Vísir - 14.10.1966, Blaðsíða 11

Vísir - 14.10.1966, Blaðsíða 11
Systir Alma (Bibi Andersson) er gefiö utan undir og reikar aö veggn- ... hún jafnar sig fljótlega og klórar andstæðinginn i andlitið og hlýt- um... ur nýtt högg að launum... ,.. höggið lendir á nefinu, það byrjar að blæða. Hún tryllist af reiði.hún hugsar sér að kasta skaftpotti með sjóðandi vatni að hinni konunni (Liv Ullman). BERGMAN rýfur þögnina — með mállausri leikkonu í „Persona“ eru sýnd slagsmál milli kvenn- anna tveggja í sumarbú- stað, sem liggur afsíðis við hafið. Önnur veigrar sér við að tala, hin þolir ekki þögnina. Einmana- leikinn fer í taugamar á báðum. — Það verður sprenging.. ann 18. október skeður atburö ur í kvikmyndaheimi Svía, sem mun vekja athygii víöa um heim. Það er frumsýrting kvik- myndar Ingmars Bergmans „Per sona“ sem fer fram í Stokkhólmi. „Persona" er Iatneskt orö, sem merkir grímuna, sem leikarar til forna báru. Nú eru liðin tvö og hálft ár síöan Bergman kom fram meö kvikmynd („Svo að ekki sé talað um allar þessar konur“) — og þrjú ár frá því að „Þögnin“, sem vakti svo mikla hneykslun, var gerð. I „Persona'* eru tvö lítil auka hlutverk og tvö aðalhlutverk, sem mynda kjamann í kvikmynd inni. Annað aðalhlutverkið leikur Liv Ullman, 28 ára gömul norsk leikkona. Þetta er fyrsta kvik- myndin, sem hún leikur í hjá Bergman en ekki hin síðasta. Hitt aðalhlutverkið er leikið af Bjbi Andersson, leikkonunni, sem Bergman notar oftast í kvikmynd um sínum. Stúlkumar hafa einu sinni áður leikið saman f kvikmynd. Þær líkjast hvor annarri að vissu leyti. Það gaf Bergman að hluta hugmyndina aö „Pers9na.“ Liv Ullman segir lítið sem ekk ert í kvikmyndinni. Hún leikur leikkonu, sem veikist og koma veikindin í ljós í málleysinu. . Bibi Andersson leikur hjúkmn arkonu. Hún hefur það hlutverk að vaka yfir leikkonunni. „Persona" var tekin í fyrrasum ar á eynni Fárö utan við strönd Gotlands. Allt vorið 1965 lá Ingmar Berg man á sjúkrahúsi. Það varð að hætta við kvikmyndatöku, sem stóð fyrir dymm. Það var ringul reið hjá sænska kvikmyndasam- bandinu. Það var búið aö selja kvikmyndaréttinn á Bergmans- myndinni þýzku fyrirtæki um það leýti, sem myndin var enn á fmm stigi og fyrir milljónir. Og þá fór allt út um þúfur ... En allt í einu skeði það í júní — skömmu eftir að Bergman hafði verið útskrifaður af sjúkra húsinu — að hann kom með hand rit að allt annarri og nýrri kvik mynd. Það var „Persona.“ Kvik myndasagan hefst á sjúkrahúsi. Hversu mikið hefur það sem Bergman hefur sjálfur upplifað S^tt svip sinn á kvikmyndir hans? Verkefni, fyrir Bergmansrann- sakendur. Eins og venjulega var kvik- myndin hans skrifuð fyrir þá lista menn, sem hann hugðist nota. Hann setti Bibi Andersson í stórt erfitt hlutverk og hitt, sem var eins erfitt fyrir Liv Ullmann, en báðar áttu þær að vera f kvik- myndinni, sem hafði verið hætt við. ' Hver er Liv Ullmann? Jú, sögðu þeir sem það vissu það er norska leikkonan, sem er svo lík Bibi Andersson. Það kom fram að Liv Ullmann var leikkona framarlega f flokki leikara við Þjóðleikhúsið í Oslo, Ljóshærð, græneygð, grönn. Gift þekktum lækni. Ofurlftið feimin kom hún til Stokkhólms og til kvikmyndatök unnar. En hún áttaði sig skjótt á umhverfinu. — Ingmar Bergman veitir mér svo mikla öryggistilfinningu, sagði hún. 1 vor fékk hún aftur aðalhlut- verk í kvikmynd Bergmans gerðri í sumar, (Vargtimmen). I þeirri kvikmynd leikur Liv barnshaf andi konu. Hún sagði frá því að hún væri það einnig í raunveru leikanum. Og að hún ætti að geta leikið hlutverkið með vissri innlifun. (Það varð stúlka. Móður og bami líður vel heima f Osló). Það hvað Bibi Andersson og Liv Ullman voru lfkar hafði grip ið Bergman þegar hann skrifaði handritið að „Persona." Kvik- myndin fjallar lfka um tvær kon ur svipaðar f útliti, sem um skeiö dragast hvor að annarri og hrinda hvor annarri frá sér á vfxl. Að lokum skipta þær nærri yfir í skapgerðareinkenni hverr- ar annarrar. „Persona" er 27. langa kvik- mynd Bergmans, sem er 48 ára gamall. Hann segir: „Kvikmynd er ekki lengur fyrlr mig eins og kan ínufæðing." Áður var það auðveldara. Nokkrar kvikmvndir á ári. En á næstu árum verður það sennilega ein kvikmynd á ári. Hann hugsar sér að vfirgefa leikhúsið alveg um skeið. Réttindi og skyldur veiðimanna Nú stendur yfir veiði- timi gæsaveiðimanna, og brátt byrjar tími rjúpnaveiöanna. Fuglaveiðar hafa veriö freist ing margra, ekki sízt innisetu manna, sem margir hverjir stunda fuglaveiðar sem hress- andi íþrótt. En það ber við þeg ar gæsaveiðimenn flykkjast austur um sveitir, að ým- ist er skotmönnum tekið opn- um örmum af bændum, sem telja sig vera í nauðvörn með ný ræktir sínar og akra fyrir gæs unum. eða að bændur telja sig vera í nauðvöm með búpening sinn vegna skotmanna. Það er augljóst mál, að það er stór munur á þeim mönnum, sem fara til veiða og hafa í frammi allar varúðarreglur gagn vart bæjum og búfé, og svo aft ur þeim, sem flækjast um sveit ir og skjóta á umferðarskilti og jafnvel út í bláinn, ef þeir fá ekki neitt annað til að skjóta á. í rauninni þarf aö setja miklu fastari reglur um meðferð skot vopna, þannig að hver sá sem sannar að hann kunni með skot vopn að fara, þekki til varúöar- reglna og friðunarlaga, og hafi náð tilskildum aldri, þeir fái að nota skotvopn til veiða, en aðr ir ekki. Það væri ekki óeðlilegt, að þeir sem óska þess að fá byssuleyfi, gengju undir hæfnispróf, alveg eins og þeir sem taka bílpróf. Þaö er ábyrgð arhluti að aka bíl, og það er einnig ábyrgðarhlutl að hafa skotvopn undir höndum. Þó að sumum bændum finnist ekkert athugavert við veiði- menn, þá er öðrum bændum ó- vært að vita af þeim i landi sfnu. Þeim bændum sem friða vilja ógirt lönd sín, ætti að vera skylt aö auökenna lönd sín meö skilti með banni um veiði. Það er ekki alltaf svo auðvelt fyrir veiðimenn að vita, hvar má veiða og hvar ekki, ef um ógirt afréttarlönd er að ræða. Vanir veiöimenn kunna skil á að fara með gát gagnvart skepnum en það eru glannamir og óvitamir, sem þarf að útiloka frá því að hafa skotvopn undir höndum. Það er staðreynd að það eru skotnar rjúpur haust hvert fyr ir hundruðir þúsunda króna, svo að þetta er á sinn hátt verðmæt ur þáttur í þjóðarbúskapnum, en þessum rekstrj þarf að setja fastari skorður um aðgæzlu og réttindi. Veiðimenn sem telja sig á einskis manns landi, og hafa haft í frammi varúð gagn vart skepnum, hafa fengið á sig kæmr, þó að þeir hafi verið fjarri öllum mannabyggðum, þá hafa meinsamir bændur talið þá vera í órétti. Þeir sem friða vilja ákveðin lönd ætti að vera skylt að auðkenna löndin ef þau em ógirt á sama hátt og þeir ••••••••■•••••••••••••! gera sem banna vilja berja- • tfnslu eða tjaldsvæði. En það á • líka að útiloka glanna úr hópi • veiðimanna með hörku. og það J væri t.d. til bóta að hafa nám • skeið í meðferð skotvopna. þar » sem einnig væm kynntar friðun • arreglur o. s. frv. Það þyrftj hið bráðasta að » setja lög um réttindi og sky’.dur • veiðimanna, lög um hæfni og • próf skotmanna, og ennfremur • um skyldur landeigenda að auð • kenna ógirt lönd sfn ef þeir vilja , banna veiði. Réttindalausum • mönnum á auðvitað alls staðar « að vera óvært. J • Ennfremur ættj að vera skrá J um öll skotvopn f landinu, og • tilkynningarskylda, ef skotvopn • skipta um eigendur Skotvopn • em nú mörg f landinu, jafnvel * í eigu unglinga. • Þr.indur ( götu. • ÞRÁNDUR í GÖTU

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.