Vísir - 18.03.1966, Page 3

Vísir - 18.03.1966, Page 3
V í S I R . Föstudagur 18. marz 1966. iniiiiiiiiiMniiiiiiiniiiiiiiBiiiiwiiiiwi— iiiiii K' . Þær sýna meðal annarra þjóðbúninga frá ýmsum löndum. Frá vinst ri Hildur Jónsdóttir í sari, Liv Þorsteinsson í búningi frá Telemark, Róshildur Georgsdóttir sem spönsk senorita, Sigríður Ágústsdóttir í finnskum þjóðbúningi, Elsa Haraldsdóttir í peysufötum, Eygló Ein- arsdóttir í sænskum búningi, Ninna Jónsson í færeyskum og Edda H jálmarsdóttir í frönskum og eru rósirnar handmálaðar á silkið. Svartur möttull fóðraður með rauðu silki fylgir búningnum sem Ninna sýnir hvemig á að bera svo a« öll dýrðin sjáist. Næsta sunnudag verður hinn árlegi kaffidagur kvenskáta að Hótel Sögu. Meö kaffinu verö- ur heimabakað bakkelsi, börn- in geta fengið lukkupoka, happ drætti verður og ýmis skemmti atriði. * Myndsjáin brá sér eitt kvöld ið heim til Hermanns Ragnars danskennara og Unnar konu hans, aðstoðarfélagsforingja að Rauðagerði 10 og var þar til- stand mikið. Spönsk senoríta með hrafnsvart hár speglaði sig í einum speglinum, indversk yngismær tifaði eftir ganginum í sínum sari og smáfríð frönsk sveitastúlka dáðist að búning- um staUsystra sinna frá Norð- urlöndumim. Á kaffideginum verða sem sé þjóðbúningar frá ýmsum lönd- um. — Alls um tóif eða þrettán búningar, sagði Unnur, og eru þeir flestir handunnir. Við feng um marga lánaða frá sendiráð- unum og íslenzku búningana frá Þjóðdansafélaginu svo að þeir eru alveg ekta. ¥ — Ég var skáti í gamla daga í Noregi, sagði Liv Þorsteinsson sem hefur veriö búsett hérna í nokkur ár og sýnir mjög falleg an norskan þjóðbúning, sem hún hefur unnið algerlega sjálf. Búningurinn hennar Liv er sams konar og konur bera í Telemark eða Þelamörk einu héraðinu í Noregi og er útsaum urinn gamalt rósamuwitur svipað því sem málað var á kistulokin Búningnum hennar Liv fylgir stuttur jakki, sem hún hefur einnig saumað sjálf. í gamla daga. Liggur mikil vinna í öllu bróderíinu og var Liv eitt ár að vinna búninginn. Annar búningur, sem getur ekki verið meira ekta er bún ingur Ninnu Jónsson, sem er færeysk í húð og hár þótt hún sé búin að vera búsett hér á islandi í tuttugu ár á hausti komanda. * — Blússan er handprjónuö og hitt er ofið segir Nlnna, og í sylgjunni á beltinu, sem er úr silfri er mynd af hval, skutli og öörum þeim tækjum, sem notuð eru við grindardráp og hér í þessum prjóni eru táknin fyrir trú, von og kærleika eins og þau eru skorin út á altarisgrind urnar í kirkjunni heima í Kvi- vik í Færeyjum. Táknin eru mis munandl eftir kirkjum, en gömlu konurnar gengu ekki í útsaum- uðu hversdags, seglr Ninna að lokum. — Kaffidagurinn er haldinn til fjáröflunar fyrlr minningar- sjóð Guðrúnar Bergsveinsdóttur og hafa undanfarin ár verið keypt húsgögn fyrir væntanlegt skátaheimili fyrir á^ððann. I ár rennur ágóðinn hins vegar í væntanleg hverflsheimili skát- anna, segir Ingibjörg Berg- sveinsdóttir. Vinna að kaffi- deginum gamlar skátastúlkur, þær styrkja þetta þó þær séu ekki lengur starfandi skátar. * Að lokum má svo geta þess um kaffidaginn að aðgöngumiö- ar veröa seldir í anddyri Hótel Sögu á morgun kl. 2-4 og verða borð tekin frá um leiö. Elsa Haraldsdóttir er bara maddömuleg í peysufötunum, en fleiri íslenzkir búningar verða sýndir á kaffideginum.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.