Vísir - 03.09.1965, Blaðsíða 8
8
V í S IR . Föstudagur 3. september 1965
VISIR
Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR
Framkvæmdastjóri: Agnar Ólafsson
Ritstjóri: Gunnar G. Schram
' Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóran Jónag Kristjánsson
Þorsteinn Ó. Thorarensen
Anglýsingastj.: Halldór Jónsson
Sölustjóri: Herbert Guðmundsson
Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald: kr. 80,00 á mánuði innanlands
f lausasölu kr. 7,00 eintakið
Prentsmiðja Vfsis — Edda hi.
Jákvæð hagstjórn
]\úverandi ríkisstjóm hefur öðrum ríkisstjómum
fremur leitazt við að reka það sem reynzt hefur verið
jákvæð hagstjómarstefna. í upphafi starfstíma síns,
sendi viðreisnarstjórnin ítarlega áætlun í efnahags-
málum. Markmið hennar var að bæta úr hinum stór-
kostlegu gjaldeyrisvandræðum þjóðarbúsins,, koma
jafnvægi á í efnahagsmálum, létta af höftum og höml-
um á sviði atvinnu og framkvæmdalífs og gera verzl-
un landsmanna frjálsa. Hér var um að ræða stór-
felldari og víðsýnni áætlun en áður hafði verið gerð
og að framkvæmd hennar hefur verið unnið ötuilega
síðan. Þegar hafa margir áfangar hennar náðst, eins
og allri þjóðinni er kunnugt, og mjög skipazt veður
í lofti í efnahags og gjaldeyrismálum þjóðarinnar. Hér
var því unnið að viðreisn efnahags og atvinnulífsins
eftir fyrirframgerðri áætlun, en erfiðleikunum eldci
mætt með þeim handahófstiltektum, sem stefnu
sumra fyrri ríkisstjóma hafði einkennt.
þá tók ríkisstjórnin upp það merka nýmæli að láta
semja ítarlega framkvæmdaáætlun. Með því var í
fyrsta sinn gerð heildstæð áætlun yfir opinberar fjár-
festingarframkvæmdir til nokkurra ára. Þar var á-
kvéðið, eftir ítarlega athugun sérfræðinga ríkisstjóm-
arinnar, á hvaða framkvæmdir skyldi leggja megin-
áherzluna í samræmi við þarfir þjóðarbúsins og sem
örastan vöxt þjóðarframleiðslunnar. Slíkar áætlana-
gerðir hafa mjög færzt í vöxt í löndum Evrópu og
hafa hvarvetna þótt gefa góða raun. Með fram-
kvæmdaáætluninni hefur opinber fjárfesting verið
skipulögð eftir beztu getu, í stað þess að áður réðu
oft andstæð sjónarmið fjárfestingunni, og ekki var
ávallt heildarþörfin höfð í huga. Þannig hefur nú-
verandi ríkisstjórn brotið blað í hagsögu þjóðarinnar
með því að taka upp hina jákvæðustu hagstjóm. í
því effti hefur þegar góður árangur náðst og dýrmæt
reynsla fengizt sem að miklum notum mun koma við
mörkun framtíðarstefnunnar í efnahagsmálum.
Kartöflustríðið
gæði kaupmenn og kaupfélög landsins em sammála
um það að þau sölulaun, sem greidd eru fyrir dreif-
ingu íslenzkra landbúnaðarvara nægi ekki fyrir
sannanlegum dreifingarkostnaði þeirra. Þess vegna
er nauðsyn að hækka söluþóknunina vegna þess að
ekki verður vefengt að hér fara kaupfélögin og kaup-
menn með rétt mál. Kartöflustríðið svonefnda undir-
strikar þessa staðreynd. Það er ekki við því að búast
með nokkurri sanngirni að íslenzk verzlun taki að sér
dreifingu margra afurða án þess að fá fyrir það þókn-
un í samræmi við sannanlegan kostnað. Þess er því
að vænta að hér fáist breyting fram á sanngimis-
grundvelli.
Ihaldsblaöið „Dally Express“ birtir þessa skopteikningu af Wilson, nýkominn úr sumarieyffnu i
ScOlyeyjtim, meS vonablómvönd í annarri hendi og disk í hinni, með ávextina af forustunni — og
fer raunar lftíð fyrir þeim tii þess að hressa upp á „móralinn“ hjá „fninni“ (ímynd flokksins), sem
liggur skæiandi á legubekk. Undir myndinni stendun „Láttu huggast væna mín, ég er kominn til
þess aS tala 1 þlg kjark“.
