Vísir


Vísir - 10.01.1966, Qupperneq 3

Vísir - 10.01.1966, Qupperneq 3
V IS I R . Mánudagur 10. janúar 1986, 3 Magnús Guðjónsson setur leiðslur í eina af 10 lyftum, sem verða í byggingunni í þeim álmum, sem nú eru komnar. Þtssi lyfta er fyrir 21 mann og tekur 1600 kíló. Hamarshögg, drunur í loftbor, hávaði, sem fylgir mörgum mönnum, sem vinna að smíði stórbyggingar, allt þetta renn ur saman f glymjandi hljóm- kviðu, þegar gengið er um ganga Borgarspítalans þar sem verið er að fullbúa þær álmur spítaians, sem fyrst verða tekn ar i notkun. Þegar er áætlað að röntgen deild, sem er á þrlðju hæð álm unnar. sem gengur í norðaustur frá turni Borgarspítalans verði tekin í notkun f byrjun apríl og að byggingarframkvæmdir við þriðju áimuna, sem verður i framhaldi af almennu sjúkraáim unni, sem snýr í suðvestur, hef j ist á þessu ári. Gengur fram haldsálman í vestur frá tumin um. Eins og byggingin er nú er gert ráð fyrir 206 sjúkrarúmum, sem verða f hinni sjö hæða sjúkraálmu og f hinni álmunni en á sex hæðum hennar verða einnig ýmsar sérdeildir og rann sóknarstofur. í kjallara þelrrar álmu verður véiahús og kyndistöð, á fyrstu hæð, rannsóknarstofur og mein fræðirannsóknir, á annarri hæð, slysavarðstofa og skrifstofur, á þriðju, röntgendeild, fjórðu hæð skurðstofur og sótthreinsun fyr ir öll tæki spftalans, á fimmtu hæð, skurðstofur ásamt svæf ingarherbergjum og á sjöttu hæð, svæfingardeild og yfirvök unardeild eða það sem á erlend um málum nefnist „intensive care.“ Farið er upp á sjöundu hæð almennu sjúkraálmunnar f 21 manns lyftunni, en á sjöundu hæðinni verður farsóttardeild sjúkrahússlns með 25 rúmum. Em herbergi deildarinnar eins, tveggja, fjögurra og sex manna herbergi og fylgir snyrting hverju þeirra. Þegar er mikið til búið að mála herbergln og flísa lagning á snyrtiherbergjum er langt komln. Eldhúsinnréttlngar eru einnig komnar viðast. Fyrir komulag farsóttardeildarinnar er hannii; að hægt er að loka af nokkrum hluta gangsins, ef þörf krefur vegna smithættu, ef farsótt kemur upp. Á neðri hæðum almennu sjúkraálmunnar er geðdeild á annarri hæð þeirri þriðju, fjórðu og fimmtu, slysa- og handlækn ingadeildir og á sjöttu og sjö undu. lyflækningar. 1 kjallara og á fyrstu hæð eru eldhús. — í tuminum, sem allar álmumar tengjast við verða vaktherbergi lækna og hjúkrun arliðs auk setustofu og bóka- Össur Andrésson við eina af stærstu hurðum á röntgen- deild, hurðin er um 200 kíló á þyngd vegna blýsins, sem er til einangrunar. sáfna og deild fyrir orkusjúk- dóma. Á göngum álmanna vom hlað ar af handlaugum, salemlsskál um, loftræstingarrömm og öðm, sem verið var að koma fyrir. í röntgendeildinni var verið að leggja leiðslur og ganga frá ein angmn á dyraumbúnaði. Mikið af tækjakosti deildarinnar var þegar kominn og var verið að rífa upp kassana og taka fram teekin. Gangur röntgendeildar- innar er 59 m. á lend sitt hvor- um megin vlð hann eru rann- sóknarstofur og önnur herbergi deildarinnar. Gert er ráð fyrir Framh. á bls. 6. Hjalti Jónsson var að setja flísar á eitt skólaherbergjanna. Karl Ormsson raftækjavörður tekur upp eitt af mörgum færanlegum röntgentækjum, í kössunum eru röntgenlampar.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.