Vísir - 04.10.1965, Blaðsíða 3

Vísir - 04.10.1965, Blaðsíða 3
tAt KR er fslandsmeistarinn í knattspymu 1965. Það kostaði bæði svita og tár að ná þessum titli og úrslitaleikurinn í gær gegn Akurnesingum verður án efa lengi í minnum hafður. í Laugardal vom í gærdag í blíðskaparveðri um 9600 áhorfendur og horfðu á leik liðanna, sem var hreinasta hrollvekja frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu. Allflestir þessara áhorfenda komu til að hylla Akranes. Aðdáendur KR voru greinilega í miklum minnihluta. O Fyrirliði KR, Ellert Schram tók við bikamum að leik lokn- um af formanni KSÍ, Björgvin Schram, föður sínum, og án efa er þetta í fyrsta skiptið, sem íslandsbikar er afhentur með ,,baulandi“ lýð sem bakgrunn- inn. Ruddist fólk inn á völlinn að leik loknum og varð ekki þokað burt þrátt fyrir áskor- anir þess efnis í gegnum hátal- arakerfi vallarins. Var hávaðinn slíkur að ekki heyrðist orð af þvf sem Björgvin Schram sagði. Það var síður en svo „sætur“ sigur fyrir KR að vinna Akranes 2:1 í gærdag. Akumesingar áttu fullt eins skilið að fara með sigur af hólmi að mínum dómi, og eins var það leitt að Akumesingar misstu tvo sína beztu sóknarmenn út af í seinni hálfleik, þegar um 8—10 mínútur voru eftir. Það vom þeir Eyleifur og Ríkharður, sem báðir yfirgáfu völlinn, og er vikið að því nánar annars staðar hér á síðunni. Leikurinn var afar spennandi þegar í byrjun. Skúli Hákonarson ógnaði marki KR á 9. mínútu og á 10. mínútu var enn hætta við KR-markið. ÞRETTÁNDA MÍNÚTAN var sannkölluð „óhappa“-mínúta fyrir Akranesliðið. Þá hrökk boltinn til Einars ísfeld, hægri' innherja KR í mjög góðu færi og skoraði hann 1:0. Hvar var Kristinn Gunnlaugsson? Hann var víðs fjarri, hafði yfirgefið stöðu sína andartak, en enginn gætt hennar í staðinn. Bæði liðin sóttu eftir þetta og ógnuðu, en á 21. mínútu skoraði Akranes sitt mark. Það skoraði Skúli Hákonarson, v. innherji. Kristinn, revndi að koma bolt- anum af hættusvæðinu með Islandsmeistarar KR: Fremri röð frá vinstri: Bjami Felixson ,Þor- geir Guðmundsson, Sveinn Jónsson, Eiiert Schram, Kristinn Jóns- son, Einar ísfeid, Baldvin Baldvinsson. Aftari röð frá vinstri: Guð- bjöm Jónsson, þjálfari, Gunnar Felixson, Hreiðar Ársælsson, Heimir Guðjónsson, Guðmundur Haraldsson,. Hörður Felixson og Ársæll Kjartansson. skalla, en mistókst og fór bolt- inn til Skúla, sem notfærði sér tækifærið mjög skemmtilega og skoraði örugglega af stuttu færi. Á næstu mínútum ógnuðu þeir Eyleifur og Skúli. Hörður Felixson bjargaði í fyrra slrtptið til Heimis en Heimir lokaði markinu fyrir Skúla, sem var í þröngri stöðu á ská við mark KR. Akurnesingar vom aftur á móti heppnir á 26. mín., þegar Helgi Dan. fór of langt út úr markinu og skildi það eftir opið, en Guðmundur Haraldsson gaf fyrir. Þá fór skot Gunnars Felixsonar í hliðametið. Á 30. mín. einlék Eyleifur lag- lega inn í vítateiginn og var að komast f gott skotfæri, þegar Bjarni Felixson setti fótinn í Ey- leif og brá honum. Fyrir þetta var dæmd vítaspyma eins og gefur að skilja. Eyleifur framkvæmdi hana sjálfur, en spyman heppnaðist illa, boltinn fór vel utan hjá marki. Á 32. mín. skoraði Ríkharður með slcalla úr fyrirgjöf frá hægri, en þá var Skúli Hákonarson dæmdur rangstæður. Undir lok hálfleiksins áttu KR-ingar þrjú sæmileg tæki- færi. Einar ísfeld skallaði fyrst fram hjá, og síðan varð mikið þóf ,í vítateig Akraness sem var bjarg- að og loks sýndi Baldvin lagleg tilþrif fyrir marki, tók á lofti bolta frá Gunnari Felixsyni og skaut yfir Helga sem kom vaðandi út, en boltinn fór rétt yfir markið. Segja má að fyrri hálfleikurinn hafi verið nokkuð jafn, en Akurnes- ingar hefðu mátt hafa yfir með 2:1 og hefði ekki verið nema sann- gjamt, Seinni hálfleikur var ekki leikinn af eins miklum hraða og sá fyrri og greinilegt var að leikmenn voru útkeyrðir. Harka og ólöglegar hiindingar voru meira áberandi. KR-ingar voru meira i vörn f seinni SKRÍLSLÆTIVEGNA MEIÐSLA A RÍKHARÐI 0G EYLEIFI í GÆR Það olli