Vísir - 27.05.1966, Page 8

Vísir - 27.05.1966, Page 8
8 VI S IR . Föstudagur 27. maf 1966 VÍSIR Utgefandl: Blaöaútgátan VISER Ritstjðrl: Gunnar G. Schram Aöstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson Þorsteinn O. Thorarensen Auglýsingastj.: Halldör Jónsson Auglýsingan Þingholtsstræti 1 Afgreiðsla: Túngötu 7 Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 Unur) Áskriftargjald: kr. 90,00 á mánuði innanlands ( lausasölu kr. 7,00 elntakið Prentsmiðja Vfsis — Edda h.f. Lítil breyting J>að hefur verið haft nokkuð á orði bæði í blöðum / og manna á meðal, að kosningabaráttan hafi farið ) fram með prúðmannlegri hætti nú en oftast endra- \ nær. Ekki eru þó allir á einu máli um þetta. Kosninga- y hríðin sjálf var styttri nú en áður og áróðrinum helg- / að minna rúm í sumum blöðunum en oft hefur tíðk- / azt, en að öðru leyti verður ekki séð, við nánari at- ) hugun, að munurinn sé ýkja mikill frá því sem verið \ hefur. \ Sjálfstæðismenn fluttu mál sitt í útvarpsumræð- (' unum af mikilli prúðmennsku og öfgalaust. En það / hafa þeir áður gert, og það er almannarómur, að þeir / beri af um kurteisan og öfgalausan málflutning. Ræðu ) menn Alþýðuflokksins fluttu einnig flestir mál sitt \ af hófsemi og háttvísi ,en hið sama verður ekki sagt í um ræðumenn Framsóknar og kommúnista. Þeir ( voru margir ókurteisir mjög, notuðu stóryrði og órök // studdar fullyrðingar, sem ætlað var að ganga í eyru / þeirra, sem minnst fylgjast með borgarmálunum og ) láta gjarnan blekkjast af slíkum málflutningi. Fram- \ sóknarmenn flestir hafa tamið sér einstæðan tudda- (' hátt í ræðumennsku og sama er að segja um öll stjórn ( málaskrif í Tímanum. Ritstjórum hans veitti sann- / arlega ekki af að kynna sér dálítið betur siðareglur ) blaðamanna. Það ber ekki vott um góðan málstað, að \ þurfa að „krydda“ ræður og skrif með orðbragði \ eins og sumir frambjóðendur Framsóknar gerðu nú ( í kosningabaráttunni og daglega má sjá á síðum Tím- / ans. / Þetta er baráttuaðferð, sem ætti að láta komm- ) únista eina um, en breytingar er vart að vænta með- \ an þeir, er nú ráða mestu á Tímanum, eru þar við völd. \ Þeir virðast meira og minna gegnsýrðir af kommún- ( iskum hugsunarhætti og hafa tileinkað sér þau vinnu- / brögð, sem honum fylgja. / Austrapistlarnir í Þjóðviljanum eru rætnpstu ) skrif, sem sjást í íslenzkum dagblöðum. Persónulegur \ skætingur og rógur er sýnilega árátta á höfundi ( þeirra, en þau eru þó ekki eins tuddaleg og sumt, sem ( birtist í Tímanum. / Þreföld afsökun! ) J Tímanum í gær voru ísfirðingar beðnir afsökunar ) á því, . m. k. þremur stöðum, að blaðinu Jiefðu orð- \ ið á þau mistök, að skýra rangt frá kosningaúrslitun- ( um þar á staðnum. Það hafði semsé gleymzt að segja ( frá því, að Framsókn hefði unnið þar einn bæjarfull- / trúa! ) Þetta eru auðvitað herfileg „mistök“ og von að ) blaðið harmi þau. En til huggunar má benda á, að \j meirihluti ísfirðinga mun áreiðanlega fyrirgefa Tím- ( anum þetta. En léleg er sú afsökun, að hér sé um íí að kenna „ósvífni Alþýðublaðsins“ í fréttaflutningi! 