Vísir - 27.05.1966, Side 16
I
ALÞJÓÐLEGT
SJÓSTANGA-
VEIÐIMÓT
Dagana 11.-12. júnl verður þriðja
alþjóðlega sjóstangaveiðimótið á Ak
ureyri haldið og stendur Sjóstanga
veiðifélag Akureyrar fyrir þvi.
Þessi mót hafa áður verið fjölsótt
og hafa gefið góða veiði. Er nú bú-
ið að opna þátttakendaskrá og
geta menn skrifað sig inn hjá ferða
skrifstofunni Sögu í Reykjavík og
á Akureyri. Mótið verður sett á
föstudagskvöldið og því verður slit
ið á sunnudagskvöldið í Sjálfstæð-
ishúsinu, en róið verður laugardag
og sunnudag frá Dalvík.
S'ildin treg og 200
milur úti i hafi
Veður er gott á miðunum, en
veiði lítil.
Bátar köstuðu á 200 mílum í gær
kvöldi og 250 undir morgun. Síldin
er stygg og erfitt við hana að fást
sem fyrr. Ellefu skip hafa tilkynnt
afla, samtals 1640 smálestir.
Afli einstakra skipa síðastliðinn
sólarhring: Jón Finnsson 130 —
Gunnar 170 — Hafrún 180 — Ólaf-
ur Sigurðsson 170 — Stígandi 180
Náttfari 180 — Guðmundur Péturs
150 — Bára 120 — Guöbjörg GK
100 — Akraborg 100 og Óskar
Halldórsson 160. (Aflinn talinn í
smálestum).
Síldin fer að mestu til Seyðis-
fjarðar, en þangaö hefur verið nokk
uð jafn straumur hlaðinna síldar-
báta, 7 komu þangað í gær og í
Framh. á bls. 5
ísland I vann Norðmennina glæsilega. Hér sést sveitin og Sigríöur Ásmundsdóttir, dóttir eins keppandans, sem var komin tll þess að
vera hjá pabba í síðustu umferðinni. — 'Frá vinstri: Lárus Karlsson, Símon Simonarson, Sigríöur, Ásmundur Pálsson, Hjalti Elíasson og
Þorgeir Sigurðsson. Einnig er í sveitinni Gunnar Guðmundsson, en fyrirliði sveltarinnar er Hörður Þóröarson.
Sigurvissan kom þeim í koll
Visir talar v/ð einn keppanda i Island I, sem vann norska liðið i gær
— Sigurvissan kom Norðmönn
unum í koll, þeir höfðu aldrei
neina möguleika, staðan var 4:1
í hálflelk, sagði Þorgeir Sigurðs
son, einn af keppendunum í is-
lenzku bridgesveitinni I, þegar
blaðið hafði tal af honum í morg
un.
Islenzka sveitin vann Norð-
menn glæsilega og hafa íslend
ingamir nú 50 stig samtals og
eru næstir Norðmönnum, sem
eru 1 fvrsta, sæti með 61 stig.
Keppendurnir voru að tínast
að, og skipa sér niður við borð
in í Súlnasal Hótel Sögu í morg
un en áttunda umferðin og sú
síðasta í norræna bridgemótinu
hóst þ: kl. hálf tíu.
Mætir Island I Svíþjóð í síð-
ustu umferðinni og þarf að
vinna tólf stig í dag til þess að
verða efst á mótinu, ef Norö-
menn tapa sínum leikjum.
— Það er lítill möguleiki á því
að við náum öllum stigunum,
sagði Þorgeir, en við þurfum að
vinna Svíana með 6:0 til þess
að verða öruggir með annað sæt
ið, en Svíarnir eru núna með 49
stig alls. Hin íslenzka sveitin
keppir á móti Danmörku.
ísiendingamir hafa staðið sig
frekar slaklega á undanfömum
norrænum mótum í bridge, sem
haldin hafa verið annað hvert
ár, við höfum aldrei komizt
nema í f jórða sæti áður. Kannski
hjálpar til að bridgemótið er
haldið hér. Þetta er fyrsta nor-
ræna bridgemótið hér á landi,
það er mikið fyrirtæki að halda
slík mót og þetta er í fyrsta sinn
sem við höfum þorað að ráðast
í svona stórframkvæmd, en alls
eru héma um 80 erlendir spila
menn.
Aftur tvöfaldur sigur Islands
Unnu efstu sveitinu, Norðmenn, 6:0
Á fjórða hundrað manns sáu ís-1
land I vinna Noreg I á sýningar-
Mæðrablómið seld
ist fyrir 190 þús. kr.
Á uppstigningardag fór fram
merkjasala Mæðrastyrksnefndar
að vanda og seldist mæðrablóm
ið fyrir um 190 þús. kr. Rennur
allur ágóðinn til nýbyggingar-
innar að Hlaögerðarkoti sumar
dvaiarheimilis Mæðrastyrks-
nefndar í Mosfellssveit.
'Vill Mæðrastyrksnefnd sér-
staklega færa þakkir foreldrum
sem serjdu börn sín og komu
sjálf og hjálpuðu með söluna
og borgarbúum fyrir velvilja og
rausn, sem fyrr fyrtr að kaupa
litla, fallega mæðrablómið. Fær
ir formaður Mæðrastyrksnefnd
ar, Jónína Guðmundsdóttir
beztu þökk og kveðjur til allra
fyrir hönd félagsins.
töflunni í gærkvöldi. ísland II spil
aði við Danmörkll og unnu þeir
einnig sinn leik. Þrátt fyrir þennan
tvöfalda sigur er annað sætið eng
an veginn tryggt, þar sem Svíar
unnu einnig báða sína leiki. Noreg
ur þarf hins vegar aðeins aö fá
eitt vinningsstig úr leikjunum í dag
til þess að tryggja sér Norðurlanda-
mótstitilinn.
