Vísir - 13.12.1965, Blaðsíða 6

Vísir - 13.12.1965, Blaðsíða 6
VÍSIR . Mánudagur 13. desember 1965. .2 MBOK VÖRÐUÐ LEIÐ TIL LÍFSHAMINGJU BALDVTV Þ. KBISTJÁNSSON íslenzkaSi Dr. Norman Vincent Peale er einn frægasti prédikari Ameríku fyrr og síðar — í sjónvarpi, útvarpi og kirkju. Hann er og heimsfrægur rithöfundur, bæði af bókum sínum og sem ritstjóri. „VÖRÐUÐ LEIÐ TIL LÍFSHAMINGJU" er ein hans frægasta bók. Hún er einhver mesta metsölubók, sem um getun á 4. milljón eintaka hafa selzt í heimalandinu, þar sem hún var árum saman efst á metsölubókalista — og hefir verið þýdd á fjölda tungumála; seldist m. a. upp í 2. útgáfu á skömmum nútímamanna og skýrt frá lífi þeirra tíma í Danmörku á þessu ári. og starfi. Kaflar úr þessari óviðjafnanlegu metsölubók hafa verið endurprentaðir í dagbíöð- um, tímaritum og bæklingum — og endursagðir í sjónvarpi, útvarpi og á ótal- mörgum mannfundum — og efni bókarinnar lagt til grundvallar rökræðum á nám- skeiðum og í skólum. Bókin sýnir okkur á einfaldan og raunhæfan hátt, hvílíkum undraverðum árangri er unnt að ná einfaldlega með því að stjórnast ávallt af óbugandi bjartsýni og jákvæðri hugsun. Það er ekki ofmælt, að þessi bók hafi oröið miklum fjölda manna um heim allan hjálp og örugg leiðsögn til lífshamingju. BÓKAÚTGÁFAN LINDIN SF. ADALUMBOÐSSALA BÓKABÚÐ NORDRA Jólahreinsunin er í fullum gangi. — Komið með fatnaðinn, þér fáið fljóta og góða afgreiðslu. EFNALAUGIN HEIMALAUG Sólheimum 33 Sími 36292. ltölsku hjálmhúfumar komnar (prjónað), svart, hvftt og brúnt. Hattabúðin HULD Kirkjuhvoli Sjötugur í dog: Jón Gunnarsson skrifstofustjóri 1 dag verður sjötugur Jón Gunnarsson, skrifstofustjóri, hann er fæddur f Reykjavík, foreldrar hans voru Gunnar Bjömsson, skó- smiður og Þorbjörg Pétursdóttir. Jón brautskráðist úr Verzlunar- skóla íslands árið 1917. Réðist til Hlutafélagsins Hamar við stofnun þess 1918. Skrifstofustjóri þess síðan og meðeigandi frá 1924. Einn af stofnendum Steindórs- prent h.f., og stjómarformaður um hríð. í skólaráði Verziunarskóla ís- lands frá 1931—’38. í stjóm Verzl- unarskólahússins h.f. frá 1936— ’38. Einn stofnenda Stálsmiðjan h.f. og Jámsteypan h.f. og í stjórn þeirra frá 1959. Endurskoðandi Slippféiagsins í Rvík h.f. 1960. Meðstofandi Landkynning h.f. og stjómarformaður frá 1960— 1962. Endurskoðandi Steinullar f Hafnarfirði. Einn af stofnendum Hamarsbúðar h.f. f Reykjavík og í stjóm frá 1960. í stjóm viku- blaðsins Vikan h.f. í nokkur ár. 1955 stofnaði Jón Lionklúbbinn Fjölni og var fyrsti formaður hans. 1 stjóm Geðvemdarfélags Islands og ennfremur f stjóm Alliance Francaise. Árið 1932 kvæntist Jón Ásu Þorsteinsdóttur og eiga þau 3 dætur: Helgu Þorbjörgu stúdent, Emu Guðlaugu gift Magnúsi Marteinssyni framkv.stjóra og Eddu gift Ólafi Briem fulltrúa. Árið 1958 sæmdi forseti franska Iýðveldisins Jón riddaraorðu Chevalier de L’Ordre du Merite Maritime. Þegar við, sem emm á svipuðum aldri og Jón Gunnarsson, fæddir og uppaldir f þessum bæ, lítum um öxl, gæti verið margs að minnast, en það, sem kemur frani í huga mér á sjötugsafmæli hans, framar öðru, er að hann var einn þeirra mörgu drengja gömlu Reykjavíkur, sem studdir af heiðvirðum, fátækum foreldrum. bmtu sér braut af dugnaði og brennandi áhuga, og urðu mikils metnir borgarar, i sínum verka- hring og á sviði félagsmála, og virtir að verðleikum. — Persónu- lega vil ég í dag færa Jóni Gunn- arssyni þakkir fvrir lörig og góð kynni. A. Th. AÐALFUNDUR Aðalfundur Vestfirðingafélagsins verður 16. desember n. k. kl. 20,30 í Tjarnarbúð uppi. Venjuleg aðalfundarstörf. Byggðasafn Vest- fjarða, Vestfirðingabók, Nýir félagar teknir inn, Skemmtiatriði: Karl Guðmundsson leik- ari les upp. Anna Þórhallsdóttir spilar á lang- spil. Vestfirðingar fjölmennið á fundinn, kaffi drykkja. Stjómin. ÍSIAND - RÚSSLAND Síðari landsleikurinn í handknattleik fer fram í iþróttahúsinu í Laugardal í kvöld mánudaginn 13. des. kl. 20,15. Dómari Hans Carlsson frá Svíþjóð. Aðgöngumiðar seldir í bókaverzlunum Lárusar Blöndal í Vesturveri og við Skólavörðustíg og í íþrótta- húsinu frá kl. 18.00. Verð aðgöngumiða: Fullorðnir kr. 125,00, böm kr. 50,00. Lúðrasveit Reykjavíkur leik- ur frá kl. 19.45. Kaupið miða tímanlega. — Forðizt biðraðir. Handknattleikssamband fslands.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.