Vísir - 11.09.1965, Page 16

Vísir - 11.09.1965, Page 16
Laugardagur 11. sept. 1965. Metsíldarvertíð Norðmanna í Norðursjónum Norðmenn hafa fengið uppgripa síldveiði í Norðursjónum í sumar. Er það einhver mesta sxldveiði sem þeir muna eftir, svo ekki er von, að norsk síldarskip séu mikið á ferðinni á íslandsmiðum. Þær fregnir hafa borizt frá Noregi að aflinn þama sé kominn yfir 5 milljón hektólítra. Þessi mikla síldveiði í Norður- sjónum hefur nú komið mönnum talsvert á óvart og er hér um að ræða fyrirbrigði sem fer allmjög í bág við ýmsar hugmyndir fiski- fræðinga. Á síðustu árum hafði síldveiðin í Norðursjónum dregizt saman og voru menn komnir með þá kenningu að stofninn væri of- veiddur, en nú virðist annað hafa komið í Ijós. Haustið og sérstaklega það sem af er septembermánuði hefur verið eitt fegursta og bezta haust, sem við höfum upplifað. Eitt einkenni þessara fögru og björtu daga hefur ver- ið sérstaklega skýrt og gott skyggni. Það er ekki oft sem það hef- ur komið fyrir að hinn mikli Snæfellsás hér handan við Fló- ann hefur blasað við dag eftir dag hreinn og tær og skýlaus. Hafa Revkvíkingar nú lært þessa síðustu daga að meta Snæfellsjökul betur en nokkru sinni fyrr. Þótt hann sé í mikilii fjarlægð hefur hann sannarlega prýtt útsýnið af Seltjamarnes- inu. Hann hefur ekki hvað sízt verið til prýði um sólarlag á kvöldin. Þá var þessi mynd tekin í fyrrakvöld, hún sýnir skuggamynd borgarinnar rétt eftir sólarlag himinninn er enn roðaður síðustu geislum sólar- innar og tuma hinnar nýju Há- teigskirkju og Sjómannaskólans ber við himin upp í skýjatrafið. En lengst í fjarlægð hægra meg- in á myndinni má greina hina miklu prýði sólarlagsins, Snæ- fellsjökul með eldfjallslínum sínum. CÓÐ KARTÖFLUUPPSKERA ÍÞYKKVABÆ Kartöfluuppskeran í Þykkvabænum virðist ætla að verða með ágæt- um í haust, eftir öllum sðlarmerkjum að dæma. „Mikið góð uppskera,“ sagði einn kartöflukóng- urinn við fréttamann Vísis, þegar hann var á ferð þar um slóðir í gær. Búast má við, að á sumum bæjum uppskeri bændur tífalt, jafnvel meira (sérstaklega af tegundinni gullauga), en reikna má með áttfaldri uppskem að meðaltali Fjórar tegundir af kartöflum eru ræktaðar í Þykkvabæ, rauð ar íslenzkar (eða Ólafs-Rauð- ur, kenndar við Ólaf Jónsson, tilraunastjóra á Akureyri) og gullauga, sem eru hvortveggja Framh á 6 síðu Upptökuvélin fer jafnt og þétt yfir kartöfluekruna hjá Hábæjarfólkinu (Ljósm. stgr). Sigurlín Óskarsdóttir, verðandi leikkona, tínir eftir „vél- ina“ (Ljásm. stgr). STÓRUTHLUTUN LÓÐA í REYKJA VÍK UNDIRBÚIN Enn stendur fyrir dyrum stórút hiutun á lóðum í Reykjavik, bæði undir íbúðarhús og iðnað. Ibúða- lóðum verður úthlutað í Fossvogi og í Breiðholti og iðnaðarlóðum í Ártúnshöfða. Byggingaframkvæmd ir á þessum stöðum eiga að hefj- ast næsta sumar, og er skrifstofa borgarverkfræðings nú að kalla eftir umsóknum og endurnýjunum á eldri umsóknum. Helgi V. Jónsson, skrifstofu- stjóri borgarverkfræðings, sagði blaðinu f gær að séð yrði fyr- ir allri þörf á iðnaðarlóðum að sinni með úthlutun lóðanna í Ár- túnshöfðá. Þar verður í vetur und irbúið ailt svæðið milli Elliðavogs, Grafarvogs og Vesturlandsvegar. Umsóknarfrestinum er nú að ljúka, og rennur hann út 15. september. í fyrrasumar var úthlutað um 1200 íbúðalóðum í Árbæjarhverfi, Norðurbrún og Sæviðarsundi, en ) : reiknað er með, að úthiutun í Foss I vogi og Breiðholti verði ennþá : stærri, ef það tekst að ganga frá i öllu skipulagi í tíma. Umsóknafrest | ur og frestur tii að endurnýja um sóknir er senn að renná út og hef ur borizt fjöldi umsókna um Foss voginn en lítið um Breiðholt'ið. Út hlutunin á að fara fram um ára- Framhald á bls. 6. Síðasta sigling til austur- strandar Grænlands í haust 1 gær kom til Reykjavíkur hið kunna Grænlands- og heimskauts far, Kista Dan, sem nú er að fara i síðustu ferð sína fyrir veturinn til hafna á Suður-Grænlandi. Skip ið stóð hér aðeins við í um tvær klukkustundir. Það skilaði af sér um tuttugu manns sem voru að koma frá Grænlandi en tók 7 far- þega, en það er fólk t.d. konur og börn vitavarða. sem ætlar að hafa vetursetu i Grænlandi. Petersen skipstjóri sagði að skip hans hefði verið heppið í sumar. Siglingaleið hans er til syðsta hluta Grænlands og þar hefur ekki verið mikill ís. Hin skipin Tala Dan og Nella Dan sem siglt hafa til staðar norðar á austur- ströndinni hafa átt við meiri erfið- leika að striða, en þau munu nú Framh. á bls. 6.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.