Vísir - 01.03.1966, Side 9

Vísir - 01.03.1966, Side 9
V í SIR . Þriðjudagur 1. marz 1966, 9 Viðtal v;ð Sigurð iónsson verksmiðjustjóru í verksmiðjum Fiskiðj- unnar s.f. í Keflavík er þessa dagana unnið með fuilum afköstum dag og nótt. Og verksmiðjan myndi naumast hafa und an, ef ekki kæmi gæfta leysi annað veifið svo að Það rýkur úr öllum fjórum skorsteinum verksmiðjunnar. UnniB er allan sólarhrínginn að loðnu- bræðslu í fískiðjunni sJ. í Kefíuvtk v, bátarnir komast ekki á sjó. Það er loðnan, sem skapar þessa miklu vinnu £ verksmiðj- unum, en þar að auki bræða þær líka fiskbein og fiskúr- gang. — Áður bræddu verksmiðj- umar síld, auk fiskbeina, en nú er loðnan komin í staðinn, sagði Sigurður Jónsson verk- smiðjustjóri þegar blaðamenn frá Vísi hittu hann að máli í bækistöðvum sínum í verk- smiðjunni fyrir skemmstu. — Hvernig stendur á því að þið eruð hættir að bræða síld? — Hún er hætt að veiðast hér við Faxaflóann, sagði Sig- urður. Það veit enginn hvernig á þessu stendur, en hún sést alls ekki orðið. Síldveiðin hér í flóanum hefur farið minnkandi frá ári til árs og í fyrra var alger aflabrestur á síld. Ef til vill hefur hún verið ofveidd. þannig að það vanti vissa ár- ganga, eða þá að hún leitar á nýjar stöðvar. Það er ekki gott að segja. — Hafið þið þá enga síld brætt á s.l. ári? — Ekki Faxasíld svo teljandi sé. En það var bvrjað á þvi að flytja síld hingað á Faxaflóa- hafnir frá Austurlandi s.l. sum- ar. — Gafst það fyrirkomulag vel? — Já, að mestu leyti. í fyrra var stpfnað sérstakt félag sem Akurnesingar, Hafnfirðingar, Njarðvíkingar, Keflvíkingar og Sandgerðingar voru aðilar að. Það leigði tvö síldarflutninga- skip, sem voru stöðugt £ förum af austursvæðinu og fluttu sfld- ina til skiptis á viðkomandi Faxaflóahafnir. Þetta gaf á ýmsan hátt góða raun og mynd aði starfsgrundvöll hjá verk- smiðjunum á meðan flutning- amir stóðu yfir, einkum siðari hluta sumars. Sildinni var dælt úr bátunum upp i skipin, en gallinn var sá að sömu dælur vom svo notaðar til að dæla úr síldarflutningaskipunum, og það var helzt til tafsamt. Þar verður að gripa til annarra ráða ef síldarflutningar halda áfram í áþekkri mynd milli lands- hluta. — Og núria er loðnan komin í staðinn fyrir síldina? — Já þetta er £ rauninni ný atvinnugrein sem ekki hefur þekkzt áður í þessari mynd. En hvað sem því liður hefur loðnu- vinnslan skapað aðal rekstrar gmndvöll undir rekstur síldar- verksmiðjanna á útmánuðum síðustu árin. Sérstaklega þó í fyrra og svo aftur núna. — Hvenær kom fyrsta loðn- an til vinnslu hjá ykkur í vetur? — Þann 9. febrúar var henni fyrst landað hjá okkur og fjór- um dögum síðar tók verksmiðj- an til starfa. Hún kom viku fyrr upp að landinu £ ár heldur en í fyrra. — Hvað leggja margir bátar upp loðnu hjá ykkur að stað- aldri sem stendur? — Þeir hafa verið fimm, sem landa nokkum veginn reglulega hjá okkur, en það kemur fyrir að aðrir bátar leiti öðm hvom til okkar einhverra ástæðna vegna, og þá tökum við að sjálfsögðu á móti þeim líka. — Finnst bátunum ekki nokkuð langt að sigla alla leið vestur fyrir Reykjanes með loðnu sem þeir veiða við Vest- mannaeyjar? — Jú, þegar mikil veiði er, er þetta mjög tafsamt. Þess vegna hafa bátamir tekið upp þann háttinn að landa loðnunni í Grindavfk. Fyrir bragðið kom- ast bátamir samdægurs út á miðin aftur. En aflinn er flutt- ur á bílum frá Grindavík til Keflavíkur. — Hafið þið undan að bræða þrátt fyrir þessa miklu loðnu- veiði, sem hefur verið undan- farið? — Já, við höfum það með því að vinna með fullum afköst- um allan sólarhringinn. Við höfum geymslur £ tveimur þróm fyrir um það bil 40 þúsund tunnur, og þær hafa enn ekki fyllzt, enda hafa komið land- legudagar annað veifið og þá dagana söxum við á. — Hvað eru afköstin mikil á dag hjá ykkur? — Þegar við höfum gott efni til vinnslu bræðum við 3—4 þúsund tunnur á sólarhring. — Hvað áttu við með gott efni? — Loðnan þarf að meirna áður en hún er brædd, helzt 7— 10 daga. Þá er gott að vinna hana, en verra miklu ef hún er ný. Þetta er allt öðru vísi held- ur en með síldina. Þar skipör engu í bræðslu hvort hún er ný eða ekki. — Þið starfrækið tvær verksmiðjur? — Já. Önnur þeirra er búin aö starfa í fjöldamörg ár, og nú eru beinin brædd í henni. En svo var ný verksmiðja byggð og hún tók til starfa 1962. í henni fer öll loðnu- og síldarbræðslan fram nú orðið. Annars er hægt að bræða loðnu og sild í þeim báðum ef þörf krefur. — Er alltaf nóg að gera fyrir beinabræðsluna? — Það er nú eins og á það er litið. Það má e. t. v. segja, að það sé jafnari og öruggari starfsgrundvöllur fyrir hana, þvi hún hefur yfirleitt hráefni Framhald á bls. 6. Síldin hefur brugðizt en loðnan komið í staðinn

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.