Vísir - 11.06.1966, Blaðsíða 9

Vísir - 11.06.1966, Blaðsíða 9
VÍSIR . Laugardagur 11. júní 1966. 9 ■ llr ræðu stórtemplurs við setningu Stórsfúkuþings starfsemi. Á ýmsum stö£nun hefur Reglan komiö á fót og hlvnnt aö margs konar tóm- stundavinnu unglinga, svo sem á ísafirði, Reykjavik, Hafnar- firði og Akureyri, þar sem Reglan starfrækir æskulýðs- heimili með fjölbreyttri starf- semi. Og þannig mætti lengur telja. Áfengislausar útisamkomur Af því sem nú hefur verið nefnt, má sjá, að Reglan hefur víða komið við á þeim tíma, sem hún hefur starfað hér á landi. Enn lætur hún víða til sín taka, þótt minna beri á en áður, vegna þess hve marg- vísleg önnur félagsstarfsemi er í fullum gangi. Þess má til dæmis geta, að fyrir nokkrum árum efndi Reglan til áfengis- lausrar útisamkomu fyrir ung- linga í Húsafellsskógi um verzlunarmannahelgina, en sú helgi var þá illræmd orðin fyrir drykkjulæti á samkomum um tíma, og mundi þó verra, ef á- hrifa templara og annarra bind indismanna hefði ekki gætt, bæði til eflingar bindindissemi einstakra manna og einnig til endurbóta á áfengislöggjöfinni eða til að koma í veg fyrir frek- ari spjöll á henni. Er langt frá því, að Stórstúkan telji gildandi áfengislög viðunandi og fram- kvæmdina þó stórum lakari en lögin sjálf. Má raunar segja, að skeytingarleysi og slappleiki i framkvæmd laga geri víða vart við sig f þjóðfélagi voru. LJngtemplarar og barriastúkur Sama vorið og Stórstúkan var stofnuð var fyrsta barnastúkan hér á landi stofnuð, Æskan í Reykjavík, er starfar enn 1 fullu fjöri. Óx unglingareglunni skjótt fiskur um hrygg, og á síðasta ári voru starfandi 65 stúkur í þeim samtökum með 7720 fé- laga. Hefur unglingareglan, alla eldri einnig verið alla tíð, al- hliða menningarfélög. Það er ekki aðeins, að þar liafi félags- skyn manna þroskazt og kunn- átta í fundarstörfum, svo mjög að mikill hluti þeirra manna, sem forystu höfðu í fyrstu sam- tökum verkalýðsins, höfðu feng ið félagslega þjálfun í stúkunum, enda voru lög og skipulag fyrstu verkalýðsfélaganna mjög sniðin eftir lögum og skipulagi stúkn- anna, — heldur hafa stúkurnar iðulega unnið að þroskun hugs- unar félagsmanna sinna með rökræðum um margvísleg mál- efni meðal annars um bók- menntir, með þátttöku í ýmiss konar menningarstarfsemi, svo sem leiklist, samsöng og fleiru. Systir stórvaratemplar vék að þessari starfsemi stúknanna áðan. Félagsstarfsemi Reglunnar Ég skal rétt aðeins nefna Eins og sagt var frá í blaðinu í gær var 64. þing Stórstúku íslands sett í fyrradag í Góðtemplarahúsinu í Reykjavik. Við setningu þingsins flutti störtemplar, Ólafur Þ. Krlstjáns son, skólastjóri Flensborgarskólans í Hafnarfirði, setningar- ræðuna og ræddi þar margháttuð störf Stórstúkunnar á um liðnum 80 árum, en hinn 24. júní eru 80 ár liðin frá þvf að Stórstúkan var stofnuð í Alþingishúsinu í Reykjavfk. L'yrsta stúkan hér á landi var stofnuð á Akureyri 10. janúar 18' eins og kunnugt er, stúlkan Isafold nr. 1, og starfar hún enn. Félagsskapur- inn náði skjótri útbreiðslu, fyrst á Norðurlandi og Vest- fjörðum, síðar á Suðurlandi. Þar var Verðandi nr. 9 í Reykja vík fyrsta stúkan, stofnuð i júli 1885, hálfu öðru ári eftir að Isafold var stofnuð. Og ári seinna mynduðu stúkumar i landinu með sér samband til þess að geta betur beitt sér i störfum. Stórstúka íslands var stofnuð í Alþingishúsinu í Reykjavík 25. júni 1886 af full- trúum 14 stúkna. Félagsmenn stúknanna töldust þá 542. Fyrsti stórtemplar var Björn Pálsson ljósmyndari. Stórstúkan á þannig 80 ára afmæli eftir hálfan mánuð. En að sjálfsögðu er þetta stór- stúkuþing, sem hér kemur sam- an í dag, afmælisþing, og er gert ráð fyrir, að störf