Vísir - 15.10.1966, Blaðsíða 5

Vísir - 15.10.1966, Blaðsíða 5
I SIR . Laugardagur 15. október 1966. Friðrik Framh. af bls 9 um skák eins og um annaö,- sem grípur hug manns allan, að mað- ur hugsar ekki um annað. Þeg- ar ég fór að hugsa um skák á unga aldri, fór ég yfir margar skákir, áður en ég fór að stúd- era einstaka þætti skákarinnar. T. d. fór ég yfir allar skákir Capablancha, áður en ég fór á mitt fyrsta kappmót. Þá held ég að skákmaður verði að hafa óbilandi trú á sjálfan sig, sem þó má ekki ganga út í öfgar. af. Háskólinn — rramhald at bls. 16 afmæli háskólans 5 millj. kr. að gjöf frá Bandaríkjastjórn til efl- mgar raunvísinda við háskólann. I des. 1962 var kosin bygging- arnefnd skólans og Þorbjörn Sig urgeirsson kosinn form. henn- ar. Arkitektar að byggingunni voru þeir Sigvaldi Thordarson og Skarphéðinn Jóhannsson. — Vorið 1964 hófust byggingar- framkvæmdir. Féö, sem aflað hefur verið í bygginguna, eru 6 millj. frá Bandarikjastjórn, 6.4 millj. frá ríkissjóði og 7.5 millj. frá Happdrætti H.í. Lýsti fcs-maður byggingar- nefndar, Þorbjörn Sigurgeirsson, byggingunni sem er 544 ferm að grunnfleti tvær hæðir og kjallari. í kjallara er húsnæöi fyrir rafreikni háskólans, en á 1. hæð rannsóknarstofur fyrir eðlis- og efnafræði auk vinnu- stofa. Á 2. hæð er húsnæði fyrir bókasafn, 15 vinnustofur fyrir sérfræðinga o. fl. Byggingar- kostnaður nemur nú um 20 milij kr. og er viðbótarkostnaöur á- ætlaður um 700 þús. kr., þar á meðal í allar fastar innréttingar í rannsóknarstofur. Er lóð stofn unarinnar skipulögð þannig, að tvær viöbótarbyggingar við raun vísindastofnunina má reisa á henni. Tók Magnús Magnússon pró- fessor, formaður stjórnamefnd- ar Raunvísindastofnunarinnar og framkvæmdastjóri hennar, sfðan til máls eftir að Ármann Snævarr haföi afhent honum stofnunina-fyrir hönd háskólans. Sagöi hann m. a. að með tilkomu raunvísindastofnunarinnar skap- aðist vísindamönnum aðstaða, sem ekki hefði verið fvrir hendi áður og ennfremur fyrir vísinda- legt nám við háskólann, sem gæti orðið til þess að fleiri sæktu í það en áður. Raunvísindastofn unin væri fyrst og fremst rann- sóknarstofnun en starfsliðið stundaði einnig kennslu og með tilkomu stofnunarinnar skapaö- ist grundvollur þess aö kennara- lið fengist við háskólann í þeim raunvísindagreinum, sem starf- að væri við í stofnuninni. Rannsóknarstofur í eðlisfræöi væru að verulegu leyti teknar til starfa en aörar rannsóknar- stofur ekki. Reiknistofa háskól- ans hefði verið rekin í bygging- unni á annað ár. I stjórnarnefnd eiga sæti auk formapnsins, Magnúsaj- Magn- ússonar forstöðumenn hinna 4 rannsóknadeilda þeir: Leifur Ás- geirsson, forstöðum. rannsóknar stofu í stærðfræði, Þorbjöm Sig urgeirsson fyrir rannsóknarstof- una í eðlisfræði, Steingrímur Baldursson fyrir rannsóknarstof una í efnafræði og Þorsteinn Sæ mundsson fyrir rannsóknarstof- una í i'arðeðlisfræði. Hosningar i rainhalu ai ois 16 skóla íslands síðan 1959. 1 framtíð- inni mun félagsmáium stúdenta vera þannig varið, aö Studentaráö Háskólans mun fara meö hagsmuna | mál stúdenta. Stúdentafélag Há-; skólans mun annast önnur félags- mál. Það ■ er kosningin til Stúdentafé- lagsins, sem er pólitísk kosning, en aftur á móti verða kosningar til Stúdentaráðs með sama sniði og undanfarin ár, þ. e. með listákosn- j ingu í hverri háskóladeild um sig. Tveir listar verða í kjöri við kosn ■ ingarnar í dag. Annars vegar er j listi VÖKU, félags lýðræðissinnaðra ■ stúdenta, en hins vegar „listi fimm- tán háskólastúdenta", eins og hann nefnir sig. Kjósa á 7 stjórnarmenn í Stúdentafélagið. Kjörfundur verð- ur í Háskólanum sjálfum og hefst klukkan 1 e. h. og stendur til kl. 7 um kvöldið. Aöeins veröur kosið þennan eina dag. Kosningarétt hafa allir stúdentar, sem innritaðir eru í Háskóla íslands. Listabókstafur VÖKU er A, en listabókstafur „lista 15 háskólastúdenta" er B. Kartöflur — sér stórar, iallegar, mjölmiklar og bragögóöar kartöflur, upp- skeru, sem sannarlega var stærri en gengur og gcrist hér- lendis. . Kartöflurnar