Vísir - 23.03.1966, Blaðsíða 16
ISIR
Miðvikudagur 23. marz 1966.
áEgilsstöium
Hlutafé 3 milljónir
:>•• ••■•••:••■■........................................ -.................................................................................•.......................
■ iþx
mm ' % ■■
#Ö f ' ' x--., '• | ■ I; ■
Helga siglir út úr hriðarmuggunni upp að bryggju í Reykjavík i gærmorgun.
HELGA AFLAHÆST Á
VERTÍÐINNIHÉR SYÐRA
— Kom inn með 70 tonn í gær
Eins og sagt var frá í frétt
hér í blaðinu í gær, kom vélskip
ið Helga RE, inn í gærmorgun
með um 70 lestir af þorski.
Þennan afla fékk skipið á Breiða
fjarðarmiðum á svonefndum
fláka og í norðurkanti Kolluáls
ins. — Með þessum afla hefur
Helga fengið um 460 lestir á
rúmum mánuði, eða frá 20. febr
en þá fór skipið í fyrstu veiði
ferð vertíðarinnar. Mun hún nú
vera aflahæsta skipið á vertíð-
inni hér sunnan lands.
Skipstjóri á Helgu er Ármann
Friðriksson og er hann jafn:
Framhald á bls. 6.
Á sunnudaginn var gengið frá
stofnun hlutafélagsins Súla í Egils
staðakauptúni. Var félagið stofnað
til þess að koma upp og reka nið-
urlagningarverksmiðju í Egilsstaða
kauptúni. Er hlutafé þrjár miiljón
ir króna. Formaður var kosinn Jón
Helgason rafveitustjóri og hafði
blaðið tal af honum í morgun.
— Félagið var stofnað til þess
aö koma upp og reka verksmiðju
þar sem síld verður lögð niður,
verður unnið úr söltuðu hráefni.
Hvað markaði varðar sitjum við
við sama borð og aðrar niðurlagn
ingaverksmiðjur, en afúrðum verk
smiðjunnar veröur komið á mark
að innanlands og utan.
Gert er ráö fyrir að 600 fer-
metra húsi verði komið upp á Egils
stöðum undir verksmiðjuhaldið og
er ætlunin aö byggingarfram-
kvæmdir hefjist í vor, og að starf-
semi verksmiðjunnar hefjist á
haustmánuðum eða fyrir næstu ára
mót. Gert er ráð fyrir 30—40
manna starfsliði. Eru nú kannaðir
Framh. á bls. 6.
Áljfingisumræð-
ur í útvarpinu
— á föstudagskvöld
Á föstudagskvöldið fara fram
útvarpsumræður um tillögu
kommúnista og framsóknar-
manna um vantraust á rikis-
stjómina. Umræðurnar hefjast
kl. 8 og verða þrjár umferöir,
alls 55 mínútur. Fulltrúar flokk
anna tala f þessari röð: Fram-
sóknarflokkur, Sjálfstæðisflokk
ur, Alþýðubandalag og Alþýðu
flokkur.
Af hálfu Sjálfst.fl. munu ráð-
herrar flokksins tala. Fyrir Al-
þýðuflokkinn tala þeir dr. Gylfi
Þ Gíslason viðskiptamálaráð-
herra, Eggert G. Þorsteinsson
sjávarútvegsmálaráðherra og
Benedikt Göndal, fyrir Fram-
sóknarflokkinn þeir Eysteinn
Jónsson og Ólafur Jóhannesson
og fyrir Alþýðubandalagið Lúð-
Framh. á bls. 6.
Mesta veiar vetrarins gekk yfír norSur-
hhta landsins í gær
Glórulaus stórhríð var um allt
norðanvert landið í gærdag og
hélzt frameftir s.l. nóttu. Telja
menn það langversta veður sem til
þessa hefur komið á vetrinum, jafnt
hvað fannkyngi og veðurhæð
snertir. Ýmsir telja þetta í röð
mestu vetrarveðra sem þeir muna
eftir.
SIGLUFJÖRÐUR.
Frá Siglufirði var Vísi símað í
morgun að þar hafi kyngt niður
snjó og allar götur gjörsamlega ó-
færar bifreiðum í gær. Hríðin
brast á í fyrrinótt með óhemju
fannkyngi, en ekki mjög miklu
hvassviðri. í allan gærdag var
glórulaus bylur og hundi ekki út
sigandi. í morgun var veðrið að
ganga niður og gekk á með éljum,
en birti á milli. Var strax í birtingu
hafizt handa um að moka helztu
umferðargöturnar í hjarta bæjarins.
Siglfirðingar segja að yfirstandandi
vetur sé mesti snjóavetur, sem þar
hafi komið s.l. 30 ár.
AKUREYRI.
( Frá Akureyri var símað að þar
hafi veður versnað fyrir alvöru
upp úr hádeginu í gær og þá brost-
ið á með iðulausri stórhríð, sem
hélzt allt framundir morgun með
feikilegu hvassviðri annað veifið.
Færð versnaði til muna, sumar
götur eru alófærar, en um aðrar
: komast a. m. k. stórir bílár. Litlir
bílar hafa lítið verið í umferð. Bú-
izt er við að mjólkurflutningar
muni ganga erfiðlega f dag og
nokkru fyrir hádegið hafði engin
mjólk borizt til bæjarins.
FLJÓTSDALSHÉRAÐ.
Vísir hafði ennfremur samband
við Egilsstaði á Völlum í morgun.
Þar var í gærkveldi og alla nótt
ein mesta stórhríð sem komið hefur
um árabil. Gífurlegt hvassvirði og
fannkoma að sama skapi. Hver
einasti vegarspotti, sem áður var
fær, lokaðist í þessu veðri og er
nú engu farartæki fært hvorki um
sjálft Egilstaðaþorp né út úr því.
Ekki er vitað að þetta veður
hafi slysum eða valdið nokkrum
meiriháttar óhöppum austur þar,
því veðurspáin var vond og menn
Jiafa búið sig undir vont veður og
haldið að mestu kyrru fyrir.
Aftur á móti var mikil umferð
eftir öllum vegum, sem færir voru
orðnir, á mánudaginn. Þá voru m.
a. fluttir 200—300 hestar af heyi
neðan frá Reyðarfirði og upp á
Fljótsdalshérað. Enn er þó eftir
að flytja um 1000 hesta heys, sem
geymt er niður á Reyðarfirði.
Framh. á bls. 6.
LOGREGLURANNSOKN UT
AF SVIPLEGU DAUÐSFALLI
Undanfarna daga hefur staðið yf-
Ir rannsókn út af svlplegu dauðs-
falll hér í borg, en það skeðl á
helmili sjúklings, seem lá mikið
veikur í rúmi sínu.
Maður þessi, sem er allmjög
roskinn, þjáðist af hvítblæði og
var talið, að hann myndi ekki eiga
langt eftir ólifað. Bjó hann með
konu sinni ,sem er miklu yngri að
árum en hann, og auk þess var á
heimilinu uppeldisdóttir gamla
mannsins, unglingsstúlka, sem aö-
allega hefur hugsað um fóstra
sinn í véikindum hans og hjúkrað
honum
Á fimmtudaginn skrapp fóstur-
dóttirin að heiman, en eiginkona
Fram. á bls. 6.
12 Kjarvalsmálverk
á uppboði í dag
Á listaverk
hefur r
''ktssonar í dag verður m. a. boðin upp stærsta mynd, sem Scheving
— Það sem einkennir sýning
una núna er að á henni eru ým
ist mjög stórar myndir eða litl
ar myndir, sagði Sigurður Bene
diktsson í viðtali viö blaðið i
gær, en hann heldur upboð á
48 málverkum í súlnasal Hótel
Sögu kl. 5 í dag.
Væntanlegum kaupendum gefst
kostur á að skoða málverkin
til fjögur í dag og einnig voru
þau til sýnis í gær.
— Á uppboðinu verður stærsta
mynd, sem Gunnlaugur Schev-
ing hefur málað „í vondum sjó“
Framh. á bls. 6.