Vísir - 11.09.1965, Side 2
VÍSIR Laugardagur 11. september 1965.
GÓLFTEPPI
Fullkomin þjónusta
^zÆteinsun /i-$-
Bolholt 6 — Sími 35607
Tekst ÍR að vinna KR á
Reykjavíkurmeistaramótinu?
í dag hefst á Laugardalsvellinum í Reykjavík,
Meistaramót Reykjavíkur í frjálsum íþróttum.
Hefst mótið kl. 14 og heldur áfram á sama tíma á
morgun og kl. 17.30 á mánudaginn, en síðar í mán-
uðinum verður keppt í tugþraut og 10 km. hlaupi.
Mót þetta hefur legið niðri undanfarin ár, en nú
er gerð tilraun til að endurvekja það.
í dag er keppt í þessum grein-
um: 200, 800 og 5000 metra hlaup
um, 400 metra grindahlaupi, há-
stökki, langstökki, spjótkasti og
kúluvarpi karla og í kvennagrein-
um 100 metra hlaupi, spjótkasti
og langstökki og Ioks 4x400 metra
boðhlaupi karla.
Á morgun: 100, 400 og 1500
metra hlaup, 110 metra grinda-
80 þátttakendur á sund-
móti á SAUÐÁRKRÓKI
w
Unglingameisfaramót islands Staldið þar um helgina
Unglingameistaramót íslands
1965 í sundi fer fram á Sauðár-
króki á morgun sunnudag'inn 12.
september og hefst kl. 3 e.h.
Keppnisgreinar eru: 50 m bak-
sund, 50 m bringusund, 50 m skrið
sund telpna og sveina 14 ára og
yngri, 100 m bringusund, 100 m
skriðsund, 50 m baksund, 50 m
flugsund fyrir drengi 16 ára og
yngri, 100 m bringiisund, -50 m
skriðsund, 50 m baksund, 50 m
flugsund fyrir stúlkur 16 ára og
yngri, 4x50 m fjórsund fyrir stúlk
ur og drengi.
Þátttakendur í mótinu verða um
80, víðsvegar af landinu og má bú-
ast við harðrí keppni um bikar
hann, sem Sundsamb. Islands gaf
til keppninnar fyir tveim árum, en
hann hlýtur það félag, er flest st'ig
hlýtur á mótinu. Ármann hefur
unnið bikarinn í bæði skiptin, sem
um hann hefur verið keppt.
Einnig verður keppt í tveim auka
greinum, 100 m bringusund'i karla
og 200 m skriðsundi karla, en þar
mun Davíð Valgarðsson reyna að
slá íslenzka metið.
hlaup, þrfstökk, stangarstökk,
kringlukast, sleggjukast, 4x100
metra boðhiaup, 200 metra hlaup
kvenna, kringlukast kvenna og há
stökk kvenna.
Á mánudagskvöldið verður keppt
1 fimmtarþraut karla og 80 metra
grind og kúluvarpi hjá stúlkunum.
Reykjavlkurmótið er stigakeppnl
élaganna og eru það 4 félög, sem
keppa um þau. IR og KR munu
örugglega verða mjög jöfn og ef-
laust verður ekkert gefið eftlr. Ár-
mann mun örugglega krækja í
meistarastig á þessu móti, en fjórða
félagið sem er Víkverji tekur þátt
i fyrsta sinn og sendlr einn kepp-
anda og getur vart gert ráð fyrir
sigri.
BIKARKEPPNIN
UM HELGINA
Um helgina er það bikarkeppn-
in í knattspyrnu, sem mun draga
fólklð til sin. Á morgun fara tveir
lelkjanna i aðalkeppninni fram.
Á AKRANESI mun heimallðið
berjast við lið FH, sem komst öll-
um á óvart áfram upp í aðal-
keppnlna. Það mundi verða fimm-
dálka fyrirsögn, ef Hafnfirðingum
tækist að sigra Skagamcnn i þess-
um leik, — enda eru Akumesingar
sigurstranglegasta liðið í 1. deild
og leikur að auki á heimavellinum
á Sklpaskaga.
Á MELAVELLI i Reykjavik fer
fram annar bikarleikur, og ætli
menn að fá spenning, er þeim ráð-
lagt að fara heldur og horfa á þann
leik. Það eru andstæðingamir úr
Austurbæ, Valur og Fram, sem
mætast þama og er ekki að efa
að sá leikur verður mjög gimileg-
ur. Fram vann síðast þegar liðin
mættust, en það var eftlr að Fram
var fallið í 2. deild og hafði sá
leikur ekkert áð segja upp á loka-
stöðuna. Það verður örugglega bar-
izt hart i þessum leik og ekki
nokkur vegur að segja neitt um
hvemig fer. Eflaust ætla Framarar
að bæta nokkuð fyrir fallið og selja
sig dýrt í bikarkeppnlnni.
Leikimir hef jast kl. 16 á morgun.
Þýzkir
íþrótta-
menn
Þessir tveir íþróttamenn eru
Þjóðverjar og báðir mjög snjall-
ir, hvor í sinni íþróttagrein,
sem eru vel að merkja mjög ó-
skyldar og ólíkar að flestu leyti.
Sá til vinstri heitir Wilfried
Dietrich, 31 árs gamall, sem er
einn snjallasti þungavigtar-
maðurinn í heiminum í róm-
verskri glímu. Hinn maðurinn
er snjall fimleikamaður og beit-
ir Giinter Lyhs og er 30 ára
gamall.
Hvorug þessara íþróttagreina
er enn þekkt aSl ráði hér á landi.
Glíman hefur lítið verið stund-
uð, en fimleikar hafa „týnzt“
sem keppnisíþrótt, en lítið eitt
er þó að glæðast áhuginn og
horfur á að senn verði farið að
keppa í greininni og í fyrravor
fór fvrsta keppnin í áraraðir
fram.