Vísir - 12.09.1966, Blaðsíða 3
VÍSIR . Mánudagur 12. september 1966.
3
Kennarar í eðlisfræðikennslustund
1 nýja hluta Menntaskólans í
Reykjav. sitja kennarar úr ungl-
inga- og gagnfræðaskólum víðs
vegar af landinu námskeið í
stærðfræði og eölisfræði. —
Þeir eru þar til þess að rifja upp
og bæta við þekkingu sína á
fræðigreinunum og koma betur
undirbúnir að kennaraboröinu
en áöur.
Sú nýbreytni skólamála var
tekin upp í fyrrahaust, að halda
námskeið fyrir kennara í helztu
kennslugreinum barna og ungl-
ingastigsins og verða slik nám-
skeið væntanlega haldin árlega
hér eftir. — Námstjórar hverr-
ar námsgreinar standa fyrir
þessum námskeiðum og eru sér-
menntaðir framhaldsskólakenn-
arar í hinum ýmsu kennslu-
greinum fengnir til þess að
halda fyrirlestra, skýra nýjung-
ar og rifja upp ýmis atriði með
kennurunum sem námskeiðin
sækja.
—0—
Þegar Myndsjá Vísis leit inn
á námskeið í Menntaskólanum
fyrir stuttu, var Örn Helgason
eðlisfræðingur að fara yfir til-
raunir með kennurunum.
Hann sagði aö 24 kennarar
tækju þátt í þessari verklegu
eðlisfræöi.
— Hér er ekki endilega farið
í það, sem kenna skal í unglinga
og gagnfræðaskólum, sagði
hann, heldur ýmislegt sem teng-
ir saman, það sem þeir kunna
fyrir. Og við vonumst til að
þetta geti útvíkkað svolítið
sjóndeildarhringinn. — Þá eru
inn á milli æfingar, sem ágætt
er að nota í gagnfræðaskólum.
— Ég hef verið að fara hér
í það sem snertir aflfræði og
ölduhreyfingar. Við komum dá-
lítið inn á ljósfræði og raföldu-
hreyfingar almennt.
Öm sagði að mikil þróun
hefði orðið á eðlisfræðiþekkingu
manna undanfarið og á nám-
skeiðinu yæri verið aö kynna
ýmsar nýjungar. Þar væri mik-
ið stuðzt við nýja, ameríska
kennslubók, sem mesta áherzlu
legði á það, hvernig hlutirnir
væru byggðir upp — hitt kemur
frekar af sjálfu sér, hvernig á
að nota þá.
—0—
Æfing f ljósfræði, Óskar Jónsson, Gagnfræðaskóla Keflavíkur, Kristinn Kristinsson, við Gagnfræða-
skólann í Hverageröi, Guðmundur Magnússon, Skógaskóla, og Aðalbjörn, kennari við Miðskólann
Lundi í Axarfirði.
Viö öldukerið, frá vinstri: Gunnar Ásgeirsson, stærðfræðikennari
við Réttarholtsskóla. Guðmundur Jónsson við Gagnfræðaskóla ísa-
fjarðar, Bjöm Fr. Björnsson viö Miðskólann á Sauöárkróki og Jón
Karlsson við Réttarholtsskólann.
Einar Siggeirsson, kennari viö Réttarholtsskólann og Þorvaldur Þorvaldsson við Iðnskólann
Akranesi athuga „interferens“ með Young’s tilraun.
í þessum nýju kennslustofum
menntaskólans eru kennarar
svo að bauka við margs kyns
tæki og tól, svo sem ölduker,
eða Gára eins og sérfræðing-
amir kalla það gjarna. Þetta ku
vera handhægt áhald til þess aö
skoða ölduhreyfingar í tveimur
víddum. Það er ferhymt ker
með glérbotni. Ef að ljós er lát-
ið lýsa ofan á það og vatninu
í því er komið á hreyfingu koma
öldumyndanir fram á hvítum
fleti undir því. Þannig má
skynja hinar aðskiljanlegu
náttúrur ölduhreyfinganna.
Nokkrir námskeiösmanna eru örn Helgason eðlisfræðingur (á hvíta sloppnum) er á sífelldum þönum til þess að útskýra og fylgj-
inni í myrkraskonsu og skóða ast með tilraununum.
nokkur ljósfyrirbrigði með að-
stoð þar til gerðra áhalda. Aör-
ir velta vöngum yfir tveimur
kúlum, sem hafa sama massa,
láta þær rekast á undir ýmsum
hornum og kanna með því varð-
veizlu skriðþungans. — Og
fleira fróðlegt fást þeir við, sem
hér er enginn kostur að skýra.
— En kennari kennaranna, Örn
Helgason er á sífelldum þönum
til þess að fylgjast með og út-
skýra.