geysilegum óróa í röð um áhorfenda f Laugardal, þeg- ar tveir leikmenn Akranessliðs- ins voru bomir út af leikvelii á sjúkrabörum svo til á sömu mínútunni. Fyrst fór Eyleifur Hafsteinsson eftir að hann hlaut ljótt spark frá Bjama Felixsyni, en stuttu seinna fór Ríkharður og var meira meiddur eftir að Sveinn Jónsson gerðist sekur um gróft brot, kastaði sér á bak ið á Ríkharði með jjeim afleið ingum, að hann meiddist illa og var í rannsókn á Borgarsjúkra- húsinu langt fram eftir kvöldi f gær. Var hann fluttur til Akra- ness í sjúkrabifreið f gærkvöldi og liggur f sjúkrahúsinu þar. Hafði höggið, sem hann fékk, lent á nýranu og getur slfkt högg verið banvænt. „Ég sló ekkl Rfkharð“, sagði Sveinn Jónsson við blaðamann Vfsis að leik loknum. Sveinn var mjög Ieiður vegna þessa at viks og naut ekki sem skyldl gleði félaga sinna yfir unnum sigri. „Ég lenti með öxlina á honum, en sló hann aldrci eins og einhverjir voru að væna mig um áðan. Ég viðurkenni, að ég leik fast, — en ég leik ekki ó- löglega. Hins vegar kom einn Akumeslngurinn, Skúli Hákon- arson, aðvífandi og sló mig eftir að við Rikharður lentum sam- an“. Dómarinn Hannes Þ. Sigurðs son, bókaði Svein Jónsson eftir þetta atvik ,en tók ekki eftir höggi Skúla. „Hefði ég séð það, hefði ég vikið honum umsvifa- Iaust af leikvelli", sagði Hannes. Eyleifur Hafsteinsson kom ekki inn eftir meiðslin, sem hann hlaut, en kom og var með félögum sfnum við verð- launaafhendinguna. „Bjarni Fel- ixson lét fótinn vaða f mig, — en það skrýtna var, að dóm- arinn dæmdi ekkert á hann!“ Þegar Hannes Þ. Sigurðsson hafði flautað af þessum sögu- lega Ielk, þusti múgurinn inn á leikvanginn. Ekki til að fagna KR, heldur til að láta í ljós van- þóknun sína á sigrinum. Ræða Björgvins Schram heyrð Ist aldrei fyrir öskmm þessa ó- látalýðs og hann var neydd- ur til að gera afhendingu bik- arsins eins stutta og hægt var. Húrrahróp fyrir KR varð heldur lágkúrulegt og lýðurinn „baul- aði“ f stað þess að taka undir. Þegar KR-ingarnir gengu af velli eftir myndatöku skyrpti lýðurinn úr stúkunni á KR-ing ana. Þetta voru mjög Ieiðinlegar móttökur sem liðið fékk og leik menn voru mjög sárir yfir þessu. „Það er talað um, að þetta sé okkar heimavöllur“, sagði Kristinn Jónsson, h. bak- vörður í liði KR. „Við eigum engan heimavöll. Hér voru ein- ungis örfáir menn sem fögnuðu okkur. Fólkið kom til að sjá Akranes slgra, en þegar það Framh. á bls. 6. w:n hálfleik og Akurnesingar sóttu. Á 13. mín. sótti Matthías Hall- grímsson upp að marki KR og var að komast í skotfæri, en þá stöðv- aði Bjarni Felixson hann með því að renna sér fyrir hann og tókst það f þetta sinn á löglegan hátt Á 16. mín. gaf Matthías laglega inn fyrir á Eyleif, sem hljóp með send- ingunni en tókst ekki að ná til boltans. BALDVIN BALDVINSSON reyndist einu sinni enn maður- inn sem bjargar móti fyrir KR. Hann var síður en svo áberandi í þessum leik, nema fyrir það að hann var oft klaufalegur f við- skiptum sfnum við boltann. Hann fékk á 18. mínútu góða sendingu frá Sveini Jónssyni upp miðjan völlinn. Fjónr varnarmenn hugðust stöðva hann, en alla hljóp hann þá af sér og skaut loks á vítateig fram hjá Helga Daníelssyni í mark- inu, 2:1! Htir þetta sóttu Akurnesmg- ar fast. Heimir bjargaði skoti Skúla í hliðarnet. Matthías átti hörkuskot, sem Heimir varði fallega á 25. mín. Og þá varði Heimir stórfallegt skot Rfkharð- ar langt fýrir utan vftateig úti í bláhorninu neðst. Heimir hafði þá meiðzt nokkuð, en flaug engu að sfður eins og köttur út f homið og bjargaði á síðasta andartaki. Á 37. og 39. mfnútum voru sjúkrabörumar f gangi. Fyrst fór Evleifur, síðar fór Ríkharð- ur. Þá var ekki mikið eftir af liði Akraness og lítil von um að jafna, enda þótt hinn sterki ÁFRAM AKRANES-kór! magn- aðist um allan helming. Síðasta tilraunin var hörkuskot Matt- híasar á 45. mín. Heimir stóð framarlega og var ekki viðbú- inn svo snöggu skoti, en tókst Framh. bls. 4.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.