Vísir - 16.06.1966, Síða 3
V í S I R . Fimmtudagur 1S. júní 1966.
FRJÁLSIR ÍAÐ-
HHS 24 STUNDIR
Uppreisnin 17. júní, 1953, er ekki
gieymd, en kröfum síðnn þú er enn
ófullnægt
Sagan skráir 17. júnl 1953,
þann dag sem uppþot urðu á
hemámssvæði Rússlands í
Þýzkalandi. Nú 13 árum seinna
eru tiifinningar milljóna Þjóð-
verja ekki síður bitrar og sárs-
aukafullar, en þegar fyrst heyrð
ist um niðurbælingu uppreisn-
arinnar. Kröfugöngur, þöglar
göngur og blysfarir, sem halda
á um allt Sambandslýðveldið
þennan dag, sýna ekki nema ó-
fullkomna mynd af þessum til-
finningum. 17. júní heldur á-
fram aö vera lifandi tákn og
dagur „sameinaðs Þýzkalands"
— dagur sameiginlegra endur-
minninga, hvatninga og sam-
kenndar.
Hinir sorglegu atburðir munu
aftur hljóma í ræðum leiðandi
stjómmálamanna, í útvarps-
þáttum og í blaðagreinum. Upp-
reisnin hófst 16. júní 1953 þegar
byggingaverkamenn í A-Berlín
neituðu að sætta sig við frekari
áætlanir um aukningu fram-
kvæmda og báru viö að ástand
almenningsþjónustu væri á
mjög lágu stigi. Þeir ákváðu aö
gera verkfall, söfnuðust saman
í mótmælagöngu og gengu sam-
an í gegnum borgina að ráðu-
neytishúsinu í A-Berlín. En
ganga verkfallsmanna snerist
fljótt upp í harðorða kröfu-
göngu. Verkamenn úr öðrum
iönaðargreinum og fótgangandi
sameinuðust göngunni. Þegar
gangan náði ákvörðunarstað
sínum, hafði verkfallsbylgjan
breytzt í alm''ina uppreisn og
var krafizt irjálsra kosninga,
betri lífsskilyrða og að komm-
únistastjórnin segði af sér.
Andstaðan, sem hafði byggzt
upp- og magnazt með árunum,
brauzt út sjálfkrafa. Fréttir af
uppreisninni bárust eins og eld-
ur um allt hemámssvæði Rússa
þrátt fyrir skort á opinberum
fréttaflutningi. Enginn hópur
rfianna var reiðubúinn til að
taka við völdum, þrátt fyrir að
íbúamir hafi aðeins haft eitt
markmið að morgni 17. júní:
Að losa sig við stjórn Kommún-
istaflokks A-Þýzkalands. Ganga
12.000 verkamanna frá stál- og
rennismíðaverksmiðju í Henn-
ingsdorf til Berlín verkaði eins
og hvatningarhróp. í nær öllum
stærri borgum brauzt út reiði
fólksins. Þar sem því var við
komjð, voru pólitískir fangar
leystir úr prísund og á mörgum
stöðum vom stjórnarmiðstööv-
ar dómstólar og verksmiðjur
Uppreisnin 17. júní 1953. Þýzkir verkamenn berjast með grjóti við rússneska skriðdreka.
teknar herskildi.
22 rússneskum herdeildum,
sem voru sendar til þess aö
bæla niður uppreisnina, tókst
þó að lokum að ná stjórninni
í sínar hendur. Það er alvitaö
að Kommúnistaflokki A-Þýzka-
lands hefði ekki tekizt að halda
völdum, nema með hernámsliöi
og blóðugum afskriftum hers-
ins.. Þessi hræðilega valdatog-
streita, þegar frelsið virtist svo
nær, kostaði hundruð látinna
og særðra. Margir uppreisnar-
mannanna voru dæmdir til
dauða þegar á eftir og var
nokkrum dómanna fullnægt án
tafar. Þar að auki voru meira
en 1000 menn dæmdir í margra
ára þrælkunarvinnu, fangelsi
eða vinnubúðir.
Nákvæm tala yfir þaö, hvað
þessi uppreisn vamarlausra
manna gegn skriðdrekum og
hörmungum kostaði, er hulin
bak við þagnarmúr, sem komm-
únistaflokkurinn vildi gjarnan
fela allt, sem viðvíkur þessum
atburöum í'júril.
Á þessum tínja undruðust
Vesturlönd, að almenn uppreisn
gæti átt sér stað í kommúnista-
LISTASAFN ÍSLANDS OPN-
AR NÝJA SÝNINGU
Ný sýning var opnuð í gær í
Listasafni ísiands, sem mun
verða opin hvern dag milli kl.
1.30 og kl. 3.30 fram til 1.
sept. Myndimar sem veröa til
sýnis eru hengdar upp með
nokkuð nýstárlegum hætti.