7 „Við munum ekki hef ja styrj- öld, en erum viðbúnir..." Chen YI utanríkisráóherra Kfna hefur svarað skriflega spumingum norrænna blaða- manna, sem voru nýlega á fimm vikna ferðalagi f Kina sem gest ir Kfnverska blaðamannasam- bandsins. Hann svaraði 10 spumingum og sagði m.a. að Kína myndi ekki hefja styrjöld, en væri viðbúið styrjöld, því að bandarískir heimsveldissinnar væru að auka undirbúning sinn að árásarstyrj öld gegn Kína. Hann segir skoðun klnversku stjómarinnar þá, að þjóðir meö ólíkt þjóðskipulag geti lifað í friðsamlegri sambúð, en fyrst verði að sigrast á heimsvalda- stefnunni. — Það hefur ávallt verið heimsveldastefnan og framar öðru bandarisk heimsveldis- stefna, sem hefur hindrað frið samlega sambúð, segir hann. í trássi við grundvallaratriði frið samlegrar sambúðar reyna bandarískir heimsveldissinnar jafnan hvarvetna að beita lönd og þjóðir ofbeldi, með eftirliti, ihlutunum eða hótunum. Frið- samleg sambúð er ekki gerleg nema barizt sé gegn bandarískri heimsveldis- og styrjaldar- stefnu. Kína styður því öll lönd og allar þjóðir sem hafna henni, og með þessu er stutt að frið- samlegri sambúð þjóða, sem búa við ólíka þjóðfélagsskipan. Það verður ekki fyrr en búið er að sigrast á bandarískri heimsvelda stefnu og gamalli og nýrri ný- lendustefnu, að hver þjóð um sig getur frjálslega valið sér það þjóðskipulagsform, sem hún vill, að þjóðimar geta lifað f friði, hver svo sem þjóðfélagsskipun þeirra er. — Við óskum ekki eftir styrj öld, sagði Chen Yi, enn fremur er hann afhenti fréttamönnum svörin, við leggjum alla áherzlu á að varðveita friðinn í Kína og heiminum. Við viljum frið, ör- uggan frið, ekki aðeins takmark aðan tíma til þess að getað lifað góðu lífi, því að við erum þeirr ar skoðunar, að öruggur friður byggist á, að heimsveldisstefnan verði sigruð. 1 svörunum segir hann, að Kfna muni standa við hlið Sovét rikjanna, verði þau fyrir árás heimsveldissinna, og berjast með þeim gegn sameiginlegum féndum. Hann var spurður hvort hann reiddi sig á stuðn ing Sovétrikjanna ef til styrj- aldar kæmi milli Bandaríkj- anna og Kína. — Nei, svaraði hann, við mið um við að bjargast á eigin spýt ur. Ef til vill hjálpa Sovétríkin okkur, ef til vill ekki, og ef til vill hefja Sovétríkin styrjöld gegn Klna með U.S.A. Við treyst um aðeins sjálfum okkur, og I hinum vestræna heimi segja menn, að guð hjálpi þeim sem hjálpa sér sjálfir. Heyri Sovét- leiðtogamir þetta munu þeir ef til vill reiðast mér, en ég vil beina þvi til þeirra að reiðast ekki, og í stað þess hætta við áform sín. Þeir miða við það eitt að sigra heiminn með Banda ríkjunum. ÞAÐ ER Á MIKLUM MISSKILN INGI BYGGT AÐ TREYSTA SOVÉTRÍKJUNUM, sagði hann ennfremur. Ég vil ekki gagnrýna vini okkar i vest Chen Y/ svarar spurningum norrænna fréttamanna Chen Yi rænum löndiim, sem treysta Bandaríkjunum og Sovétríkjun- um I blindni, en ég vil taka fram að það gerum við — guöi sé lof — ekki. — Margir halda því fram, að það sé slæmt fyrir Kína að sambúðin við Bandaríkin sé slæm og sambúðin við Sovét- ríkin miður góð. Þetta hefur ver ið okkur alvarlegt umhugsunar JYagana 29. maí—2. júni verð- ur haldið hér norrænt bar- þjónamót og verður fundarstað- ur Lídó. Fundurinn veröur jafn- framt tíu ára afmælisfundur nor rænu samtakanna. Dagskrá fundarins er mjög fjölbreytt og felur í sér heim- sóknir á alla hleztu veitinga- staöi í borginni þar sem gest- gjafar eru gróin og