Vísir - 14.10.1966, Síða 8

Vísir - 14.10.1966, Síða 8
8 VÍSIR . Föstudagur 14. október 1966. VISIR Otgefandi- BlaöaOtgátan VISIR Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson ABstOðarritstjóri: Axel rhorstelnson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, símar 15610 og 15099 Afgreiösla: Túngötu 7 Ritstjóm: Laugaveg: 178 Sími 11660 (5 Imur) Asícriftargjald kr. 100.00 á mánuði tnnanlands. I lausasölu kr. 7.00 eintakíö ' Prentsmiðja Vlsis — Edda h.f Stefnt að verðstöðvun JJjarni Benediktsson, forsætisráöherra flutti í samein- uðu Alþingi í gær yfirlýsingu um meginstefnu ríkis- stjórnarinnar og helztu viöfangsefni hennar. Þar sagði hann m.a.: „Meginstefnan er hin sama og Ólafur Thors lýsti þegar í nóvember 1959, aö tryggja heilbrigðan grund- völl efnahagslífsins, svo að framleiðsla aukist sem örast, atvinna haldist almenn og örugg og lífskjör geti enn farið batnandi. Vegna þeirra verðlækkana, sem orðið hafa síðustu mánuði á helztu útflutningsvörum landsmanna, eru viðhorfin í efnahagsmálum þjóðarinnar nú önnur en verið hafa undanfarin ár. Hér koma og til greina örð- ugleikar vegna vaxandi efnivöruskorts hraðfrystihús anna, sem sprettur af minnkandi afla á veiðieiningu og af samdrætti togaraútgerðarinnar og einbeitingu stórvirkasta hluta bátaflotans að síldveiðum. Að svo vöxnu máli telur ríkisstjómin, að meginá- herzlu verði nú að leggja á stöðvun verðhækkana innanlands og helzt, að ekki verði hækkun á inn- lendu verðlagi frá því, sem var hinn 1. ágúst sl. í því skyni að vega upp á móti hækkun búvöruverðs, sem samkomulag varð um í sexmannanefnd fyrir skemmstu, ákvað ríkisstjórnin að auka niðurgreiðsl- ur á búvörum og hefur nú til athugunar fleiri ráðstaf- anir í þá átt til að draga úr áhrifum verðhækkana frá 1. ágúst. Skilyrði þess, að stöðvun verðlags fyrir at* beina ríkisvaldsins takist, er, að að ekki séu gerðar aðr ar ráðstafanir, sem leiða hljóta til verðhækkana, og veltur þá á miklu, að í þeim efnum takist samvinna milli ríkisstjórnar og Alþingis annars vegar og stéttar- félaga verkalýðs og annarra launþega og atvinnurek- enda hins vegar. Þá þarf og skjótlega að taka ákvörðun um, hvort gera eigi með rýmkun veiðiheimilda innan fiskveiði- lögsögunnar, ráðstafanir til öflunar efnivöru til hrað- frystihúsanna, og þar með létta undir með útgerð minni báta og togaranna, jafnframt því, sem gerðar verði nauðsynlegar breytingar til að draga úr rekstrar kostnaði þeirra." Um þessar mundir mega skilyrðin til verðstöðvun- ar teljast hagstæð. í undanförnum samningum um búvöruverð, síldarverð og kjör prentara hefur komið fram greinilegur vilji samningsaðila til að gæta hófs í þeim atriðum, sem ýtt geta undir verðbólguþróun. Þessi hófsemi endurspeglar almennan vilja fólksins í landinu á, að verðhækkanir verði stöðvaðar. Nú standa fyrir dyrum almennir kjarasamningar verka- manna og iðnaðarmanna. Augu allra beinast að þeim samningum, því þeir eru lykillinn að því, að verð- hækkanir verði stöðvaðar. Ef þar ríkir sama hófser og ríkt hefur almennt undanfarið, er stærsta skrefið stigið í þá átt, að þjóðin komist yfir þá örðugleika, sem lækkandi útflutningsverðlag á síðustu mánuð- um hefur skapað. í) V fí » l) I/ \) )/ // Á myndinni sjást nokkrar af konunum, sem annazt hafa undirbúningsstarfið að skemmtununum, ásamt sýningarstúlkum. Lengst ti] vinstri er frú Steinunn Bemdsen, fjórða frá vinstri er frú Kristín Jónsdótt- ir, þriðja frá hægri er frú Ebba Sigurðardóttir og lengst til hægri er frú Unnur Amgrimsdóttir, sem hefur verið undirbúningsnefndinni til ráðgjafar. Skemmtanir Kvenfélags Bústaða- sóknar á sunnudaginn — Fj'ólbreytt skemmtiatriði N. k. sunnudag gengst Kven- félag Bústaðasóknar fyrir tveim ur skemmtunum á Hótel Sögu, og eru skemmtanimar haldnar í þeim tilgangi að afla fjár til stuðnings baráttumáli félagsins, en það er bygging Bústaða- kirkju. Fjöibreytt skemmtiatriði verða á skemmtunum