Vísir - 11.09.1965, Qupperneq 8
8
VÍSIR Laugardagur 11. september'1965.
VISIR
Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR
Framkvæmdastjóri: Agnar Ólafsson
Ritstjóri: Gunnar G. Schram
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson
Þorsteinn Ó. Thorarensen
Auglýsingastj.: Halldór Jónsson
Sölustjóri: Herbert Guðmundsson
Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald: kr. 80,00 á mánuði innanlands
í lausasölu kr. 7,00 eintakið
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f.
Rússlandsviðskipti
Þjóðviljinn hefur fyrr og síðar látið í það skína og
ýmsir leiðtogar kommúnista haldið því fram fullum
fetum, að viðskipti íslands við Sovétríkin væru al-
gerlega komin undir því, hvers íslenzkir kommúnist-
ar óskuðu í því efni. Er þess skemmst að minnast að
í september í fyrra, þegar nokkrir háttsettir komm
únistaleiðtogar komu heim úr Rússlandsferð —
sem raunar mun nú hafa verið farin í öðrum erindum
en að útvega markaði — þá lýsti Þjóðviljinn því yfir
að hægt væri að selja til Rússlands niðursoðna og nið-
urlagða síld fyrir um 200 millj. kr.. Breshnev hefði
tjáð sig þess albúinn að kaupa þetta af okkur og nú
væri það okkar að notfæra okkur þetta kostaboð.
Þegar einhverjum varð á að draga í efa að þetta „til-
boð“ mundi standa, ef til alvörunnar kæmi, ætlaði
Þjóðviljinn af göflunum að ganga og sagði að hér
væri sama sagán og fyrri daginn, íslenzk stjórharvöld
vildu helzt ekki skipta við Sovétríkin og gerðu ævin-
lega allt til að spilla fyrir því að samningar gætu
tekizt. Hannibal Valdimarsson var einn þeirra, sem
hafði litla trú á þessu „tilboði“ og kallaði það í háði
„gaffalbitapólitík.“
Það kom líka fljótlega á daginn að þessi stórfrétt
Þjóðviljans var samin og sett með stóru letri á forsíðu
til þess að reyna breiða yfir hvert hið raunverulega er
indi Einars Olgeirssonar og félaga hans í austurveg
hafði verið að þessu sinni, og brátt varð alveg hljótt
um þetta viðskiptatilboð. En síðan þetta var hefur
Breshnev komizt til æðstu valda í Rússlandi og
ættu því vinir hans hér að hafa góða aðstöðu til þess
að vinna okkur markað í Rússlandi- Þeir geta minnt
hann á gömul loforð. Og Þjóðviljinn má vera viss
um það, að íslenzka ríkisstjórnin mun ekki á nokkurn
hátt reyna að hindra það, að hagkvæmir viðskipta-
samningar takist. En samkvæmt því, sem kommún-
istar hafa áður haldið fram um vald sitt yfir Rússum
á þessi sviði, verður að líta svo á, að sökin sé Einars
og félaga hans, ef ekkert verður úr samningum! Og
hvemig sem á því stendur hefur komið í ljós að
Sovétstjórnin er nú mjög erfið viðureignar í samn-
ingum og má það furðulegt heita, þar sem Breshnev
vinur Einars er kominn þar til æðstu valda.
Allt Krúsjeff oð kenna!
Fregnir hafa borizt um að nú sé hafin mikil og
hörð gagnrýni í Rússlandi í garð Krúsjeffs meðan
hann fór þar með æðstu völd. Nú er honum t.d. kennt
um, hve allt hefur farið úrhendis í landbúnaðarfram-
leiðslunni. Haft er m.a. eftir einhverjum Kunaev, leið
toga flokksdeildarinnar í Kasakhatau, að Krúsjeff hafi
hafi nánast eyðilag landbúnaðinn þar. Það er þó
vitað að landbúnaðarmálin voru í mesta ólestri á
stjóraartíma Stalíns og kommúnistum hefur aldrei
tekizt að koma þeim í rétt horf.
Norrænir útvorpsstjórnr á fundi
1 gærmorgun klukkan 10
hófst stjómarfundur norrænna
útvarpsstöðva. Eru þar mættir
23 fulltrúar frá Danmörku,
Noregi, Finnlandi og Sviþjóð,
og þrir frá íslandi.