gamalkunn vínfyrirtæki víöa úr heiminum. Auk þess verða famar ýmsar ferðir til sögufrægra staða hér á landi og flugferð til Surts- eyjar. í sambandi við fundinn verð- ur einnig efnt til íslenzkrar cocktailkeppni, þar sem 17 bar- þjónar senda frumsamdar upp- skriftir af cocktailum. Heiðursgestur íslenzku sam- takanna á þessum fundi er Dan- inn Kurt Sörensen, sem var að- alhvatamaöur aö stofnun Sam- taka íslenzkra barþjóna, sem stofnuð voru 1963. Haustið 1963 voru íslenzku barþjóna- samtökin tekin inn í Alþjóða- samtök barþjóna (IBA), en í dag era alls 19 lönd þátttakendur í þessum samtökum. Megintilgangur samtakanna er efni. Það er rétt, að það er hættulegt,. en það er erfitt að gera sér grein fyrir hvemig á- standið er. Það er að minnsta kosti Cruggast að treysta á sjálfan sig. KRÚSÉV Krúsév lagði það i vana sinn, að stunda það að ná aðstöðu til eftirlits og að gera aðrar þjóðir sér háðar. I því skyni bauð hann okkur hjálp. Það er munur á Bandaríkj. og Sovétrikjunum, en um þetta er um bæði sömu sögu að segja: Leiðtogar beggja seilast eftir slíku eftirliti til þess að geta ráöið stefnu þeirra. Þeir reyndu slíkt í Kina en við hröktum þá burt. Ef við bæð- um Sovétríkin um hjálp kæm- umst undir þeirra stjórn (komm ando) og við óskum þess ekki. ENGIN KÍNVERSK AL- ÞJÓÐA KOMMÚNISTA- STEFNA“ Chen Yi neitaði því, að Kina miðaði að þvi að stofna til nýs kommúnistisks alþjóðafél.skap- ar (kommunistisk intemation- ale). Hann kvað alþjóðasamband kommúnista hafa verið leyst upp 1943, vegna þess að komm únístaflokkamir hefðu þá verið búnir að ná þroskaaldri og stað an innan hinnar alþjóðlegu kommúnistahreyfingar þá verið orðin sú, að miðstjóm til for- ustu hennar hafi verið orðin ó- nauðsyr.leg, og það sé enn í fullu gildi. Chen Yi brá fyrir sig gaman- semi, vegna spuminga blaða- mannanna um liðna atburði, sem Kínastjómin hafði áður sagt álit sitt á, og bætti við: — Ég veit vel, að þið óskið nýrrar umsagnar, en ég hef ekki neinu við að bæta, þegar við höfðum látið álit okkar i ljós opinberlega. Þegar við höfum tekið ákveðna pólitíska afstöðu fylgjum við þeirri stefnu árum saman. Stjómmálaleg afstaða okkar breytist ekki dag frá degi. (Eftir Norðurlandablöðum) að efla og bæta starf barþjóna og hafa samtökin nú nýlega komið upp skóla í Luxemburg þar sem barþjónar á aldrinum 21—26 ár aera sérstaklega þjálf aðir til starfsins. Einn aðalþáttur i starfsemi samtakanna hefur verið árleg cocktailkeppni og hefur nú ver- ið ákveðið að heimsmeistara- keppnin í cocktailblöndun verði háð annaðhvert ár og í því til- efni munu íslenzkir barþjónar bera fram tillögu nú á fundin- um, að árin, sem ekki er haldin heimsmeistarakeppni, verði nor- ræn keppni um bezta cocktail- inn. íslenzku samtökin leggja einnig fram á fundinum frum- drög fyrir norrænu samtökin, en þau hafa ekki verið til f ákveðnu formi fyrr. Sú hefð hefur skapazt að for- seti samtakanna er formaður fé- lags barþjóna í þvi landi, sem ársfundurinn er haldinn. I stjóm Barþjónaklúbbs ís- lands era: Símon Sigurjónsson, formaður, Daníel Stefánsson varaformaður, Viðar Ottesen rit ari, Róbert Kristjónsson gjald- keri og Jón Þór ólafsson með- stjórnandi. Norrænt barþjónamót

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.