Þannig er samstæðum myndum
raðað eftir sölum, 17 svartlist-
armyndir eftir norska málarann
Munch eru i einum sal, myndir
eftir íslenzka málara í tímabil-
inu 1930—44 í öðrum o. s. frv.
Aðaláherzla er lögð á myndir
eftir 7 ísl. málara, sem komu
heim aö utan á árunum 1930—
44, málaðar á þessum tíma. Til
samanburðar eru svo nýlegar
myndir eftir þessa sömu mál-
ara og aðra málara og gefst
fólki þannig kostur á að virða
fyrir sér framför (eða afturför)
í íslenzkri málaralist á þessum
árum.
Margar myndir eru á sýning-
unni, sem ekki hafa verið sýnd-
ar áður. Má þar geta myndar
eftir Þorvald Skúlason, sem
hann gaf safninu nýlega og
myndar eftir Snorra Arinbjarn-
ar, en hún hefur lengi verið
til á safninu án þess aö hafa
sézt áður. Hún kom fram í dags
ljósið þegar önnur mynd eftir
Snorra var send utan til við-
gerðar. Kom þá i ljós að mynd
var undir þeirri fyrri og var
hægt að varpa myndunum nið-
ur á sitt hvorn strigann. Lista-
safnið eignaðist á þann hátt
tvær myndir fyrir eina.
Þegar þessari sýningu lýkur
verður tekið fyrir annað tíma-
bil í íslenzkri myndlistarsögu
og verður reynt að hafa þann
háttinn á framvegis að sýning-
amar verða byggðar umhverfis
ákveðið tímabil.
Jóhannes Jóhannesson, dr. Seima Jónsdóttir og Þorvaldur Skúlason i salnum með nútímalist.
blokkinni. Ungverjaland sann-
aði þremur ámm seinna að upp
reisn gæti átt sér stað, en á-
líka uppreisn gæti varla orðið
í dag eins og stjórnmálaástand-
ið er nú. Sú staðreynd, að millj-
ónir manna báðum megin við
hinn tilbúna múr bíða með eftir
ýæntingu eftir áætlaðri skipt-
ingu á ræðumönnum milli Sam-
bandslýðveldisins og A-Þýzka-
lands, sannar þó hversu mikil
þrá er fyrir hendi í sambandi
við friðsamlega nálgun þjóðar-
brotanna.
Barbara Herzog.
Skólaslit á Siglufirði
Gagnfræðaskóla Slglufjaröar
var slitiö 31. maí sl. Skólastjóri
var Jóhann Jóhannsson, en í
veikindaforföllum hans sleit
Guðmundur Magnússon skólan-
um.
í vetur stunduðu nám í skól-
anum 175 nemendur í 8 bekkj-
ardeildum. Unglingaprófi luku
61 nemandi. í landsprófsdeild
voru 11 nemendur. og stóðust
8 prófið. Gagnfræöapróf
þreyttu 23 nemendur og stQðust
22 prófið.
Hæstu einkunn í 1 bekk hlaut
Anna Ingólfsdöttir 9,19.
Hæstu einkunnir í 2. bekk
hlutu Sigríður Þórdís Einars-
dóttir og Þóra Guðmundsdóttir
báðar sömu einkunn 9.34.
Hæstu einkunn í 3. bekk hlaut
Eva Benediktsdóttir 8.53
Hæstu einkunn á gagnfræða-
prófi hlaut Anna Nílsdóttir
7,87.
Verðlaun veittu ýmsir aðilar
og sjóðir: Skólinn veitti verð-
laun Sveininnu Bjarkardóttur
fyrir umsjón í skólanum. Stúd-
entafélag Siglufjarðar fyrir
hæstu einkunn í íslenzku í 4
bekk.Þessi verðlaun hlaut Edda
Jónsdóttir. Ur Minningarsjóði
Jóns Jóhannessonar hlaut verð-
laun Anna Ingólfsdóttir fyrir
hæstu íslenzkueinkunnir í skól-
anum. Ur minningarsjóði Odds
Tryggvasonar hlaut verðlaun
Jón Finnur Jóhannesson fyrir
háttprýði og reglusemi. Lions-
klúbbur Siglufjarðar- veittj verð
laun fyrir samanlagða hæstu
einkunn ( bókfærslu og stærð-
fræði í 4. bekk. Hlutu þau Sól
rún Magnúsdóttir og Anna
Nílsdóttir. Verðlaunabikar
Björns Dúasonar hlaut Anna
Nílsdóttir fyrir hæstu einkunn
í vélritun. Rotaryklúbbur Siglu-
fjarðar veitti bókaverðlaun fyr-
ir hæstu einkunn í hverjum
bekk.
Við skólauppsögn mættu 10
ára gagnfræðingar og afhentu
skólanum að gjöf vandaða
stundaklukku. Orð fyrir þeim
hafði frú Brynja Stefánsdóttir.