Vísir - 14.10.1966, Síða 3
3
VÍSÍR . Föstudagur 14. októher 1966.
Iðngarðar
Myndsjáin er
inni í Iðngöröum,
um, sem hafa
förnu ári inni
dag á ferð
iðnaðarhús-
risið á undan-
í Kringlumýri.
Iðngarðar hf. eru samtök nokk-
urra iðnfvrirtækja, sem hafa
sameinazt um að leysa hús-
næðisvandræði sín með bygg-
ingu hentugra húsa. Og nú hafa
Iðngarðar reist 5 hús inni í nýja
iðnaðarhverfinu milli Suður-
landsbrautar og Miklubrautar.
Húsin eru öll af sömu gerð, úr
strengjasteypu og gert er ráð
fyrir miklum stækkunarmögu-
leikum. Nokkur fyrirtæki eru
þegar flutt í húsin og þar munu
í framtíðinni verða ein 3 tré-
smíðaverkstæði, bílaverkstæði,
brauðgerðarhús, fataverksmiðja
og fleira.
Húsin standa öll við „Skeif-
una“, götuspotta, sem liggur,
eins og nafnið bendir til, í
skeifu frá enda Fellsmúlans að
Ármúla.
Sveinn Egilsson hf. er fyrsta
fyrirtækiö, sem flytur í Iðn-
garða — fyrir tveimur mánuð-
um í 1200 ferm. hús undir einu
risi. Þar er bílaverkstæði Ford-
umboðsins og lager. í framtíð-
inni eiga að koma tvö ris við
hliðina á þessu, jafnstór, og
verður þá gólfflötur hússins
3.600 ferm. Auk þess kemur svo
skrifstofuhús fyrir norðurend-
ann á verkstæðishúsinu.
Inni á verkstæðinu getur að
h'ta bíla af ýmsum gerðum, eink
anlega þó Ford að sjálfsögðu, á
lyfturum og undir þeim eru bif-
vélavirkjar eitthvað að lappa
upp á. — Það er tiltölulega ný-
stárleg sjón að sjá bifvélavirkja
standandi undir bílunum. — Þeg
ar maður kemur inn á bifreiða-
verkstæði á Islandi <er maður
vanur að siá ekki 1 annað en
fætuma á þeim undan bílunum.
Bent Jörgensen, verkstæöis-
stjóri á þessu nýja verkstæði,
sagði raunar að með tilkomu
lyftaranna fengjust bifvélavirkj-
ar helzt ekki til þess að skrfða
undir bílana og verður að virða
þeim það til vorkunnar. Þama
hafa verið settir upp 6 nýir
lyftarar og 3 af eldri gerð, en
auk þess er einn sem er eink-
um ætlaður fyrir skyndiskoðun
bifreiða. En eigendur nýrra bif-
reiða eru hvattir til þess aö
koma með þær eftir að búið
er að aka þeim vissar vega-
lengdir, til þess að yfirfara þær.
Til dæmis eftir 5 þús. km. akst-
ur og 10 þús. km. akstur.
Bent taldi að lyftaramir sköp-
uðu alltaf 30% betri vinnuaf-
köst en með því að skriða und-
ir bílana á gólfinu, eins og áður
tiðkaðist. — Hann sagði enn-
fremur að nú væri revnt að inn-
leiða ákvæðisvinnu-fyrirkomu-
lag við viðgerðimar, eftir þvi
sem hægt væri að koma því við.
Meðal annarra nýjunga á verk
stæðinu mætti nefna rennu, sem
er eftir miðju gólfi og í henni
er sogari, sem sogar til sín kol-
sýringinn frá bílunum, þegar
þeir eru kevrðir inn. Við inn-
keyrsluna er svo yfirbyggð
gryfja, sem bílarnir aka yfir.
1 henni verða hitunartæki, sem
þíða klaka undan bílunum ef
með þarf, áður en beir eru tekn-
ir til viðgerðar. Þá er verið að
koma upp talkerfi á verkstæðið
Verður sími við hvern lyftara,
svo að verkstjóri getur fylgzt
með, hvernig verkið gengur og
einnig geta viðgerðarmennimir
haft samband viö lagerinn ef þá
vantar einhverja hluti.
Á trésmíðaverkstæði Páls Guð
jónssonar er verið að innrétta
skrifstofupláss. Verkstæöið hef-
ur 460 ferm. húsnæði, en hluta
þess hefur verið skint í tvær
hæðir til bráðabirgða. Veröa
skrifstofur á annarri hæðinni, en
lager á hinni. Svo má byggja
annað eins við húsið að sunnan-
verðu og svo forhús fyrir skrif-
stofur og því um líkt framan
við það. Sagði Páll Guðjónsson,
eigandi verkstæðisins, að þetta
væri tvímælalaust ein beztu
hús til slíkra nota, sem hægt
væri að hugsa sér. Ekki væri
hægt nema með strengjasteypu
að hafa lofthafið svona mikið,
án þess að nota súlur. En þarna
er það 7 metrar. Verkstæðið
var áður til húsa í iðnaðarhverf-
A Trésmíðaverkstæði Páls Guðjónssonar. — Ragnar Snæfells og Rafn Isfeld trésmiðir vinna við inn-
réttingu skrifstofunnar. Steinar Bjamason, trésmiður og Páii Guðjónsson, eigandi verkstæöisins.
inu í Súðarvogi og sagði Páll
aö þeir væru rétt að koma sér
fyrir, vélarnar er ekki búið að
tengja ennþá, en allt yrði komið
í gang um mánaðamótin næstu.
I næstu samstæðu við er ann-
að trésmíðaverkstæöi til húsa
í einu risi, Lerki. Þar er veriö
að flytja inn og þegar fariö aö
smíða, en verkstæðið framleiðir
skápa í eldhús og fataskápa,
auk annars. Meistari þess verk-
stæðis er Guðmundur Bjöms-
son, trésmíöame'istari, og hjá
honum vinna 4 smiðir.
Séð yfir vinnusal verkstæðis Sveins Egilssonar h.f.
Húsasmiðir við vinnu á trésmíðaverkstæðinu Lerki. Lárits Jörgens en og Kristján Ólafsson.