Vísir


Vísir - 15.10.1966, Qupperneq 11

Vísir - 15.10.1966, Qupperneq 11
Œ L_ SíÐAN CHAPLIN braut ökklann — datt i kvikmyndafókuverinu Snemma í vikunni datt Charlie Chaplin, sem nú er 77 ára gamall og braut ökklann. Þetta skeöi þeg ar hann heimsótti Pinewood- kvikmyndaverið fyrir utan Lon- don. Heimsókn þessa heimsfræga gamanleikara kvikmyndanna og leikstjóra var í sambandi viö töku nýjustu kvikmyndar hans, sem er veriö að ljúka „Greifynj- an af Hong Kong“ þar sem Sophia Loren og Marlon Brando leika aðalhlutverkin. Chaplin var ekið á sjúkrahús, en fékk leyfi til þess að fara aftur á hótel sitt í London. Hann getur reiknað með að þurfa að ganga með fótinn í gipsi í minnsta kosti sex vikur. Eins og áður er sagt er kvik- myndinni að mestu lokið, en hún verður frumsýnd í byrjun næsta árs. Fegurðardísir norðursins — „Ungfrú Norðurlónd" kjörin á morgun Tíu ungar fegurðardísir komu I vikunni til Helsingfors þar sem „Ungfrú Norðurlönd‘‘ verður kjör in á tnorgun. Tvær stúlkur eru frá hverju landanna. íslenzku stúlkumar eru Guð- finna Jóhannsdóttir lengst til vinstri á myndinni sem var tekin af þeim við þetta tækifæri og næst henni fegurðardrottning Is- lands Kolbrún Einarsdóttir þá koma tvær frá Danmörku, tvær frá Noregi, tvær frá Sviþjóð og finnsku þátttakendumir eru lengst til hægri. Meö fótinn i gipsi. T^rándi £ Götu barst í gær eftir farandi bréf frá bæjarfóget anum í Kópav.. um umf.stj. á Reykjanesbraut, þar sem hún liggur gegnum Kópavog, en Þrándur hafði áður birt grein um þau málefni. Bréf bæjarfó- geta er svohljóðandi: Hinn 13. þ.m. birtuð þér grein um umferð og umferðarstjóm. Er þar aðallega fjallað um um- ferðarstjóm lögreglumanna í Kópavogi og segir í greininni m. a. svo: ....... en oft finnst ökumönnum, að margir þeirra lögregium. £ Kópavogi stjómi ekki af sama öryggi og kollegar þeirra i Reykjavík og gripi oft inn i umferðina af fljótfæmi t-il að koma fólki yfir akbraut. Það er eins og gangandi fólk megi aldrei doka við, og maöur hefur séð, að lögregluþjónar suður þar veigra sér ekki við að stoppa fjölda bila, til að koma einum strák vfir, í stað þess að oft má doka við, því það getur líka valdið umferðartmflun að stöðva marga bíla að þarfleysu" Ég ætla ekki að fara að met ast við Þránd í Götu eða aðra um hvort starfshæfni lögreglu arvegi). Þessi vegur klýfur bæ okkar i tvo hluta. Bæjarstjóm Kópavogs hefur þvl með til styrk rikissjóð veitt fé til þess arar varðgæzlu í þeim tilgangi Það er þvi í okkar huga ekkert skrýtið að bifreiðir séu stööv- aöar „til að koma einum strák yfir“. Það er ekki alltaf hægt fyrir • • ÞRANDUR I GOTU manna í Kópavogi sé meiri eða minni en lögreglumanna í öör- um umdæmum, aðeins geta þess aö þeir fá sína undirbúnings- þjálfun á sama stað og flestir aðrir lögreglumenn landsins, þ. á.m. nýliðar í Reýkjavik. Um langa starfsþjálfun er hins veg ar ekki að ræða í svo nýju lög- regluliði sem lögreglulið Kópa- vogs er. Hins vegar vil ég lítil- Iega gera grein fyrir hverjar em aðalástæður þess, aö fastur lögregluvörður er á 2 stöðum á Reykjanesbraut (Hafnarfjarö- fyrst og fremst að vemda líf og heilbrigði bama okkar Kópa- vogsbúa, svo og annarra gang- andj vegfarenda. Að sjálfsögðu nýtur umferð ökutækja einnig góös af varðgæzlunni. Fyrir gangandi fólk er braut þessi einn hættulegasti staður, sem ég veit af á þessu landi. Miklu er eytt af sameiginlegum sjóði okkar Kópavogsbúa til að reyna að vemda böm okkar og aðra gegn þeim lífshættum, sem för yfir eöa um þennan veg hefur i för með sér. einn lögreglumann, sem varð- gæzlu hefur á stöm svæöi, aö stöðva bam eða ungling, sem ætlar yfir veg, ef bifreiðaum- ferð er ekki alveg samfelld. Böm og unglingar eru oft óhlýð in, en okkur er ekki alveg sama um þau samt. Mat okkar í lög- regluliði Kópavogs á verðmæt- um er það, að þýðingarmeira sé að koma strák klakklaust yfir veg, en það hvort ökumaður verður 1-2 mínútum lengur eða skemur á leið milli staða. Ég veit, að Þrándur i Götu skilur þetta, ef hann á sjálfur strák, en annars e.t.v. ekki. Sigurgeir Jónsson bæjarfógeti. Það ber að þakka bæjarfó- geta Kópav. bréfið. Það skýrir flesta liði i umræddri grein. Við erum sammála um nauðsyn þess að hafa lögregluvörzlu á Reykjanesbraut til vemdar böm um sem fullorðnum. Það var aðeins það, að við bentum á að ökumönnum þætti oft á tíðum gripið ótímabært inn i umferð- ina, sem að getur einmitt kom- ið af þvi, eins og fram kemur í bréfinu, að lögreglulið Kópa- vogs er tiltölulega nýtt af nál- inni. Er ekki aö efa að fógeti og lögreglumenn í Kópavogi geri sér grein fyrir þessu, þannig að þetta lagist meö meiri reynslu. Þrándur 1 Götu.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.