Vísir - 29.08.1966, Síða 9

Vísir - 29.08.1966, Síða 9
V ' ínn a vinnustofur Myndlist í Reykjavík stendur kannski aldrei með eins miklum blóma og undir haust. Þá hópast málarar í borgina og vinna skissur sínar og opna sýningar. Þetta opinberunarskeið nær fram á haustið og hefst gjarnan aftur undir vor, þegar lista- mennimir þurfa að rýma til hjá sér, — Nú stendur fyrir dyr- um Haustsýning Félags ísl. myndlistarmanna og fleiri stórsýn- ingar koma í kjölfarið og sýna sumarvinnu málara. Blaðamaður Vísis Ieit við hjá nokkrum kunnum málurum, til þess að for- vitnast um nýjustu verkefnin og sumarið. Musteri litanna Scheving 'l húsi þeirra Jóns Stef. og Ásgrims Gunnlaugur Scheving: Ég ætlaði að ná fram sérstöku veðri á sjónum, fiskiveðri. Húsiö númer 74 viö Berg- staðastræti er sannkallað must- eri myndlistar á íslandi. í öðr- um enda þess málaði Ásgrímur Jónsson á sínum tíma, þar sem nú er Ásgrímssafn, í hinum helmingnum bjó Jón Stefáns- son, og málaði, þegar hann var hérlendis. í þann hluta hússins er nú fluttur Gunnlaugur Scheving svo að enn berst nýr boðskapur frá þessu must- eri litanna. — Ég hef verið að gera þetta í stand, segir Gunnlaugur, um leið og hann býður mér inn um dyrnar. Ég flutti inn um ára- mótin. Hann liefur látið teppaleggja ibúðina og málað hana. Vinnu- stofan er uppi á lofti undir súð, allstór salur, gólfið í enda hans er neðar en í hinum hlut- anum, þar er allt á tjá og tundri, litir í túbum, skissur og hálfgerð verk sér hér og hvar. Salurinn er mjög vist- legur. Við einn vegginn stendur stórt málverk. — Þetta er eina stóra mynd- in sem ég hef málað síðan ég kom hingað. Þetta er sjávarmynd, svipað mótív og Gunnlaugur er löngum frægur fyrir. — Þrír karlar á trillu, fiskilegir, við störf sín, en fumlausir og gæddir þessu alvöruþrungna svipmóti, sem einkennir margar mannamyndir Gunnlaugs. Báturinn fyllir nær því út myndflötinn, utan hvað öldurnar stæra sig sitt hvoru megin við. Sjórinn er mattur og móða í ioftinu. — Ég hafði hugsað mér sér- stakt veður á sjónum, segir Gunnlaugur, svona dumbung, fiskiveður. — Nokkur ferðalög í sumar? — Ég er nýkominn vestan frá Breiðafirði, málaði að Stað í Þorskafirði nokkrar lands- lagsskissur, þar var ágætt að vera. — Ætlarðu að fara að taka landslagið fyrir? — Ég hef lítið gert af því að mála landslagsmyndir, það eru svo margir sem gera það, ég mála frekar í sjávarþorpum og því um líkt. Nei, þetta er frek- ar svona til tilbreytingar. — Hefurðu einhvem tíma verið á sjó? — Ég hef ekki verið sjómað- ur, kynntist þessu í uppeldinu. — Svo sem auðvitað, á Seyðis- firði. — Áttu einhverjar mvndir til þess aö láta á haustsýninguna? — Ég hef nú ekki mikið mál- áð upp á síðkastið, af því að ég hef verið að láta lagfæra héma og svo hefur þetta selzt jafnóð- um. Það er líka gott að hvíla sig frá þessu einstaka sinnum, ég er búinn að sýna svo oft með þeim. Smíða úr silfri meðan hinir mála Jóhannes Jóhannesson smiðar fyrsta helgiskrin á Islandi eftir siðaskipti Jóhannes Jóhannesson: ... kom til mín og spurði hvað ég gæti málað mikið á mánuði, hann skyldi kaupa þaö allt. — Ég hef verið að smíða úr silfri, þegar aðrir hafa verið að mála. Ég var að