Vísir - 09.08.1966, Blaðsíða 8

Vísir - 09.08.1966, Blaðsíða 8
V Utgefandi: BlaOaútgátan VTSIR Ritstjórl: Gunnar G. Schram Aðstoðarrltstjðri: Axel rhorsteinson Fréttastjóri: Jónas Kristjánsson Auglýsingastj.. Halldór Jónsson Auglýsingar Þingholtsstræti 1 Afgreiðsla: Töngötu 7 Ritstjórn: Laugaveg; 178 Simi 11660 (5 llnun Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands. I lausasölu kr. 7,00 eintakið Prentsmiðja Visis — Edda h.f. Meirihluti oð baki §ú krafa hefur hvað eftir annað verið sett fram í málgögnum stjórnarandstæðinga að undanförnu að kosningar verði látnar fara fram í haust, tæpu ári fyrr en efni standa til samkvæmt stjórnarskránni. Ekki er að undra þótt menn furði sig á þessari kröfu, vegna þess að allan rökstuðning hennar skortir. For- senda nýrra kosninga er vitanlega sú að núverandi ríkisstjórn hafi mistekizt að leysa verkefni sín, eins og vinstri stjórninni 1958, og í öðru lagi að stjórnar- andstaðan hefði sett fram ítarlega, nýja stefnuskrá í þjóðmálum. Hvorugt þetta hefur gerzt. Stjórnarand- staðan stendur uppi þögul og hnípin og enginn minn- ist þess að hún hafi lagt fram heildarstefnuskrá, sem þó er talin skylda hennar í öllum lýðræðisríkjum. Og því verður ekki á móti mælt að starf og stefna ríkisstjómarinnar hefur valdið því að aldrei hefur ríkt meiri hagsæld í landinu en einmitt nú og aldrei átt sér stað hraðari atvinnuuppbygging til sjávar og sveita. JTjarri fer því einnig að úrslit sveitarstjórnarkosning- anna gefi tilefni til hinnar fáránlegu kröfu um nýjar kosningar. Stjórnarflokkarnir töpuðu aðeins 2 bæjar- fulltrúum af 62 í kosningunum og aðeins 2% í at- kvæðamagni. Hafa þeir nú að baki sér 58,6% át- kvæðamagnsins í kaupstöðum landsins eða mun meir en helming atkvæða. Væri það því fjarstætt, og gagn- stætt lögum og stjómarskrá, að láta fara fram nýjar kosningar þegar núverandi stjómarflokkar hafa sannanlega slíkan meirihluta við að styðjast. Þessar staðreyndir sýna hve fráleit hugarfóstur framsókn- armanna óg kommúnista eru orðin á þessum sumar- dögum, og á hvert stig þjóðmálabarátta þeirra er komin. Afmæli flugsins x sunnudaginn voru liðin 30 ár frá því að íslenzk stjórnarvöld hófu afskipti af flugmálum. Þá áttum við íslendingar enga flugvél og enginn flugvöllur var til í landinu. Þennan dag var flugmálaráðunautur ríkisins skipaður, ungur flugmaður, Agnar Köfoed- Hansen, sem síðar varð fyrsti flugmálastjóri lands- ins. Hann, og við aðrir íslendingar, getum með gleði og stolti litið yfir þróunarsögu þessara þrjátíu ára. Reyndar væri nær að nefna hana byltingarsögu, svo hraðstígar hafa framfarirnar verið. Er vissulega ekki orðum aukið þótt sagt sé að nú séu íslendingar mikil loftsiglingaþjóð og hagnýti sér kosti flugsins innan- lands bétur en flestar aðrar þjóðir. „Enginn einn mað- ur hefur unnið jafn mikið fyrir íslenzk flugmál og Agnar Kofoed-Hansen,“ sagði Ingólfur Jónsson flug málaráðherra á sunnudaginn. Það er sannmæli, en beztu afmælisóskirnar myndi flugmálastjóri ugglaust telja enn aukinn stuðning við flugið og enn hrað- stígari framfarir á þeim heillandi vettvangi. VÍSIR . Þriðjudagur 9. ágúst ls»~.. Víðidalsfjall biasir við frá Þingeyrum. Þangað voru sakamenn færðir til aftöku og hengdir í gili því, sem Gálgagii heitir. ÞINGEYRAR Við skulum að þessu sinni skreppa norður heiðar og fara þjóðveginn austur Húnavatns sýslur, hvort sem förinni er heit ið lengra eða skemur. Þegar komlð er í Vatnsdalshóia nem- ur vegfarandlnn ósjálfrátt stað ar við skilti norðan vegarins og göngustiga yfir margþætt girö ingu. Á skiltinu stendur Þrístap ar, en að öðru leyti verður hann engu nær hvað Þrístapar tákna ef hann veit ekki sögu þeirra áður. Þar voru síðustu mann- eskjur teknar af lífi, samkvæmt íslenzkri réttarlöggjöf, árið 1830. ræöa þetta líflát í Vatnsdals hólum að sinni, heldur hitt aö staldra þarna aöeins við, beina augunum til Þrístapa og lands- ins sem þar er á bak við. Þetta land er að mestu flatt og án sérkenna. Þó veitir vegfarand- inn athygli dökkri þúst sem rís eins og klettur upp frá grasi gróinni flatneskjunni noröur undir hafsbrún. Sá sem kunnug ur er veit að þetta er Þingeyra- kirkja, ein af sérkennilegustu og fegurstu kirkjum í sveit á Islandi og að landið umhverfis hana er höfuðbólið Þingeyrar - einn af sögustöðum íslenzkrar byggðar og höfðingjasetur um aldir. Fyrir þann, sem nógan tíma hefur, svarar krókurinn norður áð Þingeyrum kostnaði, enda þótt þangaö sé um 7 km. vegalengd frá þjóðveginum. Víð sýni er þaðan furöumikið og Þingeyrakirkja í fyllsta máta skoðunarverð. L Eins og nafnið bendir til hef ur þingstaður veriö til foma á Þingeyrum, en frá Þingeyra- þingi er lítilla viðburða getið. Þó er þess getið að í byrjun 12. aldar, þá er Jón biskup Ög- mundsson hafði skamma stund setið á Hólum reið hann eitt sinn til vorþings að Þingeyrum Þetta vor hafði verið óvenju- hart svo að gróöuriaust var um vorþing. Kom biskup málum sínum svo við þingheim að hann skyldi heita á Þingeyri ef árferði batnaði og reisa þar Fyrri hluti kirkju og bæ og allir leggja nokkuð til. Skipti þá samtímis um til hins betra og markaði Jón biskup sjálfur grundvöll undir kirkjuna. Er líklegt talið að þessi atburður hafi gerzt ár ið 1106, eða þá næstu ár á eftir. Þegar kirkjan hafði risið af grunni vígði Jón biskup hana og litlu síðar er þar stofnað munkaklaustur með Benedikts- reglu. Vitað er að fullkominn klausturlifnaður hefst þar árið 1133, eða fyrr en í nokkm öðru klaustri á íslandi og hélzt þar óslitið á 5. öld, eða til þess tíma er siðaskipti voru á Islandi. Þingeyraklaustur var talið eitt auðugasta og helzta klaustur á landinu. Ábótar hafa verið tald ir þar 24 svo vitað sé um, og þegar klaustrið var lagt undir konung um miðja 16. öld fylgdi því hálfur sjöundi tugur jarða. n. Þingeýrákláustur varð Það er ekki meiningin að Foss í Gljúfurá í Húnaþingi. Hún skilur að Austur- og Vestur- Húnavatnssýslu. !

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.