Vísir - 26.07.1965, Blaðsíða 5

Vísir - 26.07.1965, Blaðsíða 5
VÍSIR . Mánudagur 26. fúlí 1965. 5 utlönd í niorgun utlönd í “morfáin útlönd í .morgún utlönd í morgun Á morgun þriðjudag fer fram atkvæðagreiðsla í þingflokki fhaldsflo kksins brezka um eftirmann Sir Álecs Douglas-Home sem formanns flokksins. Hér er mynd af honum f miðju, með tvo aðalkeppinautana sér á hvora hönd. Reginald Maudling til vinstri, til hægri Heath en það verður líka keppt um þriðja mann eftir seinustu fréttum að dæma: Enoch Powell. Brezki íhaUsHokkurinn kýs um I ajnJk. þrjú Enoch Powell hefur gefið kost á sér í morgun er það aðalfrétt á forsíðu Lundúnablaðanna, að auk þeirra Edwards Heath og Reginalds Maudling hafi kom- ið fram uppástunga um Enoch Powell sem flokksleiðtogaefni í stað Sir Alec Douglas-Home fyrrverandi forsætisráðherra. hefur hann fallizt á að verða í kjöri, en frestur til ákvörðun- ar um, að menn gefi kost á sér, rennur út í dag, en fyrsta atkvæðagreiðsla í þingflokkn- um fer fram á morgun. Vekur það feikna athygli, að Enoch Powell gaf kost á sér, og ekki verður kosið að- eins á milli Heath’s og Maud- ling’s 1 fyrstu atkvæðagreiðslu. Nú mun fyrsta atkvæða- .greiðsla, þótt ekki fáist úrslit, veita hinar mikilvægustu vís- bendingar um fylgi þessara þriggja manna hvers um sig eins og sakir standa. Blöðin ræða stefnu þessara þriggja manna. Telja þá Maud- ling og Heath fylgja hófsam- legri íhaldsstefnu og auknu frjálslyndi; en að farið sé með gát, en Powell fylgjandi alger- um kapitalisma. Enoch Powell var heilbrigðis- málaráðherra McMillan og baðst lausnar á tíma Profumo- hneykslisins. Þingmenn dvöldust margir í kjördæmum sfnum yfir helgina til þess að kynna sér skoðanir kjósenda sinna um .yal flokks- formanns. íhaldsflokkurinn mun gera harða hríð að stjórn Wilsons nú í vikunni undir umræðum í neðri málstofunni. M.a. mun hún verða gagnrýnd harðlega fyrir ófullnægjandi ráðstafanir til þess að halda dýrtíðinni í skefjum og fyrir að svíkja ótal kosningaloforð s.l. haust. ^ Seinasta myndin frá MAR- INER IV barst á laugardag og hafa þá alls borist frá honum 21 mynd. Geimfarið hefir feng- ið „fyrirskipun" um að senda á ný allar myndimar. ► 1 frétt frá Bonn segir, að 8 fyrrverandi fangaverðir í Kulmhof-fangabúðunum i Pól- landi hafi verið danndir í frá 13y2 mánaðar upp f 13 ára betrunarhúsvinnu fyrir þátt- töku í fjöldamorðum. ► Fjórir menn til viðbótar hafa verið ákærðir fyrir að hafa afskipti af flóttatilraun lestrarránsmannsins Biggs. Eiga þeir að svara til saka fyrir rétti í London. >► Bandariskur togari SNOOPY með 12 manna áhbfn sprakk aðfaranótt laugardags f loft upp á Atlantshafi, — mun hafa fengið tundurdufl í vörpuna. Fjórir menn komust af. íf> Rannsókn hefir leitt í ljós, að sprengja mun hafa orsakað flugslys, sem varð f British Columbia fyrir nokkru, með þeim afleiðingum, að 52 menn létu lífið. GENFARRAÐSTEFNAN UM AF- Á MÖRGUN VOPNUN SFTT Bandaríkjamenn og Rússa greinir á um leiðir Sir Alec var broshýr, er hann ræddi á- kvörðun sína við fréttamenn á dögunum. Bandaríkin og Sovétríkin eru algerlega á öndverðum meiði um hvaða leið skuli fara til þess að hindra að fleiri þjóðir fái yfirráð kjarnorkuvopna f sínar hendur en nú hafa þau. EINBÝLISHÚS Höfum til sölu einbýlishús í smíðum í SV hluta borgarinnar. Eignarlóð. Glæsileg eign Teikningar á skrifstofunni. MÁLFLUTNINGS & FASTEIGNASTOFA Austurstræti 14 . Símar 21750 og 22870. Kvöldsímar 33267 og 35455. j Tzraapkin aðalfulltrúi Sovétríkj- | anna, sem kom til Genfar í gær | til þess að sitja Genfarráðstefn- | una um afvopnun, en hún verður sett þar á morgun, sagði við fréttamenn, að Sovétstjórnin skrif- aði ekki undir neina samninga um kjarnorkuvopn og afvopnun, nema vestrænu þjóðimar hættu við á- formin um kjamorkuflota Norður- Atlantshafsbandalags með vestur- þýzkri aðstoð. Averill Harriman sérlegur sendi- herra Johnsons forseta er nú í Vestur-Þýzkalandi. Hann sagði við fréttamenn i gær í Munchen, að Bandaríkjastjórn vildi ekki falla frá hugmynd sinni um kjarnorku- flota Norður-Atiai^shafsbandalags ins til þess að ná sámkomulagi við Rússa um leiðir til þess að hindra, að fleiri þjóðir en nú fái yfirráð yfir kjarnorkuvopnum. Harriman. ► Bandarísk Phantom-flugvél var skotin niður yfir Norður- Vietnam aðeins 65 km. frá Iianoi. Bandarískur talsmaður segir ekki ósennilegt, að henni hafi verið grandað með eld- flaug, sem skotið var frá jörðu, en að undanfömu hafa verið birtar fréttir um það, að verið væri að koma upp eldflauga- stöðvum sovézkum 1 grennd við Hanoi. í lok fyrri viku varð þýzk kona, Helga Herzog, 22ja ára, léttari í Lufthansa-flugvél, á leið frá Frankfurt til New York. Hún hafði verið að heim- sækja skyldfólk f Þýzkalandi. Flugþernan tók á móti og fékk nauðsynlegustu leiðbeiningar frá lækni í annarri flugvél f 250 km. fjarlægð. Þegar við kom- una til New York var konunni ekið í skyndi til sjúkrahúss. ► Kjarnorkusprengja var sprengd neðanjarðar í Nevada- auðninni f seinustu vikulok — hin 15. á þessu ári.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.