Einstaklingsframtakið
fái að njóta sín
Brezk blöð skýra frá því, að
viku eöa hálfum mánuði fyrir
flokksþing íhaldsflokksins verði
birt ný stefnuskrá fyrir flokk-
inn í sókn þeirri, sem hafin
verður við forustu Edwards
Heath hins nýja flokksleiðtoga.
f þessari „sex þúsund orða
stefnuskrá" eins og hún er
kölluð f einu blaðinu, er gert
að meginatriði, að einstaklings-
framtakið fái notið sín betur
en nú, stefnt að meiri fullkomn-
un 1 iðnaði og hollari sam-
keppni, þótt það kunni að koma
ónotalega við suma — og að
réttur verði hlutur neytend-
anna.
íhaldsflokkurinn ætlar sér
að gera mikið átak, hefja bar-
áttu af kjarki og dugnaðl, án
loforða um gull og græna skóga
— þvert á móti. Það verður
gert ráð fyrir, að fara verði
grýttar brautir til þess að ná
markinu, — og að vegna þess
að horfur fyrir Bretland séu að
ýmsu tvísýnar, þurfi enn frekar
en nokkru sinni áður að taka á
máhim af festu, nýrra hugsjóna
sé þörf, kjarks og þrautseigju.
A það verður lögð mikil á-
herzla, að réttur verði hhitur
neytandans, hinn almenni borg-
ari verði þess var í sölubúðun-
um, allir sem þurfa á þjðnustu
að halda.
Heath og ráðunautar hans
eru sagðir hafa sannfærzt um
að mörgu, sem úrelt er en við-
haldizt hefir vegna hefðar,
verði að víkja, — og það sé
ekki aðeins íhaldsflokkurinn,
sem verði að taka sig á og
hefja nýja baráttu, heldur öll
þjóðin.
Stjómmálalega eru vanda-
málin þau framar öðru fyrir
Ihaldsflokkinn í hinni nýju bar-
áttu. 1 fyrsta lagi að sigra
Verkalýðsflokkinn svo rækilega,
að flokkurinn tryggi sér ör-
uggan meiri hluta til fimm ára
— og að sannfæra kjósenduma
um, að þeir ættu að stuðla að
gengi íhaldsflokksins, þótt
hann bjóði þeim ekki neina
ljúffenga ávexti.
Einn þáttur baráttunnar verð
ur að hvetja almenning til þess
að kvarta yfir því, sem miður
fer, meðal annars yfir þjón-
ustu, og að halda fast á sínum
málstað um vömvöndun, geti
menn með rökum bent á, að
Edward Heath.
vömgæði séu ekki þau, sem
réttmætt sé að krefjast. Unnið
verður að endurskoðun laga,
vegna nauðsynlegra breytinga,
f samræmi við hina nýju stefnu.
Gylfi Þ. Gíslason, viðskipta-
málaráðherra, og kona hans
fóm á fimmtudagsmorg-
un til Tékkóslóvakíu, þar sem
þau munu dvelja í 10 daga í
boði viðskiptamálaráðherra
Tékkóslóvakíu, Frantisek Ham-
ouz. Munu ráðherrarnir eiga við
ræður um viðskipti landanna og
verða viðstaddir opnun alþjóða-
vömsýningarinnar í Bmo 11.
september. Ennfremur er ráð-
gert, að Gylfi Þ. Gíslason ræði
Edward Heath er sagður hafa
verið önnum kafinn frá því
hann var kjörinn flokksleiðtogi
í júlí — einnig á sumarleyfis-
tímanum í Villefranche.
Heath áformar að fara í
ferðalag um land allt síðar í
þessum mánuði til þess að
kynna fyrir þjóðinni hina nýju
stefnu og mun hann flytja
fyrstu ræðu sína f Invemess á
Skotlandi.
Flokksþingið verður haldið í
Brighton og þar mun hann
flytja tvær ræður, og verður
önnur um hina nýju stefnu.
Hin verður lokaræðan á þing-
inu og er búizt við, að það
verði mögnuð hvatningarræða,
og ekkert um söng og hljóð-
færaleik og annað slíkt, sem
til þessa hefir einkennt flokks-
þingin í lokin.
Þá er búizt við, að birtar
verði bráðlega niðurstöður
og álit ýmissa nefnda flokks-
ins, sem mikið hafa starfað að
undanfömu.
Meðal mála, sem vitað er að
hafa verið til athugunar, er að
haldin verði fjármálaráðstefna
með þátttöku Bretlands,
Bandaríkjanna og Vestur-
Evrópu-meginlandsþjóða, til
þess að ná samkomulagi milli
Evrópu og Bandaríkjanna um
alþjóðagjaldeyrisvandamál.
við Dr. Cestmfr Cisar, mennta-
málaráðherra Tékkóslóvakiu,
um menningarsamskipti land-
anna.
► Bandariski aðstoðarutanrík
isráðherrann George Ball og
Henry Fowler fjármálaráðherra
em i þann veginn aö leggja upp
i ferðalág til viðræöna I mörg-
um höfuðborgum Evrópu.
Viðskiptamálaráðherra er
í Tékkóslóvakíu