þessum. Fyrri skemmtunin hefst kl. 3 síðdegis á sunnudag. Er sú skemmtun ætluð allri fjölskyld- unni, og skemmtiatriði miöuð við það. Til skemmtunar veröur m. a.: Tízkusýning, þar sem sýnd verður haust- og vetrar- tízkan fyrir unglinga og full- orðna, Ómar Ragnarsson skemmtir af sinni alkunnu snilld, og nemendur úr Dans- skóia Hermanns Ragnars munu sýna nýjustu dansana. Þá veröa bomar fram veitingar, kaffi, öl eða mjólk með góðu og miklu meðlæti. Munu félagskonur sjálf ar ganga um beina. Siðari skemmtunin veröur svo um kvöldið og hefst kl. 8.30. Verður þá um sömu skemmtiat- riði að ræöa, en þá annast starfsfólk veitingahússins veit- ingamar. Þá er og að geta þess, að á skemmtuninni um kvöldiö mun Sigurveig Hjaltested skemmta með söng sínum, meö undirleik Skúla Halídórssonar. Kynnir á þáðum skémmtunun- um verður Hermann Ragnar Stefánsson, danskennari. Um kvöldið leikur svo hljómsveit Ragnars Bjamasonar fyrir dansi. Til stuðnings málefni sínu, gang- ast kvenfélagskonur fyrir sölu happdrættismiða á Sunnudag- inn, og vinningar verða m. a. fallegar postulínsvörur frá Bing & Gröndal í Kaupmannahöfn og leikföng frá Revkjalundi. Kvenfélagskonumar hafa unn- ið óeigingjamt starf meö und- irbúningi þessarar skemmtunar og einnig i öðrum tilfellum. Ný- lega hefur kvenfélagið samþykkt að veita kr. 100.000.00 til kirkju- unnarar kirkjubyggingarinnar byggingarinnar. Hefur sú fjár- hæð fengizt með því að félagið hefur gengizt fyrir bazar og kaffisölu á kirkjudögum. Kon- umar vonast til að allir vel- fjölmenni á skemmtanimar á sunnudaginn. Aðgöngumiðasala að skemmt- ununum verður á Hótel Sögu á laugardag milli kl. 2 og 4. Verð aðgöngumiða er kr. 100 fyrir fullorðna og kr. ,65 fyrir böm. Innifalið í verði aðgöngu- miða eru kaffiveitingar, auk skemmtiatriðanna. Menningarmálaráðherra Dana gestur í 50 ára afmælishófi Dansk is- lenzka télagsins á laug- ardag Dansk-íslenzka félagið heldur upp á 50 ára afmæli sitt á laugar daginn með hófi að Hótel Sögu. Hans Sölvhöj, menningarmála- ráðherra Dana verður gestur fé iagsins og flytur ræðu f afmæl isfagnaðinum. Með honum verð- ur kona hans Ruth Sölvhöj, sem er af íslenzkum ættum, sonar- dóttir Níels Finsen, læknis. Gylfi Þ. Gfslason, mennta- málaráðherra mun einnig flytja ræðu í hófinu. — Kristinn Halls son syngur einsöng. Félagið var stofnað af ts- lendingum í Kaupmannahöfn 4. janúar 1916 og hét þá „Dansk islansk samfund“. — Tilgangur þess var að „auka skilning og samúð milli Dana og íslendinga“ eins og það er orðað i lögum félagsins. Og tilganginum hefur félagið reynt að ná með blaða- og tíma ritsgreinum, bókaútgáfu og gagn kvæmu fyrirlestrahaldi, kvik- myndasýningum og þ.u.l. Fyrstu 25 árin mun félagiö hafa gefið út milli 40-50 bækur. Félagið starfar í tveimur deild um, hér og í Danmörku og lúta deildimar að nokkru sömu lög- um. Formaður félagsins nú er Dr. Friörik Einarsson læknir en vara formaður er Ludvig Storr ræð ismaður Dana. á íslandi. Skýröu þeir á fundi með fréttamönnum í gæ. frá starfi félagsins, sem er næst elzta félag af þessu tagi á íslandi, Alliance Francais var stofnað 4 árum áður. Formaður dönsku deildaWnn- ar er Meulengracht prófessor, sem er mjög vel þekktur læknir. Heiðursfélagi félagsins er frú Bodil Begtrup, fyrrverandi sendiherra Dana á íslandi, en hún gat ekki orðið við ósk fé- lagsins um að verða gestur þess á afmælinu vegna anna, en hún gegnir nú sendiherraembætti í Sviss. Dönsku ráðherrahjónin koma hingað á laugardaginn og dveij ast hér fram á mánudag og munu skoða hér söfn og sögu- staöi í nágrenninu. Sölvhöj er talinn vaxandi maður í sínu starfi, en hann er annar tveggia ráðherra dönsku stjórnarinnar. sem ekki eru á þingi og ekki er bundinn pólitfskum böndum Hann var áður útvarpsstjóri danska útvarpsins og kom 'nin" að til lands fyrir nokkrum ár- um meðan hann gengdi þvf em- bætti. . , I

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.