Vísir - 10.06.1966, Page 2
V í S IR . Föstudagur 10. júní 1966.
Enska liöiö við komuna til Reykjavíkur.
Stutt...
O Útbreiðslunefnd KKl og
KKR halda námskeið í körfuknatt-
Ieik fyrir drengi 10—16 ára i
Gagnfræðaskóla Austurbæjar- og
Langholtsskóla. Flokkur 10—13
ára verður á tímabilinu frá 16—18
og flokkur 13—16 ára frá 19—21.
Námskeiði mun standa yfir í júni-
mánuði og verður kennt þrisvar í
viku. Kennarar eru Einar Ólafsson
í Langholtsskóla og Þórarinn
Ragnarsson í Gagnfræðaskóla
Austurbæjar. Námskeiðsgjald er
kr. 50.
AKURNESINGAR REYNA 4-2-4
„Ákveðnir i að berjast vel", sagbi RikharBur fyrir-
liði i gær um leikinn gegn Norwich i kvöld
„Við erum ákveðnir í að
duga betur en blessað
tilraunalandsliðið, eins
og suniir hafa kallað
það“, sagði annar hlekk-
urinn í „2“ í 4—2—4
kerfi Skagamanna, Rik-
harður Jónsson, fyrirliði
og þjálfari liðsins, sem í
kvöid mætir gestum sfn-
um frá enska atvinnufé-
laginu Norwich í Laugar
dal í kvöid.
„VSð erum að reyna 4—2—4
hér“, sagði Rfkharður, „og í
kvöld fáum við okkar fyrstu
reynslu hvernig þetta kerfi
hentar okkur“.
— Hvemig stendur á því að
þú leikur enn með, þrátt fyrir
allt sem á undan er gengið,
meiðsli og fleira?
„Já, það má reyndar segja
að þetta jaðri við hreina vit-
leysu hjá mér á gamals aldri.
En siðastliðið haust hættu 5
'leikmenn í liðinu, ef ég hefði
hætt hefðu þeir verið 6. Ein-
hvers staðar varð að hætta. Ef
meira en helmingur liðsins hefði
hætt, hefði vart staðið steinn
yfir steini lengur. Ég ákvað að
halda áfram og nú er æft af
krafti, a. m. k. þrisvar í viku“.
— Og hvemig lítur liðið
ykkar út í kvöld?
„Markvörður er Einar Guð-
leifsson, ungur og efnilegur
piltur, en vörnina skipa Bene-
dikt Valtýsson, Þröstur Stefáns-
son, Pétur Jóhannsson og Bogi
Sigurðsson. Við Jón Leósson
emm á milli vamar og sóknar,
ég afturliggjandi innherji. í
sókninni eru Matthlas Hallgrlms
son, Guðjón Guðmundsson,
Björn Lámsson og Þórður Jóns-
son“.
Og í gærkvöld kom enska
liðið til Reykjavíkur og var
tekið á móti því af móttöku-
nefnd ÍA og liðsmönnum fylgt
til hótels síns.
Leikurinn f kvöld á Laugar-
dalsvelli hefst kl. 20.30 og von-
andi fá menn betri leik en á
döguruum, þegar tilraunalands-
liðið lék, er. sá leikur olli mikilli
gremju hjá þeim sem á horfðu.
Akurnesingar eru annars frægir
fyrir annað en það að láta hjá
líða að berjast, baráttuglaðara
lið gefur vart að finna hér á
landi og vonandi tekst þvf að
hamla nokkuð gegn atvinnu-
mönnunum ensku. — jbp —
1 gær lýsti Frjálsíþróttasam-
band Noregs yfir því að aflýsa
yrði keppni Vestur-Norðmanna
og íslands, sem fram átti að fara
í Byrkjelo í Norfjord 3. og 4.
ágúst n. k.
Það eru fjárhagsvandræði,
sem eru orsökin. Fyrirtæki eitt
hafði gefið Norðmönnum loforð
um styrk að upphæð 10.000
norskrar krónur, en varð nú að
draga það loforð til baka.
• Kópavogsskóli varð sigur-
sæil í víðavangshiaupi skóla í
Kjalarnesþingi, sem fram fór ný-
lega. Alls tóku 70 þátt f þessu
hlaupi frá 10 skólum á svæðinu.
