Vísir


Vísir - 06.05.1966, Qupperneq 9

Vísir - 06.05.1966, Qupperneq 9
V1SIR . Föstudagur 6. maf 1966, RÆTT UM HANDRITA Vísir leifaði ólits manna í gær á dómi iystra Landsréttar, sem markar nýjan og merkan þótt handritamólsins Gylfi h. Gíslason menntamálaráðherra: JJálfri stundu eftir að Eystri Landsréttur haföi kveðið upp dóm sinn náði Vísir sambandi við dr. Gylfa Þ. Gfsiason mennta málaráðherra og spurði hann á- lits á dómi réttarins. Hafði hann þá fyrir örskömmu talað við sendiherra íslands f Kaupmanna höfn, Gunnar Thoroddsen, er tjáði honum dómsúrslitin. — Ég var mjag feginn er ég heyrði niðurstöðu dómsins, sagði menntamálaráðherra. Vit- anlega hafði ég þó, eins og aðr- ir ætíð treyst þvf að niðurstað- an myndi verða á þessa lund, að lögin yrðu staðfest og kennslumálaráðuneytið sýknað. Við skulum minnast þess, að málið hafði verið mjög vand- lega undirbúið af hálfu dönsku ríkisstjómarinnar. Itarleg rann- sókn hafði farið fram á öllum lögfræöilegum hliðum þess, álits færustu lögfræðinga ieitað og málatilbúnaður allur hinn bezti. Ber vel að meta það mikla starf sem danska ríkisstjómin og sér- fræöingar hennar hafa fram-. kvæmt í því efni. Dómsúrsiitun- um hijóta allir íslendingar að fagna af heilum hug. Þau færa okkur skrefi nær þeirri stóru stund í sögu og lífi þjóðarinnar, er handritin koma heim. Próf. Sigurður Nordal: það er ekki nema eitt um þetta að segja. — Þetta eru mikil fagnaðartíðindi. Annars hef ég ekki verið neitt hræddur um þessi málaferli, það er samt betra að vita en hyggja. Aðspurður um aðferöir sækj- enda, sagöi próf. Sigurður: — Mér þótti margt við þau undar- legt, m. a. hvemig Árnasafns- nefndin átti að hafa aðild aö málaferlunum. Það vita hins vegar allir, að erfðaSkrá Áma Magnússonar er týnd og aðeins til í afritum. Þar er heldur ekki gengið svo vel frá málum, sem vætna mætti af Áma. Það er vissulega bagalegt, að hafa ekki frumritið þó að afritin kunni að vera rétt. Þetta varð ég ekki var við að kæmi fram i réttarhöld- unum. Það má kallast ótrúlegt hirðuleysi af forráðamönnum safnsins að varðveita ekki erfða- skrána. Ekki er að efa, að heimkoma handritanna er samkvæmt innsta vilja Áma Magnússonar, því að hann var mikill íslend- ingur. Það sýnir m. a. að hann ákvað að styrkþegar safnsins skyldu vera lslendingar. Hann hefði áreiðanlega valið handrit- unum stað hér heima, ef einhver viðunarlegur staður hefði verið viðunanlegur staður hefði verið Þetta hljóta að vera fagnaðar- tíðindi öllum almenningi. — Ég treysti því að þessi dómur hafi verið það vel hugsaður I Eystra- Landsrétti, að honum verði ekki breytt f Hæstarétti, sagði próf. Sigurður að lokum. Jónas Kristjánsson skjalavörður: þetta eru mikil gleðitfðindi. Ég gat alls ekki verið viss um úrslit málaferlanna, og er þessi fregn mér því nokkur léttir. Aö vísu vonaöi maður ávallt hið bezta. Lögfróðir menn, sem ég hafði tal af á meðan á réttar- höldunum stóð, voru f vafa um úrslitin, en töldu þó líkur á að þau yröu á þennan veg. Ég held að við höfum leyfi til að vona hið bezta um framhaldið. Málið fer víst fyrir hæstarétt, en það er vonandi að úrslit mála veröi þar á sama veg. Um viðbúnað Handritastofn- unarinnar sagði Jónas: Eins og kunnugt er, er hér einungis um handrit úr Áma- safni að ræða en ekkeft af handritum Konunglega bóka- safnsins, þau eru að vfsu miklu færri en meðal þeirra mjög verð mæt handrit. — Við höfum búið okkur undir að taka við hani- ritunum smátt og smátt eins og ráðgert hefur verið, en afhend- ingin fer fram á næstu 25 árum eða svo. Frumdrög að húsi Hand ritastofnunarinnar eru nú til, en því hefur verið ákveðinn stað- ur hjá Háskólanum. Við leyfum okkur að vona, að bygginga- framkvæmdir hefjist f sumar. Ef að til þess kæmi að við tækjum á móti einhverju af handritunum áður en hús þetta verður fullgert höfum við til- búna geymslu fyrir þau á fyrstu hæð Landsbókasafnsins þar sem náttúrugripasafnið var áður. Ég má segja, að þar sé þeim búinn ágætur staður til bráðabirgða. Að mínum dómi hefur verið vel að þessum málum búið af hálfu fslenzkra yfirvalda, sagði Jónas, og aðstaðan eins fullkom in og hægt er að ætlast til, svo að við fræðimenn þurfum ekki að kvarta. Hjá Handritastofnuninni vinna nú 6 menn. Við höfum þegar byrjað rannsóknir. Mest megnis með ljósmyndir af handritum, en sumpart handrit, sem fengin hafa verið að láni frá Kaupm.