Vísir - 03.09.1966, Side 3
V í S IR . Laugardagur 3. september 1966
Hvell rafmagnshringing kallar á hópinn inn í skólann
og handtakiö herðist.
skipti.
.. Katrín á leið með Björney í skólann í fyrsta
Hátíðleikabiær ríkir síðasta spöl
inn...
Fyrsti skóladagurinn
Pað var svali í loftinu en sól
arglætan boðaði að hlýna mundi
seinna um daginn. Klukkan var
að nálgast tíu og í barnaskól-
unum biðu kennararnir eftir
fyrsta hóp skólabamanna. Sjö
ára börnin áttu að mæta fyrst
en síðan hinir aldursflokkarnir
koll af kolli. 1. september, fyrsti
skóladagur bamastigsins og
fyrsti dagurinn í skóla fyrir þau
yngstu.
Svo byrjuðu þau að tínast aö
flest í fylgd meö mömmu. Þegar
nær dró skólanum færðist hátíð-
leikablær yfir þau og síðasti
spölurinn var lagður aö baki í
þöign og handtakið hertist.
Hvellur hljómurinn í raf-
magnsklukkunni kallaði á þau
inn í skólastofurnar þar sem
þeim var skipað niður í bekkjar-
deildir. Fyrir utan Hamrahlíðar
skólann voru nokkrir forvitnir
áhorfendur, ungir að árum. Sum
þrýstu andlitunum upp að glugg
um skólastofunnar til þess að
fylgjast betur með hópnum fyrir
innan en tvær níu ára hnyðrur
létu sér fátt um finnast og sögðu
um leið og þær fóm: „Uss þetta
er ekkert skemmtilegt, þetta eru
bara sjö ára pollar, sjö ára poll-
ar,“ endurtóku þær í kór og
horfðu ögrandi á umhverfið og
hlupu burt.
Könnunarferðinni í skólann
þeirra lauk þar með. Kannski
hefur óljós minning frá sl. vetri
seitt, ilmur af nýju leðri og
þessi sérstaka skólabókalykt,
kennarinn sem gat verið leiðin-
legur eða skemmtilegur eftir þvi
hvemig skapi hann var i og svo
allir félagarnir.
Þær voru sér þess meðvitandi
þessar níu ára hnátur aö þama
voru þær reynslunni ríkari og
stóðu langtum framar aö vizku
sjö ára poljunum sem voru eins
og hverjir aörir græningjar að
fara í fyrsta sinn í skóla.
Inni í kennslustofunni ýtti ein
mamman á eftir dóttur sinni
þegar nafnið hennar var kallaö
upp og sagði „Vertu ekki feimin
elskan“ í hughreystingarskyni.
Þau voru fremur umkomu-
Iaus að sjá þar sem þau stóðu .
í hóp í horninu á stofunni, en
þarna hittust tvær vinkonur og
létti yfir þeim og þær byrjuðu
að hvíslast á. Það bættist í hóp
inn eftir þvl sem fleiri nöfn
voru lesin upp og innan skamms
var fullskipað í fyrsta sjö ára
bekkinn, sem nú átti eftir að
hitta kennarann og kynnast
skólanum í fyrsta sinn og skildi
þá Myndsjáin við hópinn.
■