ljúka við helgiskrín í kapellu Landakots- spítalans. Það er kannski dálítið merkilegt út af fyrir sig, að sennilega hefur svona gripur ekki verið smíðaður á íslandi síðan fyrir siðaskipti. Ég er kominn inn á Skóla- vörðustig 7, vinnustofu Jóhann- esar Jóhannessonar, listmálara, sem jafnframt yrkir í silfur og gull. Það er eins og að koma ipn á kontor hjá gildum útvegs- manni af gamla skólanum, nema hvar silfurmunir, misjafnlega forkláraðir, liggja í stað plagga á gömlu skrifborði, sem raunar er ekki skrifborð heldur smíða- borð og þegar betur er,að gáð sér mörg furðúleg tól þar á, en voldugur steðji stendur á gólf- inu við stólbakið, svo eru þama smá ker og kirnur. Kannski eru það einungis varíantamir í ' hlutunum þama inni og rarí- tetin, sem minna mig á þessa sérstæðu gömlu kontora. — Já, helgiskrín, hver veit hvað það er nú til dags? — Það eru engar reglur um formið, venjan krefst aðeins helgitákna. Það var skemmtilegt að vinna þetta, ekki sfzt vegna þess, að eina skilyrðið, sem sett var upp, var að það yrði sem nútímalegast. — Hefurðu þá alveg vanrækt myndlistina? — Ég hef verið að mála svona öðru hvoru, í ígripum í sumar. Upp á síðkastið hef ég bara verið að vinna fyrir aðra málara og fengið svo skammir fyrir í Vísi! — Uss, hva .. . og Jóhannes hlær. — Nei, það var ráðuneytið, sem fól okkur úr Myndlistar- félaginu, að sjá um þátttöku íslands í þessari norrænu sýn- ingu ungra málara, og við höf- um verið að vinna í því, en fengum bara svo stuttan frest. Svo er verið að undirbúa haust- sýninguna. Nú, nú svo er fundur í kvöld vegna norræns mynd- listarmóts í Winnipeg í haust. — Ja-á, það var og, ýmislegt að ske þykir mér. — Já, það gerist ýmislegt — Ég get sagt þér frá því svona til gamans, að það kom til mín amerfskur málverkasali, hringdi mig upp kl. 12 um kvöld og spurði, hvað ég gæti málað mikið á mánuði, hann skyldi kaupa það allt. — Þeir eru svona kaldir við að kaupa þarna vestra, hann var héma fyrir mánuði síðan og ætlaði f inn- kaupaferð um Evrópu. — Slærðu til? — Ég er að hugsa málið, maður tekur ekki svona tilboð- um á stundinni. — Nokkuð sýnt síðan í vor? — Nei, ekki síðan við sýnd- um fjórir íslendingar í Kaup- mannahöfn í Gallery Gammer- strand í júní. — Ykkur var vel tekið þar, er það ekki? — Jú, mjög vel tekið. — Svo var ég með fjórum öðmm um farandsýningu um England, það voru Kjarval, Nína, Þor- valdur, Kristján Davíðsson og ég. Það var sýnt á nokkrum stöðum og endað í London. — Var ekki hálfhljótt um þessa sýningu hér heima? — Jú, það var mikið talað um hana úti, blöðin skrifuðu talsvert um þetta, en ekkert hér heima. Tilbrigði um minningar frá æskunni og sjónum Kristján Daviðsson sýnir á myndlistarhátið i Edinborg Kristján Davíðsson sýnir um þessar mundir á myndlistarhá- tíö í nýjum húsakynnum í Edin borg, The Richard Demarco Gallery. — Ég á þarna 14 myndir, allt, sem ég hef málað upp á síðkastið segir Kristján, þegar ég lít við hjá honum að Ing- ólfsstræti 9. — Þú ert eini íslendingurinn sem átt myndir þama? — Já, mér var boðin þátt- Framh. á bls. 7. Kristján Ðavíðsson: af sjó og úr fjöru. mikið fengizt myndir

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.