Vísir - 30.04.1966, Blaðsíða 4
u
VÍSITt . Laugardagur 30. apriI 1966.
LA UCARDA GSKROSSCÁ TA N
y
FJflLt
\tófN
mm
(>ís,w
W/vtft
*T Ltírt
KEvy-
ATTA
SKVLí
HISJA
Wlttfi
nýTi
S*HÍ> i
ðíl.u
OUÍT1
Mti iS
fn/fiUfí.
SKfiMH
ÚR~
$*<sm
l'fttTT
loyM
mrtN
w&m
KfoMCr
l?T-
\SÚTh
Stcpftl
mma
SflnröKj
Í>RVKSf
í>f£Sí4
mcwt
iTLn.no
mm
J SUwp
Sv> pjáv
Eltos
mmSM.
&afih»
Hf-íev?
-iitfí-
BVJLI9
“a
| Bridgeþáttur VÍSIS
Ritsti. Stefán Gudjohnsen —-
Heimsmeistarakeppnin í bridge
hófst á Ítalíu fyrir stuttu og taka
5 lönd þátt í keppninni aö þessu
sinni. Það eru heimsmeistararnir
Italir, Bandaríkjamenn, Hollending
ar, Thailendingar og Venezuelu-
menn. ítalir tefla fram Avarelli-
Belladonna-D’Álelio-Forquet Gar-
ozzo-Pabis Ticci. Er það kjarninn
úr liði því, sem hefur unnið
heimsmeistaratitilinn sjö ár í röð.
í liði Bandaríkjamanna eru Feld-
esman, Hamman, Kehela, Murray,
Mathe og Rubin. Binda þeir miklar
vonir við þetta lið, sem kvað vera
þeirra sterkasta um árabil. Hol-
lendingar senda sama lið og varð
í ööru sæti á síðasta Evrópumóti.
eða Kreyns, Slavenberg, Oudshorn,
Blitsblum, Boender og Leeuw.
Mætti seg-y. mér, að þetta lið kæmi
á óvart, þótt það hafi hins vegar
litla möguleika til sigurs. Thailand
teflir fram Boonsupa, Gaan, Gim-
kiewicz, Istenyeli, Nandhabiwat og
Sucharitakul, og Venezuela Bena-
im, Berah, Onorati, Rossignol,
Strasiota og Vernon.
Litlar fréttir hafa borizt ennþá l
frá mótinu, en vitað er að ítalir I
eru stórt yfir í þeim leikjum, sem
þeir hafa byrjaö á. Spiluð eru 140
spil milli sveita.
Enska stórblaðið Sunday Times
gekkst fyrir stórri tvimennings-
keppni um síðustu helgi og var
boðið til hennar mörgum bridge-
meisturum. M.a. voru Hollending-
arnir Slavenburg og Kreyns og
einnig lið Bandaríkjamanna, sem
nú keppir á heimsmeistaramótinu.
Þegar ein umferð var eftir í keppn
inni voru Hollendingarnir langefst
ir, en þá þurfti Slavenburg að fara
til Hollands, þar eð hann hafði
lofaö að aka sveitarfélögum sín-
um til heimsmeistarakeppninnar.
Kreyns varð að taka varamann á
móti sér og lauk síðustu umferð-
inni þannig, að þeir skoruðu 3 stig
af 16 mögulegum. Frakkamir
Theron og Desrosaux sigruðu því
glæsilega en bandarísku pörin skip
uðu sér öll í neðri helming keppn-
innar.
Italska sveitin tók ekki þátt í
þessari keppni, en nokkru áður
hafði hún ennþá einu sinni sann-
að yfirburöi sína meö því að vinna
sveitakeppni á stórmóti, sem hald
ið var á Spáni nýlega. Frakkar og
Hollendingar urðu þar jafnir í öðru
sæti.
Reykjavíkurmeistaramót í tví-
menningskeppni hefst eftir helgi
og verður spilað í samkomuhús-
inu Lido. Keppnin hefst á mánu-
dagskvöldið kl. 20 og verður spilaö
þriðjudags- og fimmtudagskvöld.
Meðal þátttakenda verða öll lands-
liöspörin, sem spila munu á Norð
urlandamótinu svo og Reykjavík-
urmeistararnir frá því í fyrra, Egg
ert Benónýsson og Þórir Sigurðs-
son frá Bridgefélagi Reykjavíkur.
Myndatextcsr
Þau mistök urðu á baksíðu Visis
í gær, að myndatextar rugluðust
undir myndum af Þóri Kr. Þórðar-
syni prófessor og Ágústi Geirssyni
símvirkja. Biðjum við hlutaðeig-
andi velviröingar á mistökunum.
Tilkynning til viðskipta-
manna Hagtryggingar
í Mosfellssveit, Kjalarnesi og Kjós. Hér með
tilkynnist að umboðsmaður okkar á framan-
greindum stöðum er Þórður Guðmundsson
Dælustöðinni Reykjum
HAGTRYGGING H.F.
AÐVÖRUN
Samkvæmt heimild í 15. gr. lögreglusam-
þykktar Reykjavíkur verða munir, sem skild
ir hafa verið eftir á almannafæri og valda
hættu eða tálmun fyrir umferðina, svo sem
skúrar, byggingarefni, umbúðir, bifreiðahlut
ir o. fl. fjarlægðir á næstunni á kostnað og
ábyrgð eigenda án frekari viðvörunar.
Lögreglustjórinn í Reykjavík