Vísir - 01.03.1966, Qupperneq 1
VISIR
1. marz 1966. — 50. tm.
Nýja tollareglugerðin gengur í gildi í dag
í dag gengur i gildi reglugerö
um tollfrjálsan farangur ferða-
manna og farmanna við komu til
landsins.
Vísir átti stutt viðtal við toll-
gæzlustjóra Unnstein Beck í
morgun um þessa breytingu.
Kvað hann þetta vera í fyrsta
skipti, sem af ráðuneytisins
hálfu hefðu verið gefnar út á-
kveðnar reglur um það hvað
ferðamenn megi hafa með sér
við komu til landsins, og hafi
þetta verið nokkuð í lausu lofti
hvað ferðamenn snertir, en hvað
farmenn varðaði voru ákveðnar
reglur í gildi.
Tollgæzlan gat ekki auglýst
um þetta ákveðnar reglur, en
hér sem annará staðar varð ekki
komizt hjá að veita ferðamönn-
um nokkrar ívilnanir, annað
hefði leitt til óþæginda og orðið
Framhald á bls. 6.
AMr vegir tepptir á Austurlandi
1 gær og í dag er bjart og gott
veður á Austurlandi þar sem hef-
ur kyngt niður snjó alla sl. viku.
Eru allir vegir ófærir vegna fann-
fergis, ýtur hafa verið notaðar til
mjólkurflutninga, sem hafa gengið
tregt og snjóþunginn hefur sligað
niður og brotið þök á útihúsum
á m. k. tveim stöðum. Segja má
að sambandslaust sé að mestu
mxlli sveita og jafnvel bæja á
Austurlandi og ef snjókoman
heldur áfram sem fyrr, má búast
við að mikil vandræði skapist f
sambandi við flutninga á nauð-
svnjavörum og olíu til upphitunar.
Alla s.l. viku hefur gengið á með
byljum og hlóðst mikill snjór ofan
á þann sem fyrir var og var hann
J>ó mikill. Eru hús f Egilsstaða
kauptúni núna nær á kafi í snjó
eða þær hliðar þeirra þar sem
skafrenningurinn hefur hlaðið upp
skafla. Fyrir snjóakaflann í síðustu
viku má segja að vegir hafi nokk-
um veginn verið færir og hafði
jafnóðum verið rutt af þeim.
Mynduðust við það mannhæðarháir
ruðningar sitt hvorum megin við
vegina. Núna hafa vegimir aftur
fyllzt af snjó, og er vonlaust
að moka honum frá. Standa veg-
imir eins og þeir væru hlaðnir
upp úr hvítri flatneskjunni í kring.
Einu farartækin eru ýtumar, sem
notaðar em við mjólkurflutning-
ana, en mjólkin er höfð á sleðum,
aftan í ýtunum og svo dráttar-
vélar bænda, sem belti hafa verið
sett á.
Hefur oft tekið langan tfma að
flytja mjólkina og hefur hún verið
gaddfrosin, þegar á áfangastað,
Egilsstaðakauptún var komið. Tók
það t.d. tvo sólarhringa fjrir ýtu
að flytja mjólk úr Hjaltastaða-
þinghá, sem er um 40 km. frá Eg-
ilsstöðum og var mjólkin gadd-
freðin og ónýt, þegar komið var
með hana.
Snjóþunginn hefur verið það
mikill að sligað hefur niður útihús.
í síðustu viku féll niður þak fjár-
hússins á Skeggjastöðum í Jökul-
dal en ekki sakaði neina
skepnu. 1 gær brotnaði svo þak á
fjárhúsinu f Grænuhlíð f Hjalta-
staðþinghá sökum snjóþyngslanna
og drápust 7 kindur.
Þótt segja megi að ófært sé inn-
an héraða á Austurlandi hafa flug-
samgöngur að mestu levti verið í
lagi og hafa venjulegar áætlunar-
ferðir verið flognar þar á meðal
tvær f síðustu viku. Hefur tekizt
að ryðja af flugvellinum jafnóðum.
Á sunnudag var fannfergið hins
vegar það mikið að ekki var fært
frá Egilsstöðum til flugvallarins
á bíl'.