Eru þar rædd ýmiss mál varð
andi útvarpsrekstur, svo sem
samvinnu um dagskrárgerð,
fjármál og lögfræðileg mál.
Fundinn sitja útvarpsstjórar
allra þessara landa, svo og næst
ráðand'i menn. Fundir sem þess
ir hafa venjulega verið haldnir
annaðhvert ár, en ætlunin er
að framvegis verði þeir haldn-
ir árlega. Þetta er í fyrsta sinn
sem slíkur fundur er haldinn
hér 1 Reykjavlk.
Á laugardaginn verður svo
haldinn hér fundur útvarps-
stjóra Norðurl. og verða þar af
greidd þau mál, sem undirbún
ingsfundurinn vísar til útvarps
stjóranna.
Michéle Mercier (Angélique)
Góðu myndirnar ekki leng-
ur látnar bíða til haustsins
Það er af, sem áður var —
þegar flestar beztu kvikmynd-
imar voru látnar biða hausts
ins, — margar fremur góðar
kvikmyndir hafa verið sýndar í
sumar og nokkrar ágætar. Þann
ig á þetta líka að vera. Hví
skyldi ekki þeim, sem starfs
síns vegna og annarra ástæðna
vegna ero í bænum, meðan aðr
ir ero í leyfi eða störfum ann
arsstaðar á sumrin, vera boð
ið annað en það, sem gott er?
Austurbæjarbíó sýnir nú
Angél'ique, sem gerð er eftir
samnefndri sögu Anne og Serge
Golon og er birt sem framhalds
saga í Vikunni, og ýmsir lesið
hana á erlendum málum, og
margir því efninu kunnir, enda
verður það ekki rakið. Það er
sjálfsagt hægt að finna að því
með rökum hve lopinn er teygð
ur i sögunni, en um Vinsældir
hennar þarf enginn að efast,
Sjálfur hef ég ekki lesið hana
og felli engan dóm um hana,
en kvikmyndin er bráðskemmti
leg og að henni hin bezta dægra
stytting. Hún gerist á tímum
umbrota og byltinga á Frakk-
landi — tíma Loðvíks XIV —
og er efn'ið hvergi um of dreg
ið á langinn í myndinni.
Kannski nýtur það sín betur í
kvikmynd en langri sögu? Með
hlutverk er vel farið, Angeliku
leikur ung og fögur leikkona
Michele Mereier án stórra til
þrifa en þokkalega, en aðal-
mótleikari hennar í myndinni
Robert Hossein skilar eftirminni
legum leik, og mörgum hlut-
verkum er skilað sériega vel. —
Tal er á frönsku. (Hér eru stund
um sýndar franskar myndir
með ensku tali. Ég hefi enga
séð þar sem þetta hefur heppn
ast vel — hljómar ekki eðli-
lega, og rýrir gildi þeirra.)
Laugarásbíó er nýbyrjað að
sýna kvikmyndina .Villtar ástríð
ur“ (Os bandeirantes) sem gerð
er við leikstjóm Marcusar Cam
us. Þetta er brazilisk stórmynd
f litum, með tali á ýmsum
tungum, aðallega portúgölsku
og frönsku. Það er heitlynt
fólk, sem hér kemur við sögu
— flest — öldur tilfinninganna
rísa hátt — og allt er hér með
öðrum blæ en menn eiga að
venjast, lífsbarátta, siðir og
venjur, og maður kynnist því í
umhverfi, sem það lifir og hrær
ist í. Sagan fjallar m. a. um
ungan Frakka, sem á harma að
hefna, en finnur hamingjuna,
er hann bjargar frá hroðalegum
dauðdaga þeim manni sem hann
vildi hefnast á, og kemst á
þeirri stundu f sátt við guð og
menn.
Nokkur hluti myndarinnar ger
ist í hinni nýju höfuðborg lands
ins —Brazil'ia — sem er að
rísa með skýjakljúfa sína uppi
i fjöllum langt inni í landi. Með
aðalhlutverk fara Rayjjjond
Loyer, Almito de Aspirato —
framhald á bls. 13
Lourdes de Oliveira (Suzana)
iffissas2ÍSS5ÍS3SS