voru fengnar hjá i Sturlu Friörikssyni hjá Atvinnu [ deild Háskólans, en hann vinnur , mikiö að alls konar tilraunum meö kartöflurækt, meðal ann- ars. Stærsta kartaflan á myndinni vó hvorki meira né minna en 1050 grömm. Hinar kartöflurnar á myndinni eru milli 600 — 700 grömm og í uppskerunni var mjög mikið af slíkum kartöfl- um og uppskera í heild risa- vaxin. Kartöflur bessar koma frá Ameríku og eru mikið notaðar sem bökunarkartöflur eru bak- aðar í ofni með smjöri og þykja herramannsmatur. HjúEcruaarskóli — Framh. af bls. 1 ann í ágúst og í nóvember, en sú breyting verður nú á að nemendur verða teknir inn í skólann í febrúar og í september. Hefja nær 60 nem- endur nám í febrúar n.k. en ekki verður unnt að taka nema um 30 í september næsta ár. Er skólinn þegar fullskipaður fyrir árið 1967 svo og fyrir árið 1968 en að jafn- aði berast miklu fleiri umsóknir um skólavist en hægt er að sinna. — Helztu breytingarnar sem verða á náminu er hið nýja fyrir- komulag kemst á eru þær að bók- legt nám verður aukið og reynt verður aö nota þann tíma sem ætl aður er til verklegs náms betur en hægt hefur veriö að gera. Hafa hjúkrunarnemar verið mikilvægir vinnukraftar á sjúkrahúsum en nú verður reynt aö veita þeim meiri tilsögn meðan þeir eru í verklegu námi og er meiningin að reyna að fá hjúkrunarkennara á deildirnar sem hafi aðeins það starf að fylgj ast með' hjúkrunarnemunum og leiðbeina þeim en séu ekki ábyrg ir fyrir sjúklingunum. Jafnframt bessari nýju breytingu verða hjúkr unamemar ekki sendir til starfs á sjúkrahúsum utan Reykjavíkur að undanteknu sjúkrahúsinu á Akur- eyri. Auglýsing í Vísi eykur viðskiptin Ný réftarhöld í iukarfa framundan Búizt er við nýjum réttarhöldum í Jakarta, sem vekja munu meiri athygli en réttarhöldin yfir Suband rio, fyrrum utanríkisráðherra. Þegar réttarhöldunum yfir Sub- andrio er lokið verður leiddur fyr- ir rétt fyrrverandi varamarskálkur flugher„ Indónesíu, Omar Dhani, sem var kommúnisti eöa mjög hlynntur kommúnistum. Hann var einn af aöalmönnum samsærisins, sem kommúnistar geröu í fyrra. — Vitnisburður hans er sagður geyma atriði úr samtölum og aðgerðum Súkarnos á Halimflugvellinum, sem var höfuðstöð uppreisnarmanna. Talið er, að honum hafi veriö lofuö væg refsing ef hann segði allt af létta um það, sem hann veit varð- andi samband Súkamos við upp- reisnarmenn. Meinatækni — Framh aí bls 1 Bjami sagði einnig að námi i stúlknanna væri þannig hag- að, að þær væru í skóla fyrstu , 8 mánuðina af námstímanum, ! en þá 16 mánuði, sem á vantaði ! til að ná tveimur árum, væri ætlazt til þess, að stúlkurnar væru við verklegt nám á rann- sóknarstofum svo sem hjá rfkis spitölum, hjá borgarsjúkrahús- inu og einnig á rannsóknarstofu Háskólans. Nýir bílar fró Chrysler Vökull h.f. í Reykjavik kynnti fjölmörgum gestum í gærdag hinar nýju bílagerðir C3irysler- verksmlöjanna, I hófi, sem hald ið var í anddyri Háskólabiós. Myndin var tekin f gær f bf- óinu af cinum hinna glæsilegu 1 bíla, sem Chrysler sendir frá I sér að þessu sinni. Starf þeirra stúlkna, sem út- skrifast frá þessum nýja skóla mun verða að vinna sem að- stoðarstúlkur lækna. Að vísu er hér á landi fyrir hópur kvenna, sem þessi störf stundar, en fæst ar þeirra hafa stundað nám er- lendis, heldur hafa stúlkumar verið þjálfaðar hver á sínum stað svo sem á Landspítalanum og Heilsuvemdarstððinni. íslenzk og erlend frímerki. innstungubækur. Bækui fyrir fyrstadagsumslög. Frímerkjasalan, Lækjargötu 6A STÚLKA ÓSKAST til afgreiðslustarfa. Uppl. á skrifstofunni — Sæla Café, Brautarholti 22 kl. 2-5 e.h. í dag og næstu daga. Símar 19521 eða 23935. Sendill óskasf Sendill óskkst nú þegar í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Uppl. í síma 22400 kl. 9-17 dagl. Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur Stúlka óskast til afgreiðslustarfa strax. Uppl. í-síma 37737 MÚLAKAFFI Nýtt hausfverð 300 kr. daggjald KR. 2.50 á ekinn km. ÞER LEIK Rauðarárstíg 31 sími 22-0-22

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.