Orslit 7. umferðar voru þannig:
Finniand II — Noregur II (68 : 39)
93:98 2-4
Danmörk II — ísland II (21:71)
58: 135 0-6
Finnland I — Svíþjóð II (26:83)1
55: 119 0-6
Danmörk I — Svíþjóð I (22 : 57)!
46:99 0-6
Noregur I — ísland I (1 : 41) 24 : 93
0-6
í kvennaflokki fóru leikar þann!
ig í fjórðu umferö:
Svíþjóð — ísiand 166 : 73 6-0
Finnland — Danmörk 128 : 88 6-0
Noregur sat yfir
Staöan í kvennaflokki er þessi
eftir fjórar umferðir:
Nr. 1 Svíþjóð 453—264 17
— 2 Finnland 453—264 17
— 3 ísland 382—541 9
— 4 Noregur 424—422 7
— 5 Danmörk 260—414 0
Staöan í opna flokknum er þessi:
Nr. 1 Noregur I 703-544 33 — Nor
egur II 653-527 28, samtals 1356—
1071 61.
Nr. 2 íslandl 615-533 27 — ís-
land II 654-577 23, samtals 1269—
1110 50.
Nr. 3 Sviþjóð I 630-679 19 — Swí-
þjóð II 622-535 30, samtals 1252—
1234 49.
Nr. 4 Danmörk I 650-042 20 — Dan
mörkll 542-745 5, samtals 1192—
1387 25.
Nr. 5 Finnland I 555-701 15 — Finn
landll 629-750 10, samtals 1184—
1451 25.
Lokaumferð mótsins hófst kl.
9.30 í morgun, en mótinu lýkur í
dag. I kvöld sitja þátttakendur
veizlu í boði Bridgesambands ís-
lands, sem haldið verður á Hótel
Sögu.
Leikarar frá Akureyri
sýna Wilder í Reykjavík
Leikfélag Akureyrar hefur tvær
sýnhigar á „Bænum okkar“ elnu
Samningur við lækna undirritaður
Nær til liEusráðinna læknn
Samningurinn milli Læknafé-
lags Reykjavíkur og stjórnar
nefndar ríkisspítalanna um
laun iausráðinna lækna var und-
irritaður í gær, en sem kunnugt
er hefur undirbúningur að þess-
um samningi staðið yfir lengi og
læknar við Landspítalann og
Kleppsspítalann oftar en einu
sinni sett mótaðilum sínum úr-
slitakosti og hótað að leggja
niður störf. Til þess hefur þó
ekki komið og hafa læknar unn
ið samkvæmt sérstöku bráða-
birgðafyrirkomulagi undanfarið.
Samkvæmt hinum nýja samn
ingi verða læknar ráðnir til
starfa á ríkisspítulum með öðr
um hætti en áður hefur þekkzt
þ.e. lausráðnir til starfa allt frá
3 klst. á viku upp í fullt starf.
Eru að auki ákvæði í samningn
um um vinnu við vaktir.
Samningurinn fjallar eins og
fyrr segir um lausráðningu
lækna en til slíkra ráðninga kem
ur ekki nema i þeim mæli, sem
læknar fást ekki í fastar stöður
við sjúkrahúsin. Læknar, sem
lausráðnir verða munu
ekki njóta þeirra sérstöku rétt-
inda, sem ríkisstarfsmönnum
eru tryggð með lögum. Stjóm
ríkisspítalanna teiur þó að á
grundvelli hins nýja samnings
muni unnt að tryggja að þjón-
usta á sjúkrahúsum rikisins
verði jafngóð og áður var.
Stjóm Læknafélags Reykjavík
ur undirritaði samninginn fyrir
hönd félagsins, en í henni eiga
sæti læknarnir Árni Bjömsson,
Magnús Ölafsson og Guðjón Lár
usson. Að samningsgerðinni
vann einnig launanefnd félags-
ins, læknarnir Víkingur Arnórs
son, Jakob Jónasson og Sig-
mundur Magnússon, svo og lög
fræðingar þess, Guðmundur
Ingvi Sigurðsson hæstaréttar-
lögmaður. Fulltrúar Stjórnar
nefndar ríkisspítalanna v:
samningsgerðina voru Guðjón
Hansen tryggingafræðingur og
Þór Vilhjálmsson borgardómari,
og undirrituðu þeir samninginn
fyrr hönd nefndarinnar.
þekktasta verki leikritaskáldsins
Thomtons Wilder í Iðnó á mánu
daginn 2. í hvítasunnu kl. 3 og
ki. 8.30. Þetta er þrlðja verkefni
Lelkfélags Akureyrar í vetur. Áður
hafa verið sýnd Skrúðsbóndlnn eft
ir Björgvin Guðmundsson og Swed
enhelm fjöiskyldan.
Leikfélag Akureyrar veröur 50
ára á næsta ári. Það hefur ekki
farið leikför til Reykjavíkur síðan
1943, þá sýndi það Brúöuheimilið
í Iðnó undir leikstjórn Gerdu Grieg
og Alda Möiler lék þá með félaginu
sem gestur.
Leikmynd sýningarinnar gerði Að
alsteinn Vestmann en leikstjóri er
Jónas Jónasson og sagði hann á
fundi með fréttamönnum í gær að
það væri einkum góðvilja Leikfé-
lags Reykjavíkur að þakka að af
þessari leikf. varð þar eð ekki væri
hægt að sýna verkið nema við full-
komnar aðstæður og Leikfélags-
menn hefðu sýnt þann góðvilja
að lána Iðnó þó að 'það væri áset
ið með sýningar.