Vísir - 19.10.1966, Page 2
2
V í SIR . Miðvikudagur 19. október 1966.
„Framkoma Sigurðar
í alla staði til sóma"
Athugasemd Grétars Norðfj'órð, dómara i
leik KR og Keflavikur á sunnudaginn
Herra ritstjóri
Ég vil eindregiö óska leiðrétt-
ingar í sambandi við grein yöár
um leik K.R.—l.B.K. er fram fór i
Keflavik s.l, sunnudag, en i henni
er talaö um framkomu Sigurðar
Albertssonar fyrirliöa Í.B.K. eftir
að hann haföi brotiö gróflega á
Herði Markan, hægri útherja K.R.,
en í greininni segir orörétt: „Eftir
jietta brot sitt stóö Sigurður Al-
bertsson fyrir framan dómarann
og hló og kiappaði“.
Tel ég aö Siguröur hafi orðiö
fyrir óréttlátu aðkasti og iít á þaö
í mfnum verkahring, að leiðrétta
þetta sem dómari leiksins og mál-
iö þvf vel kunnugt, en máisatvik
voru þau, að eftir aö Siguröur brá
Herði (hrinti sagt í greininni) stóö
Hörður upp og hrækti í þá átt sem
Siguröur stóð, kom þá Siguröur
strax til min og kærði Hörö fyrir
j framkomuna. Er ég spuröi Hörð
um hvort þetta væri rétt, viöur-
j kenndi hann aö svo væri, en hann
j heföi alls ekki ætiaö að hrækