Watusi.“ Hún fékk vilja sínum fram- gegnt, tíu ára gömul, að nafn hennar yrði stafað „Luc'i“, f stað „Lucy“. Hún varpaði sér nýlega til sunds fullkleedd í Atlantic City. Lögreglan lætur undan Þegar Bitlarnir komu he'im til Bretlands eftir 15 daga hljóm leikaför til Frakklands og Spán ar fengu þeir hjartanlegar mót- tökur. Comet einkaþotan þeirra kom 40 mínútum of se'int, vegna þess hve hún var yfirhlaðin minjagripum úr förinni. Þús- imdir aðdáenda voru á flug- vellinum, og af þéim höfðu ER ÉG... Er ég í verkfalli? spurði stúlku kindin, eða er ég það ekk'i.... Kunningjastúlka mín fór nefni lega í verkfall í morgun, uppá von og óvon — var sem sagt ekki alveg viss — en ef hún hefur ruglazt í þessu, sem ég ekki veit, þann'ig að hún sé f rauninni ekki í verkfalli og hafi bara sofið yfir sig, þá held ég áreiðanlega að ég eigi að vera í verkfalli 1 dag — en hún ekki fyrr en á morgun .... Þetta er nefnilega allt farið að snarsnú ast í hausnum á mann'i og lái það hver sem vill.... Ég get sagt ykkur um bróðir minn til daemis, hann vinnur við benzín afgreiðslu og svole'iðis, skilurðu óg honum skildist að þeim hefði öllum verið ?tatt og stöðugt verið lofað verkfalli í tvo daga — en svo kom bara á daginn að það voru bara þe'ir sem vinna á sumum benzín- stöðvum sem fengú verkfall og hinir fá það ekki fyrr en ein- hvemtíma seinna, og þá verður kannski komin rigning ,.. Mér finnst að það þurfi að skipu- leggja þessi verkfallsfrí manns mikið betur, svo að maður Viti það hvort maður sé í verkfalli eða ekki og hverjir séu i verk- falli, annars er maður kannski að rífa s’ig upp á morgnana til að ná i næsta strætisvagn á eft ir þeim, sem maður þarf að ná í til að koma ekki of seinna en það, að maður komist úr káp- unni áður en yfirmaðurinn kem ur — vitanlega missti maður svo af þeim strætisvagni og verður að bíða eftir þe'im næsta og verður svo rétt á eftir yfirmann inum inn úr dyrunum, en það er önnur saga .... og svo þegar kemur á vinnustað, er þar kom inn vörður og t'ilkynnir manni að það sé verkfall í dag. Eðd þá að maður heldur að sé verkfall og sefur framúr, og svo vaknar maður við símann og það er yfirmaðurinn og spyr ertu eitt hvað veik? og vitanlega verður aður að segja já, það sé þess’i bölvaði vírus og svo missir maður tvo þrjá daga — og það sem sárgrætilegast er, kannski tvo verkfajlsdaga — Nei, það verður að skipuleggja þetta bet ur, svo að maður v'iti hvenær maður er í verkfalli og hvenær ekki. hundruð beðið í flugstöðinni um nóttina. Þó ætlaði allt um koll að keyra, er John kom dansandi út úr flugvélinni f búningi spánsks „flamenco-dans ara“ og tók nokkur flamenco" spor fyrir áhorfendur. Lögregl- an reyndi að halda Uíiglingun- um í skefjum, en eins og sjá má á mynd'inni hefur einn kven lögregluþjónninn gefizt upp og tekið fyrir eyrun. Hún sagði síð ar, að hávaðinn í unglingunum hafi verið margfalt meiri en í þotunni. Hún bregður stundum á höf- uð sér ljósri hárkollu, til að geta skemmt sér e'ins og annað fólk, án þess að vekja eftirtekt. Hún á það til að fá stjórn- málamennina í Washington og foreldra sína til að skjálfa vegna ummæla hennar í ræðum á mannamótum. Hún heitir Luc'i B. Johnson. Faðir hennar er forseti Banda- ríkjanna og nýlega átti hún 18 ára afmæli. Eins og fram hefur