Vísir - 03.09.1965, Page 3

Vísir - 03.09.1965, Page 3
V1 S IR . Föstucíagur 3. september 1965. J^lftamýrarskólinn var aðhefja annað árið. Þetta er yngsti skólinn í Reykjavík, og er bygg ingu hans enn ekki að fullu lok- ið. Þetta er stílhreint hús, bjart að utan og innan, með þægindi, sem eru í samræmi við kröfur nútímans. Eftir hádegi I fyrradag stóð þyrping bama úr hverfinu (Safa mýri — Álftamýri — og Háa- leitisbraut) fyrir framan skól- ann. Á tröppunum stóð skóla- stjórinn Ragnar Júlíusson og yfirkennari Kristján Sigtryggs- son og buðu böm'in velkomin og leiddu þau í fyrsta sannleik ann á skólaárinu. Svo var þeim skipað í kennslustofur, talsvert frábrugðnar þeim, sem eldri kynslóðir íslendinga hafa átt við að venjast. í stað loft- þyngsla, dimmu og þrengsla, er Tíu ára bömin . Álftamýrarskólanum gengu hljóðlát upp stigann fyrsta skóladaginn. (myndirnar tók stgr.) FYRSTISKÓIADA 6URINN lffsrúm í þessum nýju kennslu- stofum, um þær leikur ferskt loft — gluggar á báða vegu — hljóðeinangrun, svo að þótt stóll eða borð dragist til, veldur það ekk'i skerandi hávaða eins og margir kannast við frá sín um skólaárum. Ef nemandi þarf að gánga örna sinna, þarf ® í —.......................................................-......................... Bömin héldu nú heim til sín. Á laugardaginn eiga þau að fá stundaskrána, en á mánudaginn hefst kennslan fyrir alvöru. hann ekki lengur að fara úr kennslustund til þess: Inn af hverri kennslustofu eru snyrt- ing og salerni, vel aðskilið frá stofunni. Þetta hlýtur að hafa áhrif á röð og reglu sem önnur ný þægindi. Nú er skólataflan ekki lengur svört eins og sorg- in og kvíðinn, heldur mjúkur grænn dúkur, sem tákn vonar- innar og gróandans. Öll viðar- klæðning er Ijós — allt er haft í sem ljósustum lit, hvert setai augum er litið. Tíu ára börn gengu f skipu- legri röð upp stigann. Það heyrð ist ekki skvaldur, en hins vegar var enga þvingun að sjá á svip ungviðisins. Pétur Orri Þórðarson ungur kennarj talaði við sinn bekk og spurði tíðinda frá sumrinu, hvað þau hefðu haft fyrir stafni, hvort þau hefðu verið f sve'it, hvort þeim fyndist ekki illt að missa af' réttunum. í annarri kennslustofu var Hulda Friðriksdóttir, kennslu- kona að vígja nemendur sína inn í starf vetrarins. Þarna voru stúlkur í meiri hluta. Þær höfðu nokkrar gætt bama í sumar eins og gengijr og gerist. Yfirleitt virtust þær hlakka til skólans. Tveir strákar sögðu, illt væri að þurfa að vera í skólanum eftir hádegi — það værj bezti Ragnar Júlíusson skólastjóri Álftamýrarskólann: ..í fyrra báru börnin úr hverfinu helmil- um sínum góðan vitnlsburð með umgengni sinni og framkomu“. tíminn til leikja og athafna. Ragnar skólastjóri sagði fréttamann'i Vísis, að hann legði áherzlu á þessi aðalatriði: háttvísi — stundvísi — og um gengni, smbr. regluna: „Nem- endum ber að hlýða kennurum og öðru starfsfólkj í öilu er skól ann varðar.“ Þegar hann var spurður, hverju það sætti, að ekki sæist krot eða rispa á einu einasta borði eða einum einasta stól eftir árið í fyrra, sagði hann: „Þeim eru settar reglurhar í upphafi — og svo er þetta kom ið undir kennurunum og sam- starfi þeirra við börnin",- Stgr. Börnln sátu prúð og hlýddu á kennarann. Kagnar Júliusson skólastjóri, og Kristján S'gtryggsson, yfirkenn: á taka á móti börnunum í Álftamýrarskóla í fyrradag.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.