Sigurvegarar f öllum aldursflokkum
voru úr Kópavogi og stigahæstu
skólar í hverjum flokki voru
einnig skóiar í Kópavogi.
„Þetta eru mikil vonbrigði
fyrir okkur frjálsíþróttamenn og
héraðið, sem hafði uppfyllt allar
kröfur til að halda þetta mót og
alit var klappað og kiárt til að
taka á móti íslendingunum“
Það gætir víða vonbrigða.
íslenzkir frjálsíþróttamenn
höfðu hlakkað til þessarar ferð-
ar, sem er aflýst nú á svo snögg
an hátt. í fyrra fór á svipaðan
hátt með „heimboð“ Dana.
L0F0RD UM 60
ÞÚSUND BRÁST
. . og Noregsferð úr sögunni
Lærir þjálfun hjá
ársins" í USÁ
Guðmuitdur Þ. Hurðurson í 10 vikur
hjó Don Gumbrill í Los Angeles
Eíjmi af yngstu og jafn-
framt efnilegustu sund-
þjálfurum okkar, Guð-
mundur Þ. Harðarson
ilr Ægi, lagði fyrir
nokkrum dögum upp í
langt ferðalag, alla leið
tll Los Angeles, en þar
mun hann verða næstu
10 vikumar við þjálfara
nám hjá heimsfrægum
sundþjálfara, Don Gamb
rill, en hann var kjörinn
„sundþjálfari ársins“ í
Bandaríkjunum í fyrra.
Nokkru áður en Gdðmundur
lagði af stað til USA, hitti und-
irritaður hann þar sem hann var
önnum kafinn við að kenna byrj
endum sund f Sundlaug Vestur-
bæjar, en þar hefur Guðmundur
undanfarið starfað, en hann er
íþróttakennari að mennt.
„Þetta er einstakt tækifæri,
sem ég fæ þama“, sagði Guð-
mundur, „og vonandi verð ég
reynslunni rfkari, þegar heim
kemur, og væntanlega fæ ég þá
að miðia af þvf sem lærzt hef-
ur“.
Guðmundur sagði að þetta ein
stæða tækifæri hefði boðizt sér
vegna þess að Torfi B. Tómas-
son, sem er í stjórn ^SÍ og
landsþjálfari í sundi, 1 ver-
ið í bréfaskriftum við ritara
bandaríska þjálfarasambandsins
og hefði þetta borizt í tal og
Gambrill síðar verið fús til að
taka á móti Guðmundi til sín.
Fél. sem Gambrill þjálfar City
of Commerce Club hefur á að
skipa úrvalsfólki, aðaliega mjög
ungu afreksfólki, t.d. Patty
Careto, sem á heimsmet í 800
og 1500 metra skriðsundum og
„þjálfara
næstbeztan tíma í 400 metra
' skriðsundi, Marta Randell og
Sharon Finneran. Þá er f félag-
inu 16 ára skriðsundsmaður
Don Roth, sem er framarlega
á heimsafrekaskránni fyrir 100
metra skriðsund.
Guðmundur mun einnig heim
sækja annað félag, Santa Clara,
sem er lfklega sterkasta sund-
félag heims, en meðal félaga þar
er Don Schollander, fjórfaldur
OL-meistari í Tokyo. Ferðalag
Guðmundar endar í Nebraska,
þar sem hann verður viðstaddur
meistaramót Bandaríkjanna í
sundi, en félag hans City of
Commerce Club varð stigahæst
í keppninni í fyrra.
Það er ástæða til að fagna þvi
tækifæri sem Guðmundur fær
með þessu til að kynnast banda
rískum aðferðum við sundþjálf-
un og tilhögun móta. Það er
alkunna að Bandaríkjamenn eru
lengst á veg komnir í þessum
efnum og það er ekki ónýtt að
fá svo viðurkenndan þjálfara
sem Gambrill til leiðsagna. Þjálf
aravandamálið hefur verið eins
erfitt hjá sundmönnum og öðr-
um íþróttamönnum, en með
þessu móti er unnið að því að
fá góða þiálfara, ekki aðeins
fyrir einstck félög heldur heild-
ina. — jbp —
■SBTS
GUÐMUNDUR Þ. HARÐARSON — reynslunni ríkari eftir 10
vikur meö Gambriiil.
i ,