kom'ið i fréttum síðustu daga notaði hún tækifærið, og lýsti þvf yfir á afmælisdag'inn, að hún hyggðist snúast til kaþólskrar trúar. — Ég ákvað fyrir fimm árum að gerast kaþólsk, en ég hef þurft að nota tímann til að venja fjölskylduna við þá hugs un. Ýmsir blaðamenn v'ilja halda þvf fram, að hún spilli áliti manna á Bandaríkjunum og for setanum sé nauðsyn að ve'ita henni strangt og gamaldags upp eldi. t En forsetinn segir: — Ég elska Luci. Hún er fæddur stjórnand'i og hefur f vissum skilningi setið viðstjóm völinn allt frá fæðingu. Ein- faldasta leiðin til að umgangast hana er að sýna henni ástúð ... og undirgefn'i. Luci segir: — Ég veit að þau elska mig og ég elska þau ,en slík venju leg tengsl eru ekki allt. Ég er bláeygð f brúneýgðri fjöl- skyldu og er að ýmsu leyti ó- lík þeim. Luci á það til að segja ýms- ar furðulegar og djarfar setn- 'ingar. Til dæmis svaraði hún Luci dansar „vvatusi" við leik- arann fræga Steve McQueen. þvf til við fegurðarsamkeppni er hún var að því spurð, hvort forsetinn yrði v'iðstaddur krýn- inguna. — Ég veit það ekki. Ég veit aldrei upp á hverju hann tekur, og það veit hann ekk'i einu sinni sjálfur. jivert sem þer farið/hvenær sem þér farið hvemigsem þerferðist ■■íbp ferðaslysatrygging Kári skrifar: það er gott til þess að vita, að skilningur manna á gildi fslands sem ferðamannalands er mjög að aukast og margs kyns stofnanir svo sem ferða- skrifstofur, flugfélög og hótel gera margt til þess að hagnýta þessa nýju gjaldeyris- og tekju- lind. Merkt landkynningar- starf. í hverjum mánuði koma í bókabúðir nýjar bækur og bækl ingar, sem gefin em út f kynn- ingarmarkmiði og frágangi þeirra bóka hefur farið afar mikið fram upp á síðkastið. Til að mynda em Surtseyjarbæk- urnar íslenzku engu síðri en samgildings bækur erlendar og í undirbúningi mun véra ný bók, „Directory of Iceland," sem er að mestu framtak ungra manna með aðstoð ýmissa stofn ana, er hag hafa af ferða- mannastraumi og erlendum við skiptum. Bók þessi er um það bií 700 blaðsíður að stærð í mjög stóru broti. Slíkt framtak til kynningar á landi og þjóð er f fyllsta máta lofsvert. Gistiherbergi í skólum Þó er einu atr’iði nokkuð á- bótavant, en það em hótelin, þó einkum úti á landi. Hótelskort- ur er hér á landi yfir sumartím ann og veitt’i sízt af að byggja fleiri gistiherbergi, en eiftnig þarf að sjá fyrir því, að húsrým ið sé nýtt sem mestan hluta árs ins. Ennfremur er verð á hótel gisingu víða fullhátt miðað við gæði hótelsins. Það þyrfti því sem fyrst að hefjast handa um að gera áætlun um endurnýjun gistihúsa, og hafa þá jafnframt hliðsjóh af húsnæðisþörf heima vistarskólanna. Það hefur kom ið í ljós, að séu heimavistarhús skóla nýtt sem gist'ihús yfir sumartímann, má í fyrsta lagi bjóða þar tiltölulega ódýra gist ingu, í öðru lagi bjóða nemend- um fyrsta flokks húsnæði yfir veturinn og f þriðja lagi má með því afla tékna til ýmissa framkvæmda við viðkomandi skóla. Þróuninni fylgt. Hið nýstofnaða Ferðamála- ráð undir Stjórn Lúðvígs Hjálm týssonar mún um þessar mund ir vlnna að endurskipulaghihgu ferðamála hér á landi og ber það ásamt öðru gleðilegan vott um, að við hyggjumst ekki standa í stað, en fylgja þróun- inni svo mjög sem okkur hæfir.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.