Vísir - 18.11.1965, Síða 2
„Stjömunwr" fá frí frá
félögunum vegna landsleiks
Fyrirliði Fálkans tekur við verðlaunum sínum frá Albert Guð-
mundssyni, en fyrir aftan þá er Árni Ágústsson.
Strákamir í Hafnarfirði ásamt Albert Guðmundssyni, Arna Ágústssyni og Bergþóri Jónssyni, en
þeir tveir síðarnefndu hafa starfað mjög vel að málum hinna yngstu i Hafnarfirði.
Skotar leggja allt upp úr leiknum við Itali og Englendingar aðstoða
Sjaldan eða aldrei hefur annað eins gengið á í Skotlandi vegna landsleiks í knattspymu
sem nú, — og kalla Skotar þó ekki allt ömmu sína í þessum efnum. Leikurinn, sem allt
snýst um nú er hinn erfiði og örlagariki leikur við ítali á Sao Paulo-vellinum í Napólí 7.
desember n. k.
Markið sem John Greig h. bakvörður skoraði á elleftu stundu í leiknum á Hampden Park
fyrir nokkrum dögum hefur gjörbreytt hinum íhaldssömu skoðunum Skota á knattspyrnu-
málunum. Þar hefur það verið viðurkennt að félagslið sé mikilvægara leikmanni en lands-
lið og því skuli félagsliðið alltaf sitja í fyrirrúmi.
Sigríður Sig. fyrirliðd Vais og Þórarinn Eyþórsson formaður hand-
knattleiksdeildar félagsins.
Valur og norsku
meistararnir saman
Umsóknarfrestur um þátttöku í;
Evrópubikarkeppni í handknatt-
leik kvenna er nú liðinn og taka
13 lið þátt í keppninni. Af þessum
13 þjóðum verða 10 að leika und-1
anleiki, en átta lið verða með I j
aðalkeppninni.
Danska liðið HG sleppur við
undirbúningsleikina og sama er
um liðið Spartacus frá Ungverja-
landi að segja og auk þess þriðja
liðið, sem enn er ekki vitað hvert
er.
Vitað er að Noregur mun keppa
við ísland í keppninni, en það eru
Valsstúlkumar, sem keppa fyrir
okkar hönd í keppninni. Segja
dönsku blöðin, að óttazt hafi verið
að HG mundi lenda gegn ísl.
stúlkunum. Óttinn stafaði af því
hversu kostnaðarsamt það er að
senda lið til íslands.
Þetta hefur breytzt eftir þennan
leik. Nú er það landsliðið sem
skiptir öllu máli, og félagsliðunum
hefur verið þokað burtu og félög-
in sjálf tekið mjög vinsamlega af-
stöðu í þessu máli. Þetta er á-
stæðan til þess að laugardaginn 4.
desember n. k. munu skozkir
landsliðsmenn ekki vear með í
leikjunum í deildarkeppninni með
félögum sínum. Félögin vita að
þau geta tapað dýrmætum mörk- ■
um, dýrmætum sigrum og dýrmæt-
um stigum, sem vissulega gætu
kostað þau þúsundir sterlings-
punda
í Englandi hefur sama afstaða
verið tekin. Þar leika margir beztu
landsliðsmenn Skota og allir fá
þeir frí um þessa helgi og hvíla
sig fyrir hin miklu átök. Alls eru
þetta 17 leikmenn og Celtic hefur
gefið hinum snjalla framkvæmda-
stjóra sínum Jack Stein 10 daga
frí til að einbeita sér að landslið-
inu og verkefni þess.
Skozka landsliðið fær ágætt
tækifæri til að reyna sig n. k. mið-
vikudag á Hampden Park gegn
Wales og er eingöngu litið á þann
leik sem æfingaleik fyrir hin stóru
átök og án efa munu Italir senda
marga menn til að „gleypa i sig“
allt sem þar verður sýnt, en þá
mun Denis Law, dýrasti leikmaður
Bretlandseyja verða með skozka
liðinu, en hann var settur út úr
því fyrir síðasta leik við ítalina
vegna meints agabrots.
Úrslit eru nú kunn í flestum
riðlum HM . Aðeins er ólokið
keppni í 16. riðli milli S.-Kóreu,
N.-Kóreu og Ástralíu, í 1. riðli
þar sem útlit er fyrir að Búlgaría
og Belgia verði jöfn að stigum
með 6 stig hvort og þurfi því að
leika aukaleik á hlutlausum velli.
Þessi lið eru nú búin að tryggja
sér sæti meðal 16 þjóða á HM í
Englandi næsta sumar: Brazilía
(heimsmeistaramir), England
(gestgjafarnir) og fara þessi lið
beint í úrslitin án leikja í undan-
keppninni, Þýzkaland, Frakkland,
Portúgal, Sviss, Ungverjaland,
Spánn, Uruguay, Chile, Argentína,
Mexíkó.
Vinni Skotar leikinn á Ítalíu 9.
des. fara þeir i úrslitin, en verði
jafntefli verða liðin að leika
aukaleik á hlutlausum velli.
, strákakeppn-
ir i HAFNARFIRÐI
RíkharBur þjálf-
ari Keflvíkinga?
Það voru aldeilis kræsingar
sem ungu hafnfirzku drengjun-
um var boðið upp á í boði í
Alþ.húsinu í Hafnarf. á sunnud.
Þeir sem buðu voru Albert
Guðmundsson og Axel Krist-
jánsson í Rafha, en í hófinu
afhentu þeir sigurvegurum í
strákakeppnum verðlaunabik-
ara mjög veglega með ágröfn-
um nöfnum félaganna, sem
unnu.
Strákamót þessi fóru fram
bæði í vor og haust og vann
strákafélagið Sprettur fyrra
mótið, en seinna mótið vann
Fálkinn. Er mikið líf í þessum
litlu félögum, sem starfa al-
gjörlega óháð hinum stærri
félögum, Haukum og FH. 1
fyrra mótinu tóku þátt fjögur
félög, Sparta, Spyrnir, Sprettur
og Fálkinn, öll með a- og b-
lið, en í seinna mótinu kepptu
þrjú þessara félaga, Sparta,
Sprettur og Fálkinn, en tvö ný
lið komu inn í keppnina, Geysir
og Elding.
Keflvíkingar hafa boðið Rík-
harði Jónssyni þjálfarastöðu hjá
sér í vetur og næsta sumar.
Fregnaði blaðið þetta og hringdi
til Ríkharðs.
„Jú, það er rétt. Hafsteinn
Guðmundsson kom að máli við
mig eftir leikinn okkar gegn
Val og bauð mér starf sem þjálf-
ari liðsins. Ég hefði nú satt að
segja helzt viijað einbeita mér að
strákunum á Akranesi og þjálfa
þá, en þeir eru þjálfaralausir sem
stendur Ennþá hef ég ekki tek-
ið neina afstöðu til málsins“.
Ríkharður er nú nýlaus við
gifsumbúðimar og kvaðst vera
stirður og slappur. „Ég held ég
æfi eitthvað í sumar, en varla
með keppni fyrir augum, — þ. e.
a. s. ég ætla mér það alla vega
ekki“, bætti hann við.
Aðtrilfuifdur G.R.
Aðalfundur Golfklúbbs Reykja-
víkur verður haldinn í kvöld,
fimmtudag, í fundarsal Hótel
Sögu og hefst kl. 20.15.
Dagskrá: Venjuleg aðaifundar-
störf og iagabreytingar.
Á eftir aðalfundinum verða
sýndar litskuggamyndir frá golf-
námskeiðinu á Grafarholtsvellinum
s.l. vor o. fl.