Vísir


Vísir - 06.05.1966, Qupperneq 11

Vísir - 06.05.1966, Qupperneq 11
VISIR . Föstudagur 6. maí 1966. 11 Félagsheimili brýnasta nauðsynjamálið Frá ársþingi Iþróttabandalags Akraness 21. ársþing íþróttabandalags Akraness var haldiö dagana 12. og 19. marz. sl. Á þinginu var minnzt 20 ára afmælis ÍA og af því tilefni var mörgum gestum boðið til þingsins, m.a. forseta Í.S.Í. Gísla Halldórssyni, bæjarstjóranum á Akranesi Björgvin Sæmundssyni, bæjarstjórn Akraness o.fl. Formað- ur ÍA Guðmundur Sveinbjömsson setti þingið og bauð fulltrúa og gesti velkomna og rakti tildrög að stofnun bandalagsins. KNATTSPYRNA. Flokkar ÍA tóku að venju þátt I landsmótum og var árangur þeirra yfirleitt ágætur. Meistara- flokkur varð nr. 2 I I. deiidar- keppninni og A lið lA komst í úrslit í bikarkeppni KSl, en tapaði þeim leik. II. flokkur sigraði í bik arkeppni Gísli Halldórsson forseti Í.S.Í. flutti ávarp og þakkaði hið mikla starf ÍA á undanfömum árum í þágu íþróttahreyfingarinnar. Þá afhenti hann bæjarstjóranum á Akranesi heiðursskjal frá Í.S.Í. sem viðurkenningu til Akraness- bæjar fyrir gott framlag bæjarins til íþróttamála og byggingu íþrótta mannvirkja á undanfömum ámm. röð. 2. flokks Þrír leikmenn annað árið i ÍA léku með Að lokum sæmdi hann Guðmund landsliðinu á árinun, þeir Ríkharð- Sveinbjömsson heiðursorðu I.S.Í. ; ur Jónsson, sem lék sinn 33. lands- fyrir mikið og óeigingjamt starf j leik, Helgi Daníelsson sem lék sinn að íþróttamálum. 25 landsleik og Eyleifur Hafsteins- Forsetar þingsins voru kjömir son. Hafa þeir Rikharður og Helgi Óðinn G. Geirdal og Ólafur I. Jóns- leikið flesta landsleiki allra ís- son og ritarar Helgi Daníelsson og lenzkra knattspyrnumanna. Þá lék Einar J. Ólafsson. Eyleifur með unglingalandsliðinu Þá voru fluttar skýrslur stjórnar og var jafnframt fyrirliði liðsins. i ÍA og sérráða. Fer hér á eftir það Guðjón Finnbogason, sem annazt Tvær stúlkur tóku þátt í kvenna- meistaramóti Islands og náði önnur þeirra, Magnea Magnúsdóttir mjög góðum árangri. Varð hún nr. 2 í langstökki og hástökki. Mjög erf- iðar aðstæður eru til iðkunar frjálsra íþrótta á íþróttavellinum og standa vonir til að úr því verði bætt að nokkm á komandi sumri. Ævar Sigurðsson íþróttakennari hefur verið ráðinn þjálfari í frjáls- um Iþróttum á komandi sumri. helzta úr starfsári: starfseminni á liðnu hefur þjálfun meistaraflokks und- anfarin tvö ár lét af því starfi um s.I. áramót, en Ríkharður Jónsson hefur tekið við þvi starfi. GOLFKLÚBBUR AKRANESS. Að tilhlutan IA var stofnaður Golfklúbbur Akraness, voru stofn-1 FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR. endur 15. Klúbburinn hefur fengið Á vegum lA og Æskulýðsráðs land I Garðalandi til starfsemi i Akraness var haldið námskeið I sinnar og hafið þar framkvæmdir frjálsum iþróttum. Sóttu um 100 vð undirbúning að golfvelli. | böm og unglingar námskeiðið. KNA TT5P YRNA Á LAUGARDAG KR og Þróttur lyrst í R.víkurmótinu ■u Reykjavíkurmótið hefst n.k. laugardag með leik milli KR og Þróttar. Leikurinn fer fram á Melavelii og hefst kl. 14.00. •u Á sunnudagskvöld leika Valur og Víkingur og síðan Fram og KR á mánudagskvöld kl. 20.30. u Á þriðjudag hefst keppni í 1. flokki með leik Vals og KR kl. 20.00 og miðvikudaginn 11. maí fer fram bæja- keppni milli Reykjavíkur og Akraness. Guðmundur Sveinbjörnsson. HANDKNATTLEIKUR. Þrlr flokkar tóku þátt I lands- mótum I handknattleik og var frammistaða þeirra eftir atvikum góð. Vaxandi áhugi er á hand- knattleik, sérstaklega hjá stúlkun- um. Ævar Sigurðsson hefur þjálfað meistara- og 2. fl. karla, en Jón Runólfsson kvennaflokkana. BADMINTON. Haldið var Akranesmót I badmin ton, hið fyrsta I röðinni og sigraði Pétur Jóhannesson 1 einliðaleik og Hallgrímur Ámason og Helgi Dan- íelsson I tvlliðaleik. Tveir kepp- endur frá ÍA tóku þátt I Is- landsmeistaramótinu I þessari grein. Garðar Alfonsson frá TBR ann- aðist þjálfun á vegum Badminton- ráðs. SUND. Þátttaka