Vísir - 09.08.1966, Side 3
VISIR . Þriðjudagur 9. ágúst 1986.
Það hefði þótt tíðindum s'æta
fyrir nokkrum árum, ef 50
manna hópur hefði farið héðan
frá einu bezta laxveiðilandi álf
unnar til Grænlands til að veiða
lax, en nú birtast um það aðeins
litlar hógværar fréttir í blöðun
um. Svo mjög hefur leiga lax
ánna hækkað hér á Iandi, að
það er ódýrara að fara til
Grænlands til aö veiða, og er
þá allt innifaliö, gisting, matur
og flugferðir.
Veiðiferð
til Grænlands
Nokkrir veiðimenn sóla sig áður en lagt er í velöiferð. Frá vinstri: Þórhallur Arason, Einar Ólafs-
son og Gunnar Gunnarsson.
Þegar hópurinn var að fara frá Grænlandi, kom annar hópur meö
fiugvél F. í. Hér mætast menn úr báðum hópunum. Frá vínstri
Þorgils Ingvarsson, Einar Ásmundsson og frú Halidóra Ingvarsson.
Þyrluflói (Helikopterbugten) þykir einn bezti veiðistaðurlnn. Yfir-
leitt er laxinn veiddur í sjó á þessum tíma, en að þessu sinni
var hann genginn meira upp í árnar en venja er.
26. júlí sl. fór 53 manna hóp
ur meö flugvél Flugfélags ís-
lands til Narssarssuaq á vestur-
strönd Grænlands. Dvaldi hóp
urinn í 6 daga við veiöar og ann
að, sem menn gerðu sér til
skemmtunar og kom heim að
kvöldi 1. ágúst.
Árangur veiðinnar var ekki
eins góður og þeir bjartsýnustu
höfðu gert sér vonir um, en
alls fengust 283 Grænlandslax
ar og sjóbleikjur, sem er um
einn lax á mann á dag.
Fleira er þó hægt aö gera sér
til dundurs á Grænlandi, en að
veiöa lax. Vestribyggð er
skamman spöl frá hótelinu í
Narssarssuaq (Hotel Arcticl og
skoðuðu flestir rústimar af íbúð
arhúsum og kirkju norrænna
manna i Eiriksfirði.
Veöriö er oft mjög gott við
Narssarssuaq á sumrin, enda er
staðurinn töluvert sunnar á jörð
inni en Reykjavík. Daginn áður
en hópurinn fór heim var 27
stiga hiti í forsælu og var því
tilvalið fyrir sóldýrkendur aö
fá sér sólbaö.
Áður en haldlð var heim hafði
helmingurinn af hópnum tryggt
sér pláss í samskonar ferö, sem
verður farin á sama tíma aö
ári.
Á leiöinni heim í flugvélinni
voru afhent veiöiverðlaun.
Fékk Kristleifur Jónsson
fyrstu verðiaun fyrir stærsta
laxlnn, sem var rúmlega 11
pund. önnur verðlaun fékk Jón
as Halldórsson (8 pund) og
þriðju verölaun Baldur Jónsson
(7 pund). Flestir laxanna voru
3-6 pund. Grænlenzki laxinn er
af annarri tegund en sá ísienzki.
Likist hann mest íslenzkum sjó
birtingi, en er melra silfraöur,
jafnvel meira silfraður en ís-
lenzki laxinn.
Grænlenzkar starfsstúlkur á Hotei Arctics.
Veiðin sett í flugvélina áður en lagt er af stað heimleiöis.
/
Fararstjórarnir í ferðinni. Frá vinstri: Haukur Hauksson, Sigurjón
Jónsson, Birgir Þorgilsson og Þorsteinn Jónsson.