Vísir - 04.10.1965, Blaðsíða 11

Vísir - 04.10.1965, Blaðsíða 11
SÍÐAN Hættulegur sníkj fundinn í blóði manna „Toxoplasma“ í blóði mæðra um meðgöngutímann getur valdið því að bamið fæðist vangefið — jafnvel blint. Sníkjusýkillinn er ein- frumungur á stærð við rauðu blóðkomin, dönsk semm- stofnun hefur fundið öruggt mótlyf, að sögn vísinda- manna. T heiminum úir allt og grúir af örsmáum lífkveikjum, sem menn þekktu að vísu til áður en heimsstyrjöldin síðari brauzt út, en veittu þeim ekki sérlega athygii. í rauninni em ekki nema fimmtán ár síðan vís'inda menn tóku að gmna þessar líf- kveikjur um græzku sem sjúk- dómsvalda innan þröngra tak- marka. Nú hafa víðtækar rann- sóknir leitt í ljós, að þessi líf kveikja er stórum mun útbreidd ari en fyrst var búizt við. Engin dýrategund með heitu blóð'i er undanskilin heimsókn hennar. í Danmörku þar sem fæmstu læknavísindamenn og lifkveikjufræðingar hafa að und anförnu lagt fram mikilvægan skerf til aukinnar þekkingar á eðli og útbreiðslu þessa snikju sýkils, er t.d. talið að þriðja hver manneskja fullorð'in gangi með hann í blóði sínu. | ^ifkveikja þessi nefnist „toxo plasma" og er örsmá prot- ozoa eða einfrumungur, tvö hundraðasti hluti úr mm að stærð. Fæstir verða nokkurra óþæginda varir, þegar sníkjusýk illinn kemst í blóð þeirra, aðrir dálítillar vanlíðunar. En toxo- plasman getur Iíka valdið alvar legum sjúkdómum, beinlínis eða óbeinlínis. Cníkjusýkill þessi fannst fyrst á árunum 1905-‘06 í blóði nagdýrs nokkurs af afrískum uppruna, sem mjög hefur verið notað í sambandi við allskonar liffræðilegar tilraunir í rann- sóknarstofum. Um svipað leyti fannst hann í kanínum í Brazi- líu. Eftir það var ekkert á hann minnzt um alllangt skeið. Ijað var ekki fyrr en árið 1939 sem hann komst aftur á dagskrá. Þá komust þrir kunnir bandarískir vís- indamenn að raun um að sníkjusýkillinn átti sök á því að nokkur böm fæddust blind eða með sjúkleika í heila, sem olli að þau urðu vangefin, því að myndazt höfðu andefni í blóði þeirta gegn honum. 'C’kki ber þó að skilja þetta þannig, að toxoplasmað sé hin eina orsök þess að börn fæðast vangefin eða blind, en dr. Sabin prófessor, sem frægur er fyrir serum það, er hann fann gegn lömunarveikinni, hef Sendiferðir Piltur eða stúlka óskast nú þegar hálfan eða allan daginn. LUDVIG STORR, Laugavegi 15 EINBÝLISHÚS Höfum til sölu mjög gott og fallegt einbýlis- hús í Akurgerði, sem er kjallari, hæð og ris. 1 risi eru 3 herb. og eldhús. Á 1. hæð eru 2 herb. og bað. í kjallara eru 2 herb. og geymsla. Ræktuð lóð. TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR Austurstræti 10. 5. hæð. Sími 24850. Kvöldsimi 37272. Veggfesting Loftfesting Mælum upp Setjum upp llndof9«»u 25 simi 13743 ur haldið rannsókn þremenning anna áfram og sannað að oft er það þessi sníkjusýkill sem á sökina. Barnið sýkist fyrir það að móðirin hefur tekið sýkil- inn — yfirleitt án þess að verða þess vör — svo skömmu áður en meðgöngutím'inn hóst, að hafj tekið sýk'ilinn nýverið, er bólga í lymfukirtlum aftan á hálsi, í handarkrika eða nára. Þó er ekki öruggt, að þau ein- kenni komj fram, en geri þau það, geta þau haldizt í ár eða jafnvel lengur, en hverfa svo sjálfkrafa, þegar andefni hefur Yfirlæknir Jorgen Chr. Siim giiö tíuiíini andefnið í blóði hennar var ekki orðið nógu sterkt til að sigrast á honum. « Tjá hefur rannsókn og leitt í ljós, að sníkjusýkill þessi eigi og tíðum sök á fósturláti, og eru öll líkind'i til, að ef svo væri ekki, mundu fæðast enn fleiri böm vangefin eða blind 'af völdum hans. Helztu einkenni þess að fullorðin manneskja myndazt í blóðinu, nægilega sterkt til að sigrast á sýklinum Á sér oft stað að viðkomandi óttast að um berkla eða jafnvel krabbamein sé að ræða, en þeir geta nú huggað sig við, að þessi kvilli er t’iltölulega meinlaus — nema þegar hann kemur fram hjá þunguðum konum. Tpn jafnvel þær þurfa ekki að óttast þennan sníkju sýkil framar. Danski visinda maðurinn dr med. Jörgen Chr. Slim, yfirlæknir við ser umstofnun danska rfkisins og forseti hinnar alþjóðlegu nefndar, sem hefur umsjá með toxoplasmarannsóknum, segir virkt lyf gegn sýklinum þeg- ar fundið. Er það blanda af lyfi gegn mýraköldu og sulfa lyfjum. Og innan skamms sé þess að vænta að unnt verði að framleiða öruggt serum gegn toxoplasma. V JJvernig taka menn þennan sníkjusýkil? Rannsóknir virðast leiða í ljós, að hann ber ist ekki frá manni til manns, heldur úr dýrum í menn. Og hann hefur ekki einungis fund izt í blóði húsdýra, heldur og villtra — jafnvel í blóði grinda hvala, sem veiðzt hafa í Fær- eyjum. Fólk getur viðhaft tak- markaðar varúðarráðstafanir, til dæmis að láta húsdýr ekki sleikja bert hörund sitt. Eink um ættu þungaðar konur að forðast að koma nálægt þeim Þá getur og stafað hætta af hráum eggjum og meðhöhdlun á hráu kjöti og eru húsmæður því líklegri til að taka sníkýtsýk ilinn en karlmenn. Hins vegar lifir sýkillmn hvorki af suðu né frystingú. TJannsókninni á útbreiðslu, eðli og afleiðingum toxo- plasmans heldur áfram í vís- indastofnunum víða um heim, og eflaust á margt merkilegt eftir að koma þar í Ijós. Al- þjóða heilbrigðismálastofnunin er nú aðili að þeirri vís’inda- starfsemi, ásamt mörgum öðr- um alþjóðlegum vísindastofnun um. Kári skrifar: Tj’inn af íbúum Hamrahlíðar hefur skrifað okkur bréf um málefni sem fle’iri hafa gert að umræðuefni í bréfum og virðist vera nokkur ásteytingar- steinn margra manna. Þessi íbúi Hamrahlíðar segir svo frá að árið 1962 hafi hann og fleiri fengið þar lóð og byggt sér hús Allir aðrir sem fengu lóð á þess um tíma reistu hús sín að stutt- um tima liðnum að einni undan- tekningu þó. Á einni lóðinni voru byggingaframkv. ekki hafnar. Og enn, þremur árum seinna, er þar ekkert hús risið! Lóðin er í megnasta óstandi, meðan aðrar lóðir hafa verið settar í stand. 1 fyrra var plata hússins steypt en síðan ekki söguna meir. Sár í landið Bréfritarinn bendir á að þessi vanhirta lóð sé eins og sár í Iandið inni á millj húsanna og spyr hvort engin takmörk séu fyrir því hve langur tími megi líða frá því mönnum er úthlut að lóð og þar til þe’ir verði að hafa byggt á henni. Alla vega ættu ekki fleiri ár að líða i því efni. Fólkið og opinberar skrifstofur Þá hefur okkur borizt annað bréf frá lesanda sem segir: Ég hef oft velt því fyrir mér hvort opinberar skrifstofur séu til fyr- ir fólkið eða fólkið fyrir þær. Að minnsta kostj gæti maður oft haldið að hið síðarnefnda væri rétt. Þær virðast ekki gera miklar tilraunir til þess að laga sig eftir þörfum og aðstæðum borgaranna. Ég tek sem dæmi Sjúkrasamlagið. Þangað koma þúsundir manna á dag erinda sinna. En hvernig er afgreiðslutíma þessarar stofn unar háttað? Hún lokar portum sínum fyrir okkur kl. 4 e.h. Má ég nú spyrja. Hvernig eigum við sem vinnum til kl 4.30 eða 5 að koma fram erindum okkar við þessa stofnun? Hvers vegna getur hún ekki haft opið til kl. 5 eins og fyrirtæki og margar aðrar skrifstofur gera? Mér er spurn. Hér hafa bankarnir hagað sér skynsamlegar. Þeir eru famir að hafa opið til kl. 6 eða 7 á kvöldin. En hvað á annars svona afgreiðslutími, eins og er hjá Sjúkrasamlaginu, að þýða? Ljúfir starfsmenn Flugfélagsins Þá hefur okkur borizt bréf frá konu sem nýkomin er úr ut anlandsferð. Hún segir: „Ég get ekki látið hjá líða í þessu bréfi að minnast á það hve afbragðs góð fyrirgreiðsla starfsmanna Flugfélagsins var bæði í Glas gow og Kaupmannahöfn. Ég þurfti mikil samskipti að hafa við þá og á aðstoð að halda. Þeir brugðust hvergi en stóðu sig með miklum ágætum. Það er mikils virði fyrir eitt at- vinnufyrirtæki að hafa svo á- gætt fólk í þjónustu sinni. Það ber hróður íslands víða. Og nákvæmlega hið sama get ég sagt um flugfreyjurnar mínar elskulegu. Þær voru elsku legheitin sjálf við mig og aðra farþega. Það var e’ins og maö ur væri kominn heim til sin að sitja í vélinni milli landa.“ Okkur er mikil ánægja að birta þetta bréf, því oftar er hitt að við fáum pistla sem inni halda gagnrýni og athugasemd ir um það sem betur mætti fara

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.