Vísir - 18.03.1966, Qupperneq 11
;
........... ..............................................................Illl |",)IIII II ■ IIHM ■ —————i | ni—IWMMn II ———-
Handbolfa í Danmörku:
Danir hafa valið
l.o gegn íslandi
Danir hafa nú valið endanlega
landslið sitt, sem leika á 3. apríl
í Laugardalshöllinni við ísland í
heimsmeistarakeppninni í hand-
knattleik. Er liðið þannig skip
að:
Erik Holst, Aarhus KFUM,
Ole Sandhöj, Skovbakken, Gert
Andersen, HG, Jörgen Petersen,
HG, Ame Andersen, Efterslægt-
en, Klaus Kaae, Aarhus KFUM,
Ove Ejlertsen, Ajax, Max Niel
sen, MK 31, Ivan Christiansen,
Jan Wichmann, Ajax, Jörgen
Peter Hansen, Tarup.
Nokkm eftir heimkomuna til
Danmerkur leggur danska liðið
upp f ferð til Rússlands og er
það talsvert breytt lið, sem fer
þá ferð, — örugglega velkara en
það sem við mætum, en það er
vegna þess að allir sterkustu
menn Dana hafa ekki möguleika
á að fara, en í staðinn hafa ver
ið teknir sterkir leikmenn, sem
hafa fjöldamarga landsleiki að
baki og fara þessa ferð í verð-
launaskyni, er þar á meðal Mort
en Petersen, markvörður Ajax,
sem hér keppti eitt sinn og
Morgens Cramer frá Helsingör.
HG vann um siðustu helgi
Danmerkurtitilinn eins og við
mátti búast, en sigurinn vannst
í fremur ljótum leik gegn Aar-
hus KFUM með 15:12 og fékk
HG 32 stig í 18 lelkjum ,en KF
UM 28 stig. Þriðja varð Ajax
með 22 stig.
ÚR VALSLIÐ FJÓNS TIL ÍS-
LANDS 0G GRÆNLANDS!
... og hér sýnir Cristine sem
sagt framleiðslu fyrirtækis sfns
og fylgdu þær upplýsingar með
myndinni að ekkert væri vitað
um málin á stúlkunni, en bolt
arnir væru 27 þumlungar að um
máli.
Nægur efniviður í sundinu
Ánægjulegt sundmót unga fólksins i gær
Urvalslið frá Fjóni mun leika hér
á landi f júh'byrjun við knattspymu
menn okkar og kemur hingað á
vegum KRR. Er þetta f fyrsta sinn,
sem úrvalslið frá Fjóni gistir ís-
land, en oft áður hafa úrvalslið frá
Sjálandi og Jótlandi komið hingað.
Það var ekki fyrr en FBU fékk
svar frá B 1909 um að leikmenn
frá því liði fengjust til fararinnar
að jákvæð svör bárust. Munu leik
imir fara fram hér í Reykjavík, að
öllum líkindum 3, og einn á Akur-
eyri.
Þá hafa forráðamenn FBU mik-
inn áhuga á að fara til Godthaab
á Grænlandi og leika þar og er ekki
ósennilegt að síðasti leikurinn á
íslandi fari fram að lokinni Græn
landsför liðsins, en ferðalagið á
að taka 12 daga.
Það verður mikið af heimsóknum
í sumar eins og kunnugt er og eru
Keflvíkingar t.d. með þýzkt lið í
júlí og Dundee United kemur hing
að á vegum Fram. Þá er Akranes
að reyna að fá hingað enskt lið,
Var búizt við að 3. defldarliðið
Hull City kæmi hingað, en nú hafa
þær fréttir borizt, að liðið hafi sent
afboð.
Werl Cup Willie
Allir hafa heyrt getið um World
Cup Willie, litla ljónið í knatt
spymubúningnum með sigurbros
um varir, en þessi fígúra hefur
undanfarið náð miklum vinsæld
um í Bretlandi, en þar verður
heimsmeistarakeppnin I knatt-
spymu háð eftir 3 mánuði, og
vonast Englendingar eftir að ná
þar langt, — jafnvel að vinna
keppnina, sem Brazilíumenn
em þó taldir eiga að vinna í
þriðja sinn f röð.
Unga stúlkan á myndinni heit
ir Cristine Rason og var kölluð
World Cup Cristine í blaði þar
sem við rákumst á hana. Hún
vinnur á skrifstofu firmans sem
var svo heppið að vinna fyrstu
keppnina á HM, keppnina um
hoitann, því boltar framleiddir
af þessu fyrirtæki vom valdir
í keppnina, sem aftur þýðir að
sala fótbolta frá firmanu er
tryggð næstu árin.
50 metra bringusund telpnæ
Bergþóra Ketilsdóttir, ÍBK 45.4
Herdís Þórðardóttir, lA 46.0
Svanborg Jónsdóttir, ÍA 46.8
200 metra bringusund stúlknæ
Eygló Hauksdóttir, Á 3.13.1
Dómhildur Sigfúsdóttir, Seif. 3.17.4
Þuriður Jónsdóttir, Self. 3.19.2
200 metra fjórsund drengjæ
Vilhjálmur Ketflsson, ÍBK 3.00.4
Sigmundur Einarsson, ÍBK 3.17.4
100 metra bringusund sveina:
Ólafur Einarsson, Ægi 1.22.1
Guðjón E. Guðmundsson, ÍA 1.23.7
Gunnar Guðmundsson, Á 1.26.9
100 metra skriðsund telpna:
Sigrún Siggeirsdóttir, Á 1.16B
Ásrún Jónsdóttir, Self. 1.17.0
Guðmunda Guðmundsd. Self. 1.21.5
Framh. á bls. 6.
... og Cristine
Það er langt siðan eins mildð fjör hefur rikt innan veggja Sundhall-
arinnar á móti og var i gærkvöldi, en þá keppti yngsta fólkið á „sfnu
eigin móti“, sem sannarlega heppnaðist veL Áhorfendur vom jafnvel
fltíri en á „stór“-mótunum og keppendur miklu fleiri en venja er tll.
Riðlamir yfir kvöldiö vora 32 talsins, en era í meðalsundmótum um
20 talsins, enda var Sólon Slgurðsson ræslr oröinn lúinn undir lokln
eftir mikla skothríð, Torfi Tómasson, mótsstjóri búinn að tala slg hásan
í „mikrafóninn". „Þetta var elnum of langt“, viöurkenndu þeir, „en
ánægjulegt“. Og nú er komin fram hugmynd um sundmót unga fólks-
íns í Ármanni, Ægi og Selfossi og gæti sú keppni orðlð spennandi.
Hér er raimar verið aö fara inn á rétta braut, þvi á þessum sund-
mótum á unga fólkið að venja sig við keppni áöur en það fer f full-
orðlnssundin. Verður vonandi haldiö áfram á sömu braut f framtíöinnl.
Erlingur Pálsson var yfirdómari í gærkvöldi að venju og kvaðst mjög
ánægður með þau mörgu efni sem er að finna meðal fslenzkrar sundæsku.
Úrslitin í gær urðu þessi:
100 metra skriðsund drengja:
Jón Stefánsson, Self. 1.09.5
Pétur Einarsson, SH 1.09.5
Sigmundur Einarsson, ÍBK 1.12.5
100 metra fjórsund telpna:
Sigrún Siggeirsdóttir, Á 1.25.4
Ásrún Jónsdóttir, Self. 1.32.6
Helga Eínarsdóttir, ÍBK 1.34.9
50 metra skriðsund sveina:
Björgvin Björgvinsson, Ægi 34.9
Magnús Jakobsson, Seif. 37.3
Guðni óláfssón, SH 37.6
ta bifreiðarinnor erhreyfillinn,andlitið er stýrishjólið
Það er margt hægt að gera til að fegra stýrishjólið,
en betur en við gerum það er ekki hægt að gera. Er
það hagkvæmt? Já, hagkvæmt, ódýrt og endingar-
gott og — Viljið þér vita tneira ura þessa nýjung —
Spyrjið viðskiptavini okkar, hvort sem þeir aka einka
bifreið, teigubifreið, vörubifreið eða iafnvel áætlunar
bifreið. — Allir geta sagt yður það.
Upplýsingar í síma 34554 frá ki. 9- 12 f.h. og 6,30-
11 e.h. Er á vinnustað (Hæðargarði) frá kl. 1-10 e.h.
IVTikið úrval af nýjum Iitum.
ERNST ZIEBERT, Hæðargarði 20
VÍSIR . Föstudagur 18. marz 1966.
Danmerkurmeistarar HG, Á myndinni er Jörgen Petersen, sá hættulegi skotmaður lengst til vinstri, en Iengst til hægri er fýnrllði liöslns og landsllðsins jafnframt, Gért Andérsen.