Vísir - 04.10.1965, Side 16
varð á
Ríkharður hryggbrotinn —
brotið ekki alvarlegt
| „Ég var mjög feginn þegar ég
; sá hvers eðlis meiðsli Ríkharðar
voru“, sagði sjúkrahússlæknirinn á
Akranesi Páll Gíslason, er Vísir
jhafði samband við hann í morgun.
En Ríkharður Jónsson meiddist í
: baki i úrslitaleik íslandsmótsins á
i Laugardalsvellinum i gær.
„Það kom i ljós að Ríkharður
l er hryggbrotinn", sagði Páll, „en
Fremst er bíllinn, sem árekstrinum olli, en aftan til vinstri á myndinni er leigubfllinn, og sést hversu
gersamlega hann er lagður saman að aftan. Fólksvagninn er bak við R-16810. (Ljósm. Vísis B.G.)
Páll páfí til New York / morgun —
ávarpar AllsherjarþingiB í kvöld
; þetta er ekki mjög slæmt brot þar
j sem sjálf hryggsúlan brotnaði ekki
heldur þvertindur. Líðan Rfkharð-
: ar er að sjálfsögðu slæm eins og
alltaf er þegar um slík brot er
að ræða, því að verki frá hrygg-
broti leiðir um allan likamann".
„Hefur þetta einhver áhrif á
fyrra bakmein Ríkharðax?"
„Nei, sem betur fer. Þegar ég
frétti að Rikharður hefði meiðzt í
baki var ég mjög hræddur um áð
það gæti staðið í sambandi við*«aa
haft áhrif á fyrra bakmein hans„en
svo er sem betur fer ekki, þvf að
það hefði verið slæmt. Þetta brot
er ekki mjög alvarlegt og á alveg
að geta gróið og bakið að verða
jafn gott á eftir. Rildiarður verð-
ur hér á sjúkrahúsinu fyrst um
sinn og verður frá vinnu í nokkr-
ar vikur — og leikur ekki meira í
haust“.
Það var ömurleg aðkoma á
Langholtsvegi móts víð húsið
nr. 159, er blaðamaður Vísis
kom á staðinn aðfaranótt laug-
ardagsins, nokkrum minútum
eftir að fjórir bílar höfðu lent í
árekstri og sex manns slasazt
þar af einn til bana, Steinar
Riehard Elisson, Langholtsvegi
i 159.
Aðrir sem slösuðust voru kona
Steinars heitins, Aðalheiður
EÍIfsdóttir, en þau hjón voruir,
bæði farþegar í leigubifreiðinni
R 1982, ennfremur meiddist
flest í bifreiðinni R 16810, þrír
piltar og ein stúlka, en ekkert
þeirra alvarlega.
Það var R 16810 sem olli allri
ógæfunni, en henni var ekið
með ofsalegum hraða aftan á
R 1982 með þeim afleiðingum
að sú síðamefnda kastaðist lang
ar leiðir og hafnaði á hlið-
inni. En tveir aðrir bílar höfðu
þá einnig orðið fyrir barð-
inu á þessum árekstri og voru
allir meira og minna skemmdir
á eftir.
I R 16810 voru þrír bræður,
20 ára sá yngsti, 22ja ára og
25 ára gamlir, allir dauðadrukkn
og auk þess ein stúlka. Þeg-
ar lögreglan kom á staðinn neit-
uðu þeir að skýra frá hver ekið
hefði og a. m. k. einn þeirra
var mjög örðugur við lögreglu
og lækna í slysavarðstofunni.
Voru piltamir úrskurðaðir í 60
Framh. á 6. síðu.
B*BSIelö8g»r 4. öRtðber I965
Fullum sólarhring fyrir komu ifór fólk að safnast saman á gang- fagna honum við komuna, en hvar-
Páls páfa VI til New York-borgar I stéttum gatnanna þar til þess að ■ vetna er litið á hana sem einstæð-1
an merkisviðburð. Tilgangurinn ■
með ferðinni er að stuðla að friði
í heiminum. í New York dvelst páfi [
fullan sólarhring. ávarpar Allsherj :
arþing Sameinuðu þjóðanna og ræð
ir við Johnson Bandaríkjaforseta og
kemur í Sankti Patreks dómkirkju.;
Við burtförina sagði páfi, að til-;
gangurinn með ferðinni væri að i
hvetja, og blessa starf allra manna, i
sem af velvild og skilningi ynnu í;
þágu friðarins. Kvaðst hann vona |
að geta haft áhrif á heimsleiðtoga j
í þessu efni. Heimurinn biður um j
frið, sagði hann, heimurinn þarfnast j
rriðar og krefst friðar.
Páfi sagði, að allar fjandsamleg- j
ar aðgerðir harvetna í heiminum
Framhald á bls 6
Uf í Surtsey að hitta menn
geimferðarstofnunarinnar
„Ég vll miklu heldur skondra
mér undan bombu, en bera þennan
hjálm“, — en þrátt fyrir þessa
skoðun hafði Sigurður Þórarinsson
sett upp franskan kvikmyndatöku-
mannahjálm og Stelngrímur Her-
mannsson farlð að dæmi hans. í
morgun fóru þeir með flugvél
Landhelgisgæzlunnar út í Surtsey,
þar sem þeir áttu stefnumót við
menn frá geimferðastofnun Banda-
rikjanna. Ætluðu þeir síðan að
stiga á land á Syrtlingi og gera á
honum rannsóknir. Kvað Sigurður
þetta líklega vera um 90. ferð sína
í Surtsey. Með þeim á myndinni
eru Bjöm Jónsson flugmaður og
Borghreinn Þorsteinsson flugvirki.
Rangar sögusagnir
um líkfund og morð
Undanfarna hálfa aðra viku hafa
verið sögusagnir á kreiki í bænum
um, að lík hafi fundizt af manni í
Fossvogi, og hafi áverkar á líkinu
bent til þess að ekið hafi verið á
manninn og hann síðan grafinn í
moldarbing. Hámarki náðu þessar
sögur um helgina. Vísir hefur aflað
sér þeirra upplýsinga hjá rannsókn-
arlögreglunni, að hér sé um fleipur
eitt að ræða. Staðfestl yfirmaður
rannsóknarlögreglunnar Sveinn
Sæmundsson, að ekkert slíkt mál
hefði komið til rannsóknarlögregl-
unnar né nein vitneskja um slíkt
mál, og eru þessar sögusagnir því
algerlega bomar til baka.
Veitingamenn faro utan
Milli 30—40 manna hópur hótel- og veitingamanna frá íslandl fór
í gær til Kaupmannahafnar til þess að kynna sér ýmsar nýjungar á
tækja- og tæknisviði i sínu fagi, en dagana 1.—10. október er haldin
í Fomm — sýningarsalnum í Kaupmannahöfn mikil og fróðleg alþjóðleg
sýning á sviði veitinga- og gistihúsastarfsemi. Myndin er af hluta af
hópnum er hann gengur um borð I Sólfaxa.