Vísir - 11.06.1966, Blaðsíða 3

Vísir - 11.06.1966, Blaðsíða 3
Mrtfififo'jfiftii** 3 VlSIR . Laugaidagur 11. júní 1966. lllllllllllllllllllllllllllllllllllllll■lllllll i iii■» iiiiiii—I— IZ3 Eigendumir á nótadekkinu: Jón, Sigurður og Marius Héðinssynir. Stýrishúsið er þaan<g lagað að þaðan sér veil aftur á og getur skipstjóri fylgzt með nótardrættinum úr brúnni. Gestir um borð / Héðni: Fiskiskip tæknilegra nýiunga 1 'Oeðinn hið nýja og glæsilega skip Húsvíkinga kom á fimmtudaginn til Hafnarfjarðar og gafst sunnlenzkum útvegs- mönnum og öðrum fyrirmönn- um sjávarútvegs hér syðra kostur á að skoða skipið. Var þar fjöldi manns &aman kominn um borð seinni partinn í gær En skipið sigldi út fyrir höfn- ina og var þar sýnt brot af siglingahæfileikum þess. M.a. hvemig unnt er að snúa því á „punktinum“ eins og menn segja fyrir tilverknað bógskrúf anna, sem er ein af nýjungum þessa skips nýjunganna. Þessar skrúfur em nokkuö fyrir framan miðju skipsins sin hvorum megin á bógum þess. Með þeim er leyst úr erfiöleik- um sem hvað mest hafa torveld að nótadrátt eftlr tilkomu kraft blakkanna. Það er aö bátamir hafa togazt inni í nótina þegar verið er að draga hana inn. Hver síldarbátur hefur því orð ið að hafa smájullu meö utan- borðsmótor allsterkum til þess að halda skipinu frá nótinni. Bógskrúfurnar leysa þessar jull ur af hólmi. Þetta er annar síld arbáturinn, sem hefur slíkan út búnaö hérlendis. Þá heyrir stýrishúslagiö einn ig til nýjunga, en það er sér- staklega lagaö fyrir síldveið- ar og hefur skipstjóri góða yfir sýn yfir nótadekkið úr brúnni Siglingatæki em aö sjálfsögðu hin fullkomnustu og annarra kosta skipsins hefur þegar ver lö getið hér í blaðlnu. Skipiö er 40. nýsmíði norsku skipasmíðastöðvarinnar Ulstein Mek, en umboð fyrir fyr- irtækið hér á landi hefur Heild verzlunin Hekla. Aflvélin er 800 ha CaterpiIIar en spil og aðrar þilfarsvélar em frá Norwinch. Ganghraði skipsins er 11.3 sjóm. BÆÐI FYRIR SÍLD OG ÞORSK VHsir átti örstutt spjall við norska verkfræðinginn Idar Ulstein, sem kom upp með skipinu, en hann starfar hjá skipasmíðastöðinni Ulstein Mek. Var hann beöinn að skýra örlít ið frá kælikerfinu og hinni sjó kældu lest. Sagöi hann, að síld- artankinn, sem er 80 lestir aö stærð, væri hægt að kæla nið ur í 6-0° C við 15° C hita and- rúmsloftsins og þaö ætti að geta skeð á minna en 12 klst. Tank- urinn er einangraður með vatns þéttri elnangrun. Sjórinn, sem kældur er niöur í kælivélum fremst í skipinu rennur í stokka í kælitank eða síldartank lest arinnar og f honum gengur skrúfa, sem heldur vatninu á hreyfingu. Sildin ætti að haldast í vinnsluhæfu ástandi við þessar aðstæöur f 5-6 daga, einnig ætti síldin aö haldast það fersk að hún þoli mun hærri hleðslu en vfð ísim. Ulstein taldi eng- in tormerki á að geyma annan ■ : Ur vélarúmi skipsins. Vélarnar eru 3, ein aflvél og tvær ljósavélar. Norski verkfræðingurlnn Idar Ulstein styður sig viö styttu og ræöir við einn gestanna. fisk eins og t.d. þorsk í lest- inni og er af því hægt að ráða hverja þýðingu slfkt gæti haft í tregu fiskiríi á vetrarvertíðum eða við aðstæöur eins og vom hér sunnalands í vetur þegar sækja þurfti á fiarlæg mið. Skipstjórinn, Maríus Héöins son, sem er eigandi bátsins jafn framt bræðrum síuum tvelmur, lét á sér skiljast að hann væri orðinn óþolinmóður af biö eftir að komast á veiðar, en báturinn fer austur á síld innan tfðar. Bóndobærínn — Framh af bls. 8 byrjun marz var síðan efnt til sérstaks tilraunanámskeiðis í keramik og mosaik. — Það sem er mest áberandi á sýningunni eru samvinnu- myndimar, sem heill bekkur vinnur að, segir Magnús, við skiptum þessu niður á börnin aðallega vegna stærðarinnar á myndunum, og er bömunum hverju um sig falið að gera á- kveðinn hluta myndarinnar, síð an er öllum hlutunum raðað saman. Eftir teikninámskeiðið voru bömin látin æfa sig í keramik og gerðar tilraunir til brennslu áður en byrjað var á mosaik- myndunum stóru. — Það má segja að mosaik myndimar séu nýtt innlegg í bamaföndur á íslandi segir Ragnar, það er ekki lagt mik ið upp úr tækninni hún er eins primitiv og hægt er, og notuð ódýmstu efni. Að við höfum brennsluofn hefur skapaö mikla möguleika og má1 segja að meö sýningunni getum við kannski opnað augu skólastjóra og þeirra, sem hafa með bamaheimili að gera fyrir því, sem börnin geta gert, meö brennsluofninn viö hendina. Nokkur verkefni voru lögö til athugunar áður en. byrjað var á myndunum og ákveðið var að önnur deildin gerði ís- lenzkan bóndabæ en hin defld in örkina hans Nóa. Myndimar urðu allt öðm vísi en við áttum von á og miklu stærri. Örkin hans Nóa er t.d. 4x16 fet á stærð. Bömin byrjuðu fyrst á því að gera dýr in, blóm og tré í keramik og allt í einu var komin það stór hrúga að við þurftum að fara að brenna. Eftir það unnu þau í nokkrar vikur við að raða mosaikinni niður. Bóndabæjarmyndin hlaut nafn ið Kirkjuhóll, þama sjáum við prestinn og maddömuna, og bændahjónin, öll dýrin og vél amar, sem flest þeirra vildu fá að gera, en á bænum vildu þau bæði hafa jeppa og vörubíl auk dráttarvélar og beltisvélar og bóndabærinn er með burst um, en byggingarlagi húsa í Hlíðunum eins og einn arki- tekt sagði, þegar hann leit héma inn fyrir skömmu. Öryggisbeíti i bifreibina Höfum fengið öryggisbelti í allar gerðir bif- reiða SMYRILL Laugavegi 170 (varahlu.averzlun)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.