Vísir - 01.03.1966, Side 4

Vísir - 01.03.1966, Side 4
4 V í S IR . Þriðjudagur 1, marz 1966. Sjötugur / dag: Heigi Tryggvason bókbindari Mér barst frétt um bað seint í fyrrakvöld að einn góðkunningi minn, sem mér sýnist reyndar allt af, þegar ég sé Hann, vera fimmt- ugur, yrði sjötugur í dag. Maður- inn er Helgi Tryggvason bókbind- ari. Ég trúði þessu ekki og trúi reyndar ekki enn, og mér þykir ekkert líklegra en ég sé að gera einhverja bölvaða vitleysu með því að minnast á Helga sem sjötugan mann í dag. Ég reyndi að vísu að leita staðfest- ingar á þessari váfrétt i hinum beztu heimildarritum, eins og „Hver er maöurinn“ og „íslenzkir samtíðarmenn“, en í hvorugri er Helga getið frekar en hann væri ekki og hefði aldrei verið til. Þessi leit mín varð þvi ekki til annars en að fá staðfestingu á því að þesái tvö höfuðheimildarrit um samborg arann í dag gegna á engan hátt því hlutverki, sem þeim er ætlaö að gegna — að þau eru vond rit. Helgi Tryggvason yrði í röð fyrstu manna sem ég myndi setja þar á blað, ef ég hefði ritstjóm slfkra ævisagna með höndum. Þetta síðasta, sem ég hefi sagt, segi ég engan veginn út i bláinn, því mér finnst að Helgi Tryggva- son hafi haft einstæðu menningar hlutverki að gegna sem íslenzk þjóð og islenzk menning fá honum seint full þakkaö. Helgi hefur á vissan hátt gegnt áþekku hlutverki í þágu íslenzkrar samtiðamenning ar sem Árni Magnusson vann ís- lenzkri menningu á sfnum tíma. Árni safnaði og varðveitti íslenzk handrit vegna þess að hann sá fram á óhjákvæmilega glötun þeirra í höndum Islendinga á þeim árum. Helgi Tryggvason hefur um ára tuga skeið gegnt tilsvarandi hlut- verki. Á þeim árum sem íslending ar eru að rísa upp úr sárustu fá- tækt kreppuáranna og flytja í ný og betri húsakynni en áöur, þá voru þessi nýju húsakynni svo fín að ekkert gamalt rusl mátti inn í þau koma. Gömul blöð og bækur, á- samt öðrum fornmenjum skyldu grotna niður og fúna í gömlu torf bæjunum eöa útihúsunum, eða þá brennd á báli. En þá er það sem Helgi Tryggvason tekur sig til, spyr uppi gömul blaðaræksni sem fólk vill ekki hirða eða bókagarma meira og minna gallaöa og ó- heila, safnar þessu öllu saman, og DANIELÓLAFSSON OG CO.H.F. VONARSTRÆTI 4 SÍMI 24150Í hættir ekki viö fyrr en hann fyll- ir eitt eintakið af öðru, — þaö oft af hinum sjaldséöustu blöðum og bókum. Það eru örugglega engar ýkjur þótt fullyrt sé að Helgi hafi : á starfsferli sínum aukið bóka- og | blaðaeign landsmanna svo tug- milljónum króna verðmæta nemur, verðmæti sem annars heföu alger- lega farið í súginn og aldrei oröið nokkrum manni að liði né eign. Um þétta starf Helga er óþarft að fjölyrða. Samt vildi ég benda á að það hefur, enn sem komið er, ekki verið metið að þeim veröleik- um sem skyldi og almenningur ger ir sér engan veginn fulla grein fyr- ir hvílíku menningarhlutverki hann hefur gegnt, né heldur fyrir þeim | óhemju verðmætum sem hann hef- i ur bjargað frá algerri glötun, og i reynt eftir beztu getu að koma til manna sem kunna að meta þau og helzt hafa með þau að gera. Eigi einn maður orðu skilið fyrir starf- semi sína í þágu menningarinnar þá er þaö Helgi Tryggvason. Þau orð sem hér eru skrifuð, eru ekki í þeim tilgangi að rekja ævi- feril Helga. Mér er hann með öllu ókunnur, að öðru leyti en því að ég veit að hann á afbragðs konu og mannvænleg börn. Helgi ber og merki lífshamingju í öllu fasi sínu og svip. Góðlátleg glettni og kýmní Iýsilr sér úr svip hans hvar sem maður mætir honum, og hennar gætir í ríkum mæli í viðræöum við hann. Fáir menn hafa