þingsins mótist af meðvitund fulltrúanna um það, þótt ekki sé gert ráð fyrir, að miklum tíma sé varið til sögulegrar upprifjunar, held- ur lýsi þetta sér í þvi, hvemig þingið tekur á viðfangsefnunum, en þau eru eins og jafnan áður þetta: Hvemig á að starfa til þess að bindindisfélagsskapur og bindindissemi eflist sem mest meðal þjóðarinnar? Þetta hefur verið viðfangsefni Stórstúkunnar í átta áratugi.. Hún hefur unnið að því á ýmsan drykkja hér á landi, en löngu áður hafði verið bannað að brugga hér brennivin. Það er þetta lagaákvæði sem reynt hef- ur verið tvívegis nú á síðustu árum að fá afnumið með þvi að lögleyfa bmggun á sterkum bjór, en misheppnazt í bæði skiptin, or þótt templarar geti ekki þakkað sér einum þau úr- slit, þá hefur þó áhrifa þeirra gætt' þar nokkuð. Og haustið 1908 fór fram almenn atkvæða- greiðsla um aðflutningsbann á áfengi, og var bannið samþykkt með 4900 atkvæðum, en 3200 vom á móti. Gekk bannið að fullu I gildi 1. janúar 1915. Stórtemplar, Úlafur P. Kristjánsson flytur setningarræðu sina á Stórstiikuhinginu í fyrradag hátt. Hún hefur reynt að kynna stefnuna, útbreiða félagsskap- inn, stofna undirstúkur og efla þær. Hún hefur fyrr og siðar haft erindreka eða regluboða í ferðum um landið í þessu skyni, þótt aðra stundina hafi það reynzt ókleift vegna þess, að starfsfé hefur skort. Hafa sumir þessara regluboða unnið merkilegt starf og orðið næsta mikið ágengt. Þá hefur Stórstúkan jafnan reynt að hafa áhrif á löggjöf um átengismál. Hún hefur gert það á tvennan hátt: Hún hefur reynt að hafa áhrif á hugsunar- hátt almennings ýmist til breyt- inga á lagaákvæðum eða til þess að koma í veg fyrir fyrirhugaðar breytingar. Hún hefur komið sjónarmiðum sínum og rök- semdum á framfæri við lög- gjafana. Afstaða hennar til ein- stakra atriða i áfengislöggjöf- inni hefur ætlð á þessum langa tíma miðazt við það, hvað hún eða forráðamenn hennar hafa talig liklegast til þess aö draga úr áfengisneyzlu þjóðarinnar eða koma f veg fyrir aukningu hennar. Þess má geta til dæmis, að 1888 var snafsagjöf og staupa- sala í 'búðum bönnuð fyrir at- beina Stórstúkunnar, og 1900 var lögbundið, að matvöruverzl- anir yrðu að fá sérstakt leyfi yfirvalda til þess að selja á- fengi. Sama ár var lögtekið oann gegn tilbúningi áfengra Áhríf áfengisbannsins Þess sáust skjótlega mörg holl merki i þjóðlifinu. Skal hér aðeins vitnað til ummæla, sem Jón Magnússon, er þá var bæj- arfógeti i Reykjavik en varð síðar forsætisráðherra. lét falla í ræðu haustið 1916, þegar bann lögin höfðu verið i gildi I tæp tvö ár. Þá sagði bæjarfógetinn, að bæjarstjórinn í Reykjavík hefði fyrir skömmu sagt sér, að þá værl ekkert þurfamanna- heimili á sveitarframfæri i Reykjavík vegna áfengisnautnar framfærslumanns, en áður var hundraðstala slfkra heimila all- há. Ennfremur sagði bæjarfó- getinn, að áður hefði einatt ver- ið erfitt að lögskrá á fiskiskip- in, vegna þess að svo mikill hluti skipverja hefði verið drukkinn, en nú kæmi varla fvrir, að ölvaður maður sæist við lögskráningu. Hitt er svo raunasaga, sem ekki verður rakin hér, hvernig smátt og smátt var grafið und- an aðflutningsbanni og alls kon- ar undanþágur veittar frá því, hvemig andbanningar héldu úti blaði, Ingólfi, til þess að ó- frægja bannlögin og gera þjóð- ina þeim mótsnúna, hvemig jafnvel erlend stjórnarvöld lögðu sig fram til þess að eyði- leggja lögin, unz bannlögin voru loks afnumin 1935. Hefur á- standið í áfengismálum þjóðar- innar stórum versnað frá þeim tíð staríað j nánum tengslum við Stórstúkuna og undirdeildir hennar. Margir af forystumönn- um Góðtemplarareglunnar fyrr og síðar stigu fyrstu spor sín sem bindindismenn I