Vísir - 18.11.1965, Blaðsíða 3
V í S IR . Finfcntudagur 18. nóvember 1965.
•■£v85.. — - —rv—- .-r-SBHðBMHiWBBBmi
í
☆
Meðan tízkusýningar Diors
stóðu yfir i ágúst var út-
búin skemmtileg — og nyt-
samieg — auglýsing fyrlr
ilmvatnið „Miss Dior“, sem
ætti að vera íslenzkum kon-
um kunnugt. Á framhlið
hússins var komið fyrir
geysistórri ilmvatnssprautu
sem úðaði ilmvatni út yfir
götuna. Flakkarar Parísar
kunnu vel að meta þetta og
komu þarna á morgnana og
úðuðu hár sitt — eða skalla.
Og frúmar sendu vinnukon
urnar út með lökin og sæng
urverin, því að „Miss Dior“
ilmur í skápunum er sko
ekki amalegur.
-
Marc Bohan
saumuð hjá Dior. Kona Bohans
lézt mjög voveiflega fyrir nokkr
um árum.
Þegar „verk meistaranna“ f
París eru afhjúpuð tvisvar á ári,
síðsumars og síðla vetrar eru
uppi fótur og fit hjá kvenþjóð-
inni um heim allan og fella þær
þá óspart dóma sína á verkin.
Þótt þeir séu oft harðir, þá
gera tízkukóngarnir ekki til-
raun til að verja sig — enda
ástæðulaust. En hvað finnst
þeim sjáifum um kvenfólkið og
harðstjóra þess er tízka nefn-
ist? Það væri fróðlegt að vita
og því skulum við heyra álit
Marc Bohans á nokkrum atrið
um varðandi þessa hluti.
TÍZKA
— er skilgreining á og svarið
við hinni undirmeðvituðu þörf
HLUTVERK MITT
állt ég fyrst og fremst vera að
reyna að kenna konunni að
þekkja sjálfa sig. Það er ekki
nóg að sauma föt sem em í
tízku — en þvi miður finnst
viðskiptavinunum oft að svo
hljóti að vera.
EIGINLEIKA ÞÁ
sem nauðsynlegir eru FOR-
STJÓRA TlZKUHÚSS, er mjög
erfitt að sameina. Hann verður
að vera listamaður og kaupmað
ur, handverksmaður og diplo-
mat — allt í senn. Um leið vei'ð
ur hann að geta hlaupið f skarð
ið fyrir hvern af sfnum starfs
mönnum sem er. Ég get t.d. mát
að, sniðið og saumað, En auð-
að hef ég ekki hið frábæra
handbragð saumakvenna
minna.
Eitt það versta sem Marc
Bohan segist eiga við að stríða
er öfundsýkin f garð hans:
Þið getið ekki ímyndað ykk
ur hve mikil öfundsýki er til í
„tfzkuheiminum". Ég má ekki
hitta neina af „viðskiptavinkon
um“ mfnum meira en aðra, því
að þá verða hinar öfundsjúkar
og halda að ég sé að gefa við-
komandi konu góð „ráð“. — Ég
held að ég sé einn af þeim fáu
mönnum á jörðinni, sem konur
hafa enga samúð með.
Nafnið DIOR hefur sérstakan
hljóm í eyrum kvenna um allan
heim. Enda ekki að furða þótt
svo sé, þar sem tízkuhús
Chrístians Dior er hið stærsta
og frægasta í heiminum í dag.
í Frakklandi og öðrum löndum
heims vinna alls um 800 manns
fyrir tízkuhúsið, en þegar það
var stofnað fyrir 17 árum var
starfsfólk þess 10 sinnum færra,
eða 85.
Sá sem tók við stjórn tízku
hússins er Dior Iézt er Marc
Bohan og hefur hann stjómað
því síðan af mlklum myndar-
brag.
Marc Bohan fæddist í París
árið 1926. Þegar hann var dreng
ur langaði hann til að verða
listmálari Skólabækurnar hans
vom alltaf fullar af teikning-
um, en er hann stækkaði hneigð
ist hugur hans einkum að fata
teikningum. Móðir hans, sem
var saumakona, hvatti hann ein
dregið til að fara út á braut
tízkuteiknunar og er hann hafði
lokið stúdentsprófi hóf hann
nám í tízkuteiknun. Hann var
ekki nema 19 ára þegar fyrstu
föt hans voru sýnd. Síðan fór
hann' frá einum tízkufrömuðin
um til annars þar til hann varð
hægri hönd Diors og tók alveg
við rekstri tízkuhússins árið
1961.
Þeim tíma sem Bohan ver
ekki í tízkuhúsinu við vinnu
sína ver hann með dóttur sinni,
Anne Marie, en hún er 10 ára
og augasteinn föður síns. Að
sjálfsögðu eru öll henar föt —
meira að segja undirfötin líka
— teiknuð af föður hennar og
— ef triín má orðum Marc iohun
forstjóra Dior-hússins
konunnar á að fá fyllingu í lff
sitt. Hún fylgir alveg ákveðn
um reglum sem ekki verður
komizt hjá. Og samkvæmt þess
um sömu reglum kemur ein
tfzka í kjölfar annarrar.
SKÖPUN TÍZKUNNAR
— það eru ekki tízkuhúsin sem
skapa tízkuna, þ. e. tízku árs-
ins. Það eru blöðin sem ráða
henni því að þau vilja fá á-
kveðna tízkustefnu. Og þetta
er eiginlega svarið við spurn-
ingu sem alltaf er verið að
spyrja mig að, nefnilega: En
hvað eiga allar þær konur að
gera sem ekki geta klæðzt sam
kvæmt tízkulínu ársins?
Nú þar sem tízka ársins er
ekkert nema auglýsingabrella
þá er þetta vandamál ekki til.
Þegar nýju fötin koma fram
að loknum tízkusýningunum á
hver kona að geta fundið eitt
hvað við sitt hæfi.
GLÆSILEG KONA
er kona sem eltir ekki tízkuna,
þ. e. eltir hana ekki eins og
þræll hennar væri. Það er kona
sem þekkir sjálfa sig, veit hvað
fer henni vel, hvað hún á helzt
að hylja og hvað hún á að draga
fram. Öruggasta merkið um
glæsil. er að manni líður vel f
fötunum sínum og klæðir sig
eftir því hvað maður er að
gera og hvar maður er. Að
fvlgja tizkunni, án þess að taka
tillit til persónuleika síns verð
ur alger andstæða glæsileikans.
☆
Hann Dior, eða réttara sagt
tfzkuhús Diors gefur ekki
framleiðslu sfna. Kjólverð er
nokkuð mismunandj allt frá
ca. 40 þús. ísl. kr. upp f
100 þúsund, og aðrar vörur
þá f samræmi við það. Við-
skiptavinir Diors eru því rík
ar hefðarfrúr, kvikmynda-
stjörnur og konungsbornar
konur. Meðal viðskiptavin-
anna er Soffía Loren. í
haust þegar nýja tízkan kom
hjá Dior, þessi tízka sem
Marc Bohan segir vera blekk
ingu, keypti Soffía hvorki
meira né minna en 30 pör
af skóm — og má þó reikna
með að hún hafi átt nokkur
pörin fyrir. Hún ætlar sér
ekki að ganga berfætt þenn-
an veturinn.
JÍZKAN í Ár ER BLEKKING