Vísir - 11.09.1965, Blaðsíða 4
1
V l*S>I>R Laugardagur l!:íj
LAU6ARDAGSKR0SS6ÁTAN
y
i
Bridgeþáttur YÍSIS
Ritstj. Stefán Guðjohnsen
4
¥
♦
G653
G
KDG
10 9 4
G 4
V
A/
4 KD74
¥ 865
4 Á 6 2
^ K 8 5
4 109
¥ D 10 9
432
♦ 8
4 109 62
Spilið í dag er eitt af snjallari
spilum, sem ég hef séð um dagana
og var það spilað af enska stór-
meistaranum, Adam Meredith, fyrr
verandi heimsmeistara. Spilið kom
fyrir í rúbertubridge og staðan
var þannig að n-s voru á hætt- j
unni, norður gaf.
4 Á 8 2
¥ ÁK?
♦ 753
4 Á D 7 3
Sagnirnar gengu þannig:
Norður Austur Suður Vestur
14 P 14 2 4
2 4 P 2 G P
4 4 P P P
Fjögurraspaðasögn norðurs var
vanhugsuð. Ottektarsögn var sjálf
sögð, en hún hefði átt að vera í
grandi.
Vestur spilaði út tlgulkóng og
Meredith gaf. Þá kom tiguldrottn
ing, austur kastaði hjarta og sagn
hafi tók á ásinn. Hann tók nú
þrisvar tromp og þepar það féll
ekki, þá virtist spilið vonlaust.
Einn gjafaslagur á tromp, tveir á
tígul og einn á hjarta.
Meredith leysti vandann laglega.
Hann tók hjartaás, laufaás og
kóng og spilaði þriðja laufi yfir á
drottninguna. Vestur má ekki
trompa, því þá er hann að trompa
tapslag hjá sagnhafa og hann kast
aði tfgli. Sagnhafi drap á drottn-
inguna, spilaði fjórða laufinu og
kastaði tígli að heiman. Austur
átti engu að spila nema hjarta og
aftur mátti vestur ekki trompa.
Sagnhafi tók á kónginn, spilaði tígli
og trompaði og fékk þar með tf-
unda slaginn.
Dregið í HHÍ
Föstudaginn 10. sept var dregið
í 9. flokki Happdrættis Háskóla
Islands. Dregnir voru 2.300 vinn-
ingar að fjárhæð 4.120.000 kr.
Hæsti vinningurinn 200,000 kr.,
kom á númer 12335 hálfmiða selda
í umboði Arndísar Þorvaldsdóttur
og í umboðinu á Siglufirði.
100.000 króna vinningurinn kom
á miða númer 14796 er seldir voru
í umboðunum: Akurevri, Borgar-
nesi, Patreksfirði og Þórshöfn.
Lykilspilamennska Merediths var
að taka hjartaásinn í sjötta slag,
því ef hann gerir það ekki, þá vinn
ur hann ekki spilið.
t Evrópumótið í brigde hefst í
Ostende í Belgiu á þriðjudaginn og
mun ég birta spil og fréttir af
mótinu næsta laugardag.
Danskynning
Dansskóli Hermanns Ragnars
gengst fyrir danskynningu í súlna-
sal Hótel Sögu í síðdegiskaffinu n.
k. sunnudag 12. sept.
Hún hefst kl. 3.30 e. h. og getur
fólk fengið sér síðdegiskaffi
meðan á sýningu stendur.
Til að tryggja fólki borð verður
forsala á aðgöngumiðum og borð-
pantanir í dag í anddyri Hótel
Sögu kl. 3—5 e. h. Fullorðnir
greiða kr. 30,00 og böm kr. 15,00
og er fatagæzla innifalin í verðinu.
Aðgöngumiðarnir eru númeraðir
og gilda sem happdrættismiðar.
Munu 5 gestir fá ávísun á ókeypis
danskennslu í Dansskóla Hermanns
Ragnars næstu 3 mánuði.
Til sölu
Ford ’47 hópferðabifreið, 30 manna í fyrsta flokks ásig-
komulagi. Uppl. I Bílasölu Guðmundar eða í síma 50332.