Vísir - 10.06.1966, Side 4
•Jfe.
V í S IR . Föstudagur 10. júní 1966.
Enn ein sænsk kvikmynd sem
fjallar um það forboðna
XJvaS er það sem gerir sænsk-
ai kvikmyndir svo einstak-
ar í sinni röö í dag? Á síðustu
árum hafa þær unnið sér svo
mikla frægð víða um heim, að
„sænskar kvikmyndir" er líkt og
orðið sérstakt hugtak. Víða er
deilt um þær, þær valda hneyksl
un og skelfingu, þær snerta á-
horfendurna dýpra en nokkuö
annað. Viku eftir viku flykkjast
spámönnum sænskrar kvik-
myndagerðar.
Já, hvað hefur gerzt í
sænskri kvikmvndaframleiðslu?
Aðeins fáein ár eru síðan sænsk
ar kvikmyndir voru lítt eða ekki
þekktar í öðrum löndum, þær
þóttu væmnar og lélegar, oftast
byggðar upp á sama leiðindafras
anum, það var sveitastúlkan, er
fór til borgarinnar lenti á glap-
Systkinin, sem hafa verið svo góðir félagar frá barnsaldri.
Reykvíkingar þúsundum saman
suður í Hafnarfjörð til að skoða
.Þögnina' eftir Ingmar Bergman
þó er „Þögnin“ að margra áliti
í flokki lélegri kvikmynda hans
og Ingmar Bergman er aðeins
einn og þó ekki sá lakasti af
kynferðismál „sex“ í þeim en
áður var, en það er vafasamt
hvort það fær staðizt því að
gömlu leiðinlegu sveitastúlku-
myndirnar voru einnig fullar af
kynferðislosta.
Það er örðugt að skilgreina
þetta, en höfuöatriðið er senni-
lega það að sú skoðun hefur rutt
sér til rúms í Svíþjóð að kvik-
myndaframleiðandinn sé fyrst
og fremst listamaður, sem geti
líkt og skáldið leyft sér allt.
Þetta sjónarmiö er í algerri and-
stöðu við sjónarmiðin t.d. í
Bandaríkjunum, þar sem kvik-
myndaframleiðandinn virðist
frekar líta á sig sem forstjóra
eða handiðnaðarmann, sem rað
ar á filmuna í hvert skipti mátu
legu magni af hestum eða bílum
ísskápum, nylonsokkum, faðm-
lögum og kossum og svo er tert-
an búin.
stigum og endaði sögu sína með
þvi að snúa ólétt heim í sveit-
ina aftur eða lenda á hæli fyrir
vandræðastúlkur.
Cumir segja að breytingin sé
^ sú, að það sé meira um
Cænski kvikmyndaframleiðand-
inn er fyrst og fremst skáld
og málari. Hann yrkir óð sinn
um lífið, það þarf ekki að vera
neinn dýrðaróður, heldur skáld-
verk um þjáningu og kvöl. Misk
unnarlaust skoðar hann persón-
una niður í kjölinn, hatrið af-
brýðisemina og syndina sem vak
ir í hverri sál. Hann fæst vissu-
lega mjög við það stóra vanda-
mál, hvað er svndin, hann gerir
það í gamansömum tón um djöf
ulinn sem kemur í heiminn til að
freista mannanna, hvernig synd
in er blönduð saman úr löngun
í það sem ýmist er talið illt eöa
gott.
Skáldinu leyfist allt, segja
menn, það á líka að Iáta sig
einu gilda, hvort ljóðabækur
þeirra seljast, en hvað um kvik
myndaframleiðandann, má hann
líka láta sér standa á sama um
hvort kvikmyndin selst, verður
hann ekki fyrst og fremst að
semja myndir sínar svo að þær
geti talizt útgengileg verzlunar-
vara. Er það ekki einmitt þetta
sem Ameríkanamir eru alltaf að
gera, þeirra formúla er aðeins
mátulega mikla rómantík svo að
glansmyndin seljist.
Brúðguminn reynist harðstjóri og kvalari.
Cænsku kvikmyndimar valda
^ hins vegar hneykslun. Víða
um lönd eru þær bannaðar og
fást aðeins sýndar í lokuðum
klúbbum. Um hitt er deilt hvort
vandamálið sé að það sé of mik-
ið um kynferðismál í sænskum
kvikmyndum, eöa hvort þeir
sem hafa með höndum kvik-
myndaskoðunina í Bretlandi og
Bandaríkjunum lifi enn aftur á
Viktoríutímum.
Og sölumenn sænsku kvik-
myndafélaganna hafa veitt því
athygli, að umboðsmenn rússn-
eskra og austur-evrópskra kvik-
myndahúsa vilja alltaf fá að
horfa á sænsku kvikmyndirnar
áður en þeir neita að kaupa þær.
Þó kemur það fyrir i Apstur-
Evrópulöndum, að levft er að
sýna sænskar kvikmyndir fyrir
takmarkaða hópa æðri stéttar
þessara ríkja. Þaö er athyglisvert
að fólkið í þessum stéttlausu
sósialistaþjóðfél. er farið aö
skiptast f tvær stéttir, æðri stétt
ina, sem má horfa á sænskar
kvikmyndir, og óæðri stéttina,
sem má ekki horfa á sænskar
kvikmyndir.
■phn nýjasta hneykslunarmynd-
in sænska sem nú er að
koma á markaðinn, heitir „Sys-
konbadd“ eða systkinarúm. Hún
fjallar um viðfangsefni, sem
annars er yfirleitt lagt bann við,
þann siðferðilega glæp, að syst-
kini elskist og unnist. Framleið-
andinn er Vilgot Sjöman, syst-
kinin eru leikin af Per Oscars-
son og Bibi Andersson, sem bæði
eru nú í röð frægustu kvik-
myndaleikara Svía. Léikurinn
gerist á 18. öld á dögum Gústafs
3. Svíakonungs og inn í það
blandast þriðja persónan, eigin
maðurinn, sem stúlkan gengur
að eiga, en reynist kvalari og
harðstjóri. Hann er leikinn af
Jarl Kulle. Vissulega eru ástríðu
full atriði í þessari kvikmynd
en þó er það sennilega ekki það
sem kvikmyndahúsagestimir
sækjast mest eftir, heldur hitt,
að þeir finna, að það er skáld
sem semur myndina, skáld sem
þorir að tala út og segja sann-
leikann og leyfir sér jafnvel að
halda því fram að syndin sé
ekki einungis lævís, — heldur
líka fögur.
RÝMINGARSALAN >f SKÓLAVÖRÐUSTÍG 3 >f RÝMINGARSALAN
STÓRKOSTLEG VERÐLÆK 'Æ
GJAFAVÖRUR
NYRTIVÖRUR - SOKKAR I ÚRVALI
RÝMINGARSALAN >f SKÓLAVÖRÐUSTÍG 3 >f RÝMINGARSALAN