Vísir - 04.10.1965, Qupperneq 9
9
VÍSIR . Mánudagur 4. október 1965.
i mi iwi iimimbb—a—wmaaaw—M—im—O
Margt athyglisverðra bóka
á markaðinum í haust
jfl Margt athyglisverðra bóka
r verður á bókamarkaðnum I
haust að því er Vísir hefur
fregnað. Hefur blaðið leitað upp
lýsinga hjá ýmsum útgefendum
og fara frásagnir nokkurra
þeirra hér á eftir. Til annarra
hefur ekki náðst, en skýrt verð
ur frá útgáfu þeirra síðar. Þá
eru enn aðrir sem ekki eru enn
tilbúnir með upplýsingar og
$j teija sig ekki geta sagt á þessu
stigi hverju þeir koma á mark-
aðinn í haust.
Winston Churchill.
SKUGGSJÁ
Olver Steinn bókaútgefandi í
Hafnarfirði skýrði Vísi frá
helztu Skuggsjár bókum í ár.
Meðal þeirra má nefna „Churc
hill og stríðið" eftir brezkan
mann, Gerald Pawle, hörku-
spennandi bók um afskipti
Churchills af heimsstyrjöldinni
seinni, hemaðaráætlunum og
stríðsrekstrinum í heild. Það
verður 26 arka bók, prýdd fjölda
mynda.
Guðmundur G. Hagalín sendir
frá sér seinna bindið af endur
minningabók Haraldar Böðvars-
Halla Link'er.
Anna Borg.
sonar útgerðarmanns á Akra-
nesi.
Eftir frú Jakobínu Sigurðar-
dóttur er væntanleg skáldsaga
„Dægurvísa". Oliver sagði að
þetta væri afburða góð saga og
myndi koma mjög á óvart meðal
skáldsagna á bókamarkaðnum
í ár.
Gunnar M. Magnúss skrif-
ar bók um ísland og atburðarás
fyrri heimsstyrjaldarinnar._ Hún,
heitir sáma' náfni frá f Ýýrra .ÍÁr-
in sem aldrei gleymast“.
„Islenzk ævintýrabrúður" er
Guðm. G. Hagalín.
heiti á nýrri feðabók eftir Höllu
Linker.
Þá gefur Skuggsjá út endur-
minningar Önnu Borg leikkonu.
Sú bók kom á s.l vetri út á
dönsku, en birtist hér í þýðingu
Áma Guðnasonar magisters
Nýtt smásagnasafn kemur út
eftir Elínborgu Lárusdóttur, er
hún nefnir „Svipmyndir".
Fimmtíu menn skrifa afmælis
bók um Hafstein Bjömsson mið-
il sem varð fimmtugur í fyrra.
Eru þetta ýmist kveðjur til Haf
steins eða lýsing á fundum þar
sem hann hefur verið miðill.
Bókin heitir „Leitið og þér mun
uð finna“.
Eftir Ólaf Tryggvason á Akur
evri er væntanleg bók um Dul-
ræn efni, er nefnist „Hugsaðu
upphátt". Auk þessa mun Skugg
sjá gefa út eitthvað af þýddum
skáldsögum o. fl.
SETBERG
Sextán bækur verða gefnar út
x ár sagði Arinbjöm Kristins-
son forstjóri, þar af meiri hlut-
inn sem ætlaður er bömum og
unglingum
Stærsta bókin af þeim sem
ætlaðar em fullorðnum er ævi-
saga Churchills eftir Thorolf
Smith. Áður hefur Setberg gef-
ið út ævisögur heimsfrægra
manna og hefur sá bókaflokkur
orðið sérstaklega vinsæll. Þ. á.
m. eru tvær ævisögur sem Thor-
olf Smith hefur skrifað, ævisög-
ur þeirra Lincoln og Kennedy
Thorolf Smith.
BáijPdáritk^föfsétá.' Bókin' verðúr'
á 4. hundráð sfðiir með á 2.
hundrað myndum.
Af öðrrnn Setbergsbókum í
ár má nefna bók eftir Jónas
Þorbergsson á Laxamýri, sem
hann nefnir „Ljós yfir landamær
in“ en það er áratuga kynni
höfundarins af dulrænum fyrir
bæmm Þetta verður 300 bls. bók
og myndskreytt.
Syeinn Sæmundsson blaðafull
trúi skrifar frásagnir af þrek-
raunum sjómanna við strendur
Islands f sambandi við skips-
strönd og sjóslys. Það eru sam
tals 14 þættir frá ýmsum ámm.
Bókina nefnir Sveinn „í brim-
garðinum". í henni verður tals-
vert af myndum.