Vegimir niður á firðina eru al-
gjörlega tepptir, en reynt hefur
verið að halda uppi samgöngum
með snjóbílum og hefur snjóbíll
alltaf gengið yfir til Reyðarfjarðar
Framhald á bls. 6.
ÍSALÖG í
SKERJA-
FIRÐINUM
Einn geimfaranna sem heimsóttu
Islaud fórst / flugslysi í gær
hér á Innnesjum eru orðin
æðimikll. Ekki hefur frostið bó ver
ið mjög mikið að jafnaði, en sam-
fellt í langan tfma. Nú er svo kom-
ið að allir vogar inn úr Skerjafirði,
Fossvogur, Kópavogur og Amar-
If vogur em lagðir og fshellan var
|| byrjuð að færast út cftlr Skerja-
.íftíiMS f,r8inum- ísnum var -bó Wst svo
I að hann væri ótraustur. í dag er
því spáð að veðráttan breytist,
útlit fyrir rigningu og þíðu svo
að segja í fyrsta skipti á þessu ári.
Myndin sem hér birtíst var tekin
f gær f Fossvoginum, og er þar allt
stokkfreðið og bátar á landi sem
ekki komast á sjó.
Þessi mynd va rtekin í sumar af Charles Bassett, þegar hann var
að skoða steinategundlr í Ódáðahrauni s.l. sumar.
í júlímánuði s.I. sumar komu
ellefu bandariskir geimfarar í
heimsókn hingað til lands, til
þess að venja sig við dvöl á
tunglinu með því að kynnast
hinu versta apalhrauni Ódáða-
hrauns. íslendingar fengu þá
tækifæri til að kynnast mönn-
um, sem búast má við að verði
frægir gelmkönnuðlr á næstu
ámm. Hétu fslenzkir frétta-
menn þvf, að þeir skyldu fvlgj-
ast með þessum mönnum i
fréttunum á næstu árum.
Og nú er sá fvrsti þeirra
kominn í fréttimar, en með
öðrum hætti en búizt var við.
Hann heitir Charles Basset og
f gær fórst hann ásamt öðmm
geimfara. Þeir létu þó ekki lifið
í geimflugi eða tunglferð, heldur
í venjulegu flugslysi í Miðríkj-
um Bandaríkjanna.
Bassett og félagi hans Elliott
See sem einnig fórst höfðu
verið valdir til að fara f geim-
ferð saman með Gemini 9 sem
á að skjóta á loft í sumar. En
í gær voru þeir að fljúga tveir
saman á lítilli flugvél frá
Houston f Texas til St. Louis
við Missisippi-fljót. Lending
mistókst o^ þeir fórust báðir.
Charles Bassett var 35 ára
gamall og var rafmagnsfræð-
ingur að menntun. íslenzkir
blaðamenn sem hittu geimfar-
ana voru flestir sammála um
það að Bassett hefði verið einna
geðþekkastur af þeim, sem í
hópnum voru. Hann var mjög
laglegur maður, viðfelldinn og
greindarlegur og fróður, sér-
staklega um allt sem að geim-
vísindum laut. Hann lýsti þvf
fyrir blaðamönnum hér, að
hann teldi, að yfirborð tungls-
ins væri ekki ólíkt því sem
sums staðar hefði borið fyrir
augu í Ódáðahrauni, sérstak-
lega þar sem gjall og vikur var,
en hann taldi - líklegt að jarð-
eldar væru í tunglinu og eld-
gígir
Eftir að tilkynning var gefin
út um flugslys þetta, var jafn-
framt skýrt frá þvf, að vara-
menn þessara tveggja myndu nú
fara í Gemini geimferðina
næsta sumar. Þeir sem valdir
Eugene Cernan, einn af ís-
landsförum hefur verið vallnn
til ferðar með Gemlnl í sumar.
hafa verið eru Eugene Ceman
og Thomas Stafford. Stafford
er þegar þekktur af fyrri geim-
ferð sinni. Cernan er hins veg-
ar enn einn úr hópi þeirra, sem
komu til íslands í sumar. Hann
er 32 ára og einnig rafmagns-
verkfræðingur að menntun.