yngri kynslóðarinnar I sundæfingum var mjög góð. Nokk- ur innanfélagsmót vom haldin, svo og Akranesmeistaramót. Á sveina- meistaramótinu er haldið var á Sauðárkróki vom tveir keppendur frá ÍA og sigraði Kári Geirlaugs- son I 100 metra skriðsundi Helgi Hannesson og Magnús Gunnlaugs- son þjálfuðu sundfólkið. FJÁRMÁL. Fjárhagur ÍA og sérráða má telj- ast góður eftir atvikum. Þó væri æskilegt að bandalagið hefði fleiri tekjustofna og meiri möguleika til tekjuöflunar. Hagnaður á reikn- ingum bandalagsins var á árinu rúmar 60 þús. kr. Hagnaður á reikningum knatt- spymuráðs var um 67 þús. kr. Tekjur af 1. deildarkeppninni hafa aldrei verið meiri en s.l. ár og námu þær um 114 þús. kr. og tekjur af bikarkeppni KSl vom 22 þús. kr. TILLÖGUR. Margar tillögur voru lagðar fyrir þingið og skal nokkurra þeirra get- — 21. ársþing ÍA samþykkir að fela væntanlegri stjóm að vinna að því, að stofnað verði til sameigin- legra félagasamtaka I bænum um byggingu félagsheimilis. Þingið llt- ur svo á, að bygging félagsheimils sé brýnt nauðsynjamál, þar sem skortur á hentugu húsnæði hái eðli legri félags- og skemmtanastarf- semi flestra félaga. Þá fagnar þing- ið samþykkt framkominnar tillögu I bæjarstjóm varðandi félagsheim- ilismálið. — 21. ársþing ÍA samþykkir að fela væntanlegri stjóm, að koma á framfæri við stjóm ÍSÍ tilmæl- um um að hún hlutist til um, að félög og íþróttabandalög utan Reykjavíkur fái aðstöðu til keppni á íþróttavellinum I Laugardal, þeg- ar um heimsóknir erlendra íþrótta flokka á þeirra vegum er að ræða. Þannig að unnt sé að gera heild- aráætlun um heimsóknir erlendra íþróttaflokka til þessara aðila, á sama hátt og gert hefur verið I Revkjavík um heimsóknir til starf andi félaga þar. Þá er væntanlegri stjóm falið að hafa samráð og samstöðu við önnur bandalög utan Reykjavíkur, sem möguleika gætu haft á að fá heimsóknir erlendra Iþróttaflokka. STJÓRNARKJÖR. Guðmundur Sveinbjömsson var einróma endurkjörinn formaður ÍA og aðrir I stjóm eru: Frá KA, Óli Öm Ólafsson og Guðjón Finn- borgason. Frá KÁRA Eirlkur Þor- valdsson og Helgi Daníelsson. Frá Golfklúbb Akraness Þorsteinn Þor- valdsson. Göngukeppni Göngukeppni á skiðum verður haldin á morgun, laugardag, kl. 4 fyrir ofan Flengingabrekku við Skíðaskálann I Hveradölum. Kepp- endur vinsamlegast tilkjmnið þátt- töku til Skíðaráðs Reykjavlkur, simi 19931 og 12371 fyrir kl. 6 I dag (föstudag). Mótsstjóri verður Sig- urjón Þórðarson, formaður skiða- deildar Í.R., brautarstjóri verður Glsli Kristjánsson. Gengið verður 5 kllómetra. Langt er liðið síðan göngumót. hefur verið haldið I Revkjavlk og verður gaman að fylgjast með, hvemig gengur nú. Armenningnr halda slna árlegu GAMALMENNA- HÁTÍÐ I Jósepsdal um næstu helgi. Á laugardaginn stendur til að keppni verði háð I ýmsum grein- um fyrir eldri félaga, og á laugar- dagskvöldið verður ýmislegt til skemmtunar I skála félagsins, svo sem ný skfðakvlkmynd o. fl. — Á sunnudag verður efnt til skfða- ferðar I Bláfjöllin. Dráttarbrautin verður I gangi I Ólafsskarði bæði laugardag og sunnudag. Stjóm skfðadeildarinnar leggur áherzlu á að sem flestir félagar mæti á gam- almennahátíðinni, en þó sérstakl. eldri félagar. Verktakar — Stjórnendur vélfækja Verktakar, stjórnendur véltækja og aðrir, sem annast jarðvinnu á orkuveitusvæði Rafmagns veitunnar eru alvarlega áminntir um að afla sér gagna um legu jarðstrengja og hafa sam- band við verkstjóm Rafmagnsveitunnar áður en framkvæmdir hefjast. Athygli er vakin á því, að óheimilt er að grafa í götum eða gangstéttum ári sérstaks graftrar leyfis, sem skrifstofa borgarverkfræðings lætur í té. Við gröft í lóðum ber einnig að gæta varúðar og kynna sér fyrst legu heimtauga. Rafmagnsveitan veitir alla fyrirgreiðslu í þessu sambandi endurgjaldslaust, en þeir sem valda tjóni á jarðstrengjum eru látnir sæta fullri ábyrgð. Rafmagnsveita Reykjavíkur.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.