reynzt mér jafn notalegir í viðkynningu og ég fagná því ósjálfrátt í hvert skipti, sem ég á þess kost að sjá framan í Helga og rabba við hann. Því miður er Helgi of eftirsóttur maður og upptekinn til að maður fái að njóta slíkra stunda oft. Njóti hann svo allrar giftu á kom andi árum og komandi starfsferli og megi a.m.k. til hundrað ára ald urs halda áfram að bjarga íslenzk um menningarverðmætum frá glö.t- un. — Þ. Jós. Farið skyldi vadega í sameiningu prestakalla Ályktun Kirkjuráðs Blaðinu hefur borizt eftirfarandi ályktun Kirkjuráðs 24. febrúar 1936 um endurskoðun prestakalla- skipunar. „Með tilliti til þeirrar endurskoð- unar á prestakallaskipun landsins sem nú er á dagskrá, Ieyfir Kirkju ráð sér að benda á, að sh'k endur skoðun getur ekki haft önnur eðli- leg rök en þau að gera kirkjunni auðveldara fyrir um að gegna sínu mikilvæga hlutverki í þjóðlffi nú- tímans. Veröur þá að hafa í huga, að kirkjan fái aukið svigrúm og bætta aðstöðu, í samræmi við kröf ur tímanna. Sameining prestakalla getur komið til greina þar, sem að- stæður hafa tekið miklum breyting um á síðari árum, en jafnan verður þó viö slíkar skipulagsbreytingar að miða við það, að nauösynleg þjónusta verði ekki óhæfilega erf- ið og kostnaðarsöm, ella eru litlar vonir til að menn fáist til þess að þjóna slíkum köllum. Þá þarf og að gæta þess, að hlutur afskekktra og strjálbýlla byggða verði ekki fyrir borö borinn. Þá ber jafnhliða að gefa gaum að því, að ýmsir mik ilvægir þættir f kirkjulegu starfi, sem kalla að f þjóðlffi nútímans, hafa hingað til oröið útundan vegna 'þess að kirkjuna skortir starfslið til þess að sinna þeim. Má þar nefna sálgæzlu á sjúkrahúsum, i fangelsum og meðal manna, sem tekið hafa út fangelsisdóm og þarfn ast endurhæfingar. Kirkjulegt starf fyrir sjómenn er og næsta lítið og eru Islendingar í því efni stórum Aðalfundur Byggingarsamvinnu- félags verkamanna og sjómanna var haldinn s.i. fimmtudagskvöld. Formaður félagsins Guðmundur Guðmundsson setti fundinn og skýrði frá framkvæmdum félags- ins. I smíðum eru nú á vegum þess 38 íbúðir við Reynimel. I félaginu eru nú 340 félagar. Það hefur sótt um lóðir undir fjölbýlishús í Foss- ■MMftSW sinnulausari en nokkur kristin siglingaþjóö. Síðast en ekki sfzt ber að minnast þess, að æskulýðs- starfsemi kirkjunnar þyrfti mjög að aukast og til forgöngu í því þarf kirkjan fleiri sérmenntaða starfs- menn. Hefur Kirkjuráð í því sam- bandi einkum í huga leiðbeininga- starf fyrir sjálfboðaliða víösvegar í söfhuðum landsins, svo og starfsemi meðal stúdenta og skólaæskunnar." vogi og Breiðholtslandi og ráðgerir að byggja á næsta ári um 60 fbúðir, ef lóðir fást. I stjórn félagsins eru: Guðmund- ur Guðmundsson formaður, Axel Guðmundsson ritari, Guðmundur Sigurjónsson gjaldkeri, meðstjóm- endur Guðjón Sigurðsson og Mey- vant Meyvantsson, f varastjórn Haraldur Sumarliðason, Stefán Gunnlaugsson og Guðjón Hansson. Aðolf. Byggingarsamvinnu> I fél. verkamanna og sjómanna VÖRÐUR — HVÖT — HEIMDALLUR — ÓÐIHN SPILAKVÖLD Sjálfstæðisfélaganna í Rvk n.k. miðvikudagskvöld kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu SJÁLFSTÆÐISFÓLK Ávarp kvöldsins: SÆKIÐ SPILAKVÖLDIN Sverrir Guðvarðarson, stýrimaður. Happdrætti og glæsileg spilaverðlaun. Byrjað að spila kl. 20,30 stundvíslega. Kvikmynd: „Jökulheimar á Grænlandi“ Húsið opnað kl. 20,00. með íslenzku tali. Sætamiðar afhentir í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins á venjulegum skrifstofutíma. SKEMMTINEFNDIN.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.