- höfn. Og sú starfsemi fer vax- andi. Þessi dómsúrslit leyfa að minnsta kosti nokkra bjartsýni á framhaldið. Því verður ekki neitað, að málaferlin vöktu nokkum ugg hjá fræðimönnum yfirleitt. Um úrslit hefur að vfsu rfkt góð von en engin vissa. Sigurður Ólason hæstaréttarlögmaður: JJómur Landsréttarins er að sjálfsögðu mikið ánægjuefni öllum íslendingum. Dómsniður- staðan er mikilsverður sigur eða áfangi í handritamálinu í heild, þótt hún feli ekki í sér nein endanleg úrslit. Allt veltur á því, hvort unnt verður að fylgja sigrinum eftir f Hæstarétti í haust. Um það verður þó á þessu stigi engu spáð og því síður fullyrt. Ég hefi enn ekki séð forsendurnar, nema einung- is í lauslegum útdrætti. Því er ekki að neita, að þær virðast að sumu leyti aðrar, — og ótraust- ari, — en vænzt hafði verið. Dómurinn fellst á þá höfuðrök- semd Árnasafnsnefndar, að stofnunin sé sjálfseignarstofnun að lögum. Ennfremur að um nauðungarafsal eða eignarnám sé að ræða á þeim hluta safns- ins, sem hingað á að fara. Þetta eru að sjálfsögðu stórfelld á- föll í málinu, enda mun nefndin nú byggja sókn sína og sigur- vonir á þessum tveim höfuð- vígstöðvum. Fallist Hæstiréttur á hérgreind sjónarmið dómsins tjáir þess ekki að dyljast, að úrslit málsins geta orðið tví- sýn, enda verður sú rökfærsla dómsins, að safnið sé nánast utan eignarréttarhelgi Stjómar- skrárinnar, varla talin einhlít né fyllilega örugg. Ekki er enn vitað né á það reynt, hvern hljómgrunn þær teoríur (Ross prófessors) hafa meðal lögvfs- indamanna. Hins vegar hafnar dómurinn þeirri meginröksemd dönsku stjómarinnar, að safnið sé ásamt Háskólanum raunvem lega eign ríkisins, og í þeirri vem háð forræði þess og ráð- stöfunarvaldi, beint og bóta- laust. Mun lögfræðingur stjóm- arinnar nú sjálfsagt freista þess, að fá þessi sjónarmið viðurkennd í Hæstarétti, enda er þá ekki lengur vafi um dóms- úrslitin. Próf. Hreinn Benediktsson: Jjetta eru vitaskuld hin mestu gleðitíðindi, enda er svo að sjá af fréttum, að krafa lög- manns menntamálaráðuneytis- ins danska hafi að fullu verið tekin til greina af réttinum. Er því niðurstaðan íslendingum f vil, enda þótt þeir hafi ekki ver ið aðilar að málinu. Of snemmt er þó að fagna endanlegum sigri í handritamál inu, því að stjóm Ámastofnun ar er opin sú leið að áfrýja til hæstaréttar. Komi til slíks mál- skots, hljóta Islendingar að sjálfsögðu að vona, að niður staðan þar verði hin sama. Næsta skref er svo, aö fjög urra manna dönsk-íslenzk sér- fræðinganefnd geri tillögur og skrár um, hvaða handrit skuli afhenda til Islands eftir greini mörkum handritalaganna um það efni. Gerðar vom á sínum tíma bráðabirgðaskrár sam- kvæmt þessum greinimörkum, og vom þær grundvöllurinn að samkomulagi Islendinga og Dana um málið vorið 1961. Nefndin skilar svo tillögum sín um og skrám til danska forsæt- isráöherrans, sem afgreiðir mál- ið endanlega. Veröur þar með leyst síðasta ágreiningsmál þess ara tveggja frændþjóða, sem átt hafa svo mikil samskipti um aldaraðir. Að lokum má svo nefna það, sem aldrei verður lögð of mikil áherzla á, að handritin veröa okkur í reynd sá dýrgripur, sem við teljum þau nú, því aðeins að rannsóknir aukist stöðugt á þeim menningararfi, sem þau hafa að geyma, tungu þjóðarinn ar, bókmenntum og sögu. Endur heimt handritanna er því ekki lokaþáttur málsins heldur verð ur hún jafnframt að verða upp haf að stóreflingu vísindaiðk- ana við Háskóla íslands, ekki aðeins á sviði handritarann- sókna í þrengstu merkingu, held ur og í öðrum fræðum, sem eru nátengd. Þá fyrst skapast grund völlur fyrir því, að endurheimt handritanna geti oröið sá afl gjafi þjóðemis og þjóðmetnaðar sem allir sannir íslendingar vona, að hún verði. Ármann Snævarr háskólarektor: IVTiðurstaÓa dóms Eystri ' landsréttar er mér mikið fagnaðarefni. Fulltreysti ég þvf að málalok verði hin sömu i Hæstarétti. Er vonandi að mál- inu verði skjótlega ráðið til lykta þar, ef til áfrýjunar kemur“. OS'

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.