bamastúk- unum. En bamastúkumar hafa jafnan verið annað og meira en bindindisfélög. Þær hafa verið almenn menningarfélög, þar sem bömin hafa fengið félagslegt uppeldi og þroskazt við alls konar samstarf: söng, upplestur, leiklist, fundarstjóm, ferðalög og fleira. Var þetta sérstaklega þýðingarmikið á fvrri árum, þegar enginn annar félagsskapur var til fyrir böm. Fyrir nokkmm árum voru fé- lagssamtökin Islenzkir ung- templarar stofnuð, — nánar tiltekið 1958, — ætluð ung- lingum 18—25 ára. Eru þau samtök einnig í tengslum við Regluna. Til Islenzkra ung- templara töldust við síðustu áramót 10 deildir með 740 fé- lögum. Væntir Stórstúkan mik- ils af þessum félagsskap bind- indisstarfseminni til heilla, því að hann hefur þegar unnið gott starf og upp á ýmsu brotið. Nú í sumar stendur til, að haldið verði norrænt ungtemplaramót hér á landi, og er von á fjölda útlendinga hingaö, en íslenzkir ungtemplarar veita mótinu for stöðu. Ég gat þess áðan, að barna- stúlkumar hefðu verið og væru almenn menningarfélög fyrir böm. Þetta hafa stúkur hinna ymiss Konar íélagsstarfsemi, sem á rætur sínar hjá Reglunni, þótt félagsstarfsemin hafi síðan vaxið sjálfstætt og breiðzt út. Leikfélag Reykjavíkur stofnuðu 12 templarar árið 1897, allir vanir á leikfjölum úr stúkun- um. Sjúkrasamlag Reykjavíkur var stofnað fyrir forgöngu mar - úr Reglunni 1909, eins konar útvfkkun á sjúkrasjóð- um innan, stúknanna. Samverj- inn, félag til matgjafa og líkn- arstarfa, var stofnað að for- göng: templara, en upp úr þeirri starfsemi óx Elliheimilið Grund. Glímufélagið Ármann, eldri Árniann, var runninn frá stúkunni Einingunni. Ein stúkan i Reykjavík stofnaði Alþýðu- lestrarfélag, og var það fyrsti vísirinn að Bæjarbókasafni Reykjavíl|iir. Nokkrir templarar gengust jfyrir stofnun Dýra- verndarféjags Islands. Reglan hafði fofgöngu um stofnun drykkjuménnahælis og starf- rækti þac| um hríð. Leshringa- starfsemi jjvar fyrst tekin upp af Reglurini. Það var ein af stúkunum í Reykjavík, sem átti upptökin í að Fangahjálpinni. Sjómannastofu stofnuðu templ- arar á Siglufirði fyrir aldar- fjórðungi !*og starfrækja hana enn. Barihaheimili hafa þeir stofnað og rekið á ýmsum stöð- um. Heimili í Skálatúni fyrir vangefin börn er stofnað og rekið á vegum umdæmisstúk- unnar nr. 1, þótt Styrktarfélag vangefinna sé nú aðili að þeirri gervallt landið. Þetta tókst vel, og hefur þvf verið haldið áfram síðan. önnur félagssamtök á ýmsum stöðum á landinu hafa fetað f fótspor templara í þessu efni og endurbætt stórum sam- komuhald um verzlunarmanna- helgina. Templarar sýndu, hvað þurfti að gera og hvað var hægt að gera. Aðrir fylgdu dæmi þeirra. Og ég hika ekki við að fullyrða, að mörgu væri betur farið en er f þjóðfélagi voru, ef fordæmi templara væri fylgt á fleiri sviðum, ekki sízt f per- sónulegri afstöðu einstaklingsins til áfengisneyzlu. Það liggur í augum uppi, að öll sú mikla félagsstarfsemi, sem templarar hafa haldið uppi og halda uppi, kostar mikla elju og geysimikinn tfma, auk beinna fjárútláta. Alla vinnu við félags starfsemina hafa templarar lát- ið hafa ókeypis. Væru þau dags verk öll reiknuð til daglauna, yrði það mikil upphæð. Auk þess bera templarar talsverðan beinan kostnað af að halda stúkustarfinu uppi, borga húsa- leigu og þar fram eftir götunum. Hinu skal svo ekki leynt, að ríkið hefur um langt skeið styrkt starfsemi Reglunnar með beinu framlagi á fjárlögum. Sumir bæir hafa lfka sýnt við- urkenningu sina á starfsemi stúknanna með því að veita þeim nokkum fjárstyrk. Þenn- an fjárstyrk allan ber að þakka, og jafnframt er Reglunni skylt Frh. á bls. 6. í

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.