Frú Sigríður Thorlacius hefur
tekið að sér að skrifa endur
minningar Maríu Markan söng
konu eftir frásögn hennar sjálfr
ar. Það er hreinskilin frásögn
og skemmtileg, sem nær allt frá
María Markan.
Vilhjálmur S Vilhjálmsson.
bamæsku söngkonunnar og
fram til þessa dags.
Þá má ennfremur geta endur-
útgáfu á minningabók Eyjólfs
á Dröngum „Kaldur á köflum“
sem Vilhjálmur S. Vilhjálmsson
tók saman fyrir nokkmm árum.
Hún seldist upp í einni svipan
og hefur verið ófáanleg síðan.
Loks er þýdd skáldsaga eftir
Selmu Lagerlöf en hinar Set-
bergsbækumar em allar ætlaðar
yngri kynslóðinni.
BÓKAÚTGÁFA, ODDS
BJÖRNSSONAR Á AKUREYRI
Þar erú margar bækur á döf-
inni, bæði fyrir unglinga og og
fullorðna. Af skáldritum má
nefna skáldsögu eftir Eirík Sig
urbjömsson „Kirkjan í hraun-
inu“ sem fjallar um Skaftárelda
Ármann Kr. Einarsson.
að vissu leyti og afleiðingar
þeirra, tvær skáldsögur eftir
Ingibjörgu Sigurðardóttur,
„Feðgamir á Fremra-Núpi“
og „Sjúkrahússlæknirinn"
unglingasögu eftir Ármann Kr.
Einarsson „Óli og Maggi á is-
jaka“. Saga eftir Ingibjörgu Jóns
dóttur „Jóa Gunna“, ljóðabók
eftir Sigurð A. Friðþjófsson
„Næturljóð“ o. fl.
Eftir áramótin er væntanlegt
á markaðinn mikið rit um „Bú
fjárfræði" eftir Gunnar Bjarna-
son 700 bsl. bók að stærð með
f jölda mynda og línurita. Það er
nýmæli um þessa bók að hún
verður gefin út í lausum blöð-
um, og er tilgangurinn með því
Davíð Stefánsson.
sá að geta skipt um blöð í
henni eftir þörfum í framtíðinni.
HELGAFELL
Það náðist ekki í Ragnar Jóns
son útgéfanda en Vísir átti tal
við Böðvar Pétursson fulltrúa
hans í bókaútgáfunni. Böðvar
sagði að ýmsar bækur, sem í
undirbúningi væru myndu verða
að bx'ða fram á næsta ár sökum
anna. Veigamesta ritið sem
Helgafell gefur út í ár, er heild-
arútgáfa á ritum Davíðs Stefáns
sonar f 6 bindum, ljóð, leikrit,
sögur, ritgerðir og allt sem
birzt hefur á prenti eftir hann
áður. Aftur á móti verður ekkert
tekið með f ritsafnið af óprent
uðum ljóðum eða ritverkum
hans.
Til umræðu hefur komið að
gefa út heildarútgáfu á ritum
Arnar Amarsonar (Magnúsar
Stefánssonar). Þá eru þrjár
skáldsögur ungra höfunda í und
irbúningi „Orgelsmiðjan“ eftir
Jón frá Pálmholti, „Borgarlíf“
eftir Ingimar Erlend Sigurðsson
og ónefnd skáldsaga eftir Jó-
hannes Helga. Þá er nýkomið út
ritgerðarsafn eftir Laxness „Upp
haf mannúðarstefnu". Ekki er
von á neinni listaverkabók frá
Helgafelli í ár sagði Böðvar að
lokum.
KVÖLDVÖKUÚTGÁFAN "
í haust gefur Kvöldvökuút-
gáfan út bók um Davíð Stefáns
son skáld, sem ýmsir samstarfs
menn, vinir eða aðdáendur
skáldsins skrifa, jafnt konur sem
karlar. Eru í hópi þeirra ýmsir
þjóðkunnir höfundar og mennta-
menn. Þetta verður stór bók og
myndskreytt.
Síra Sveinn Víkingur er að
skrifa ævisögu sína og kemur
fyrsta bindi hennar á vegum
Kvöldvökuútgáfunnar í haust.
Síra Sveinn er mikill gáfumaður
og segir skemmtilega frá, mun
mörgum þykja forvitnilegt að
lesa þessa bók, enda líkleg til
að vekja óskerta athygli. Bókin
nefnist „Myndir daganna" og
verður myndskreytt.
Þá er í vændum ljóðabók eft-
ir Braga Sigurjónsson banka-
stjóra á Akureyri „Ágústdagar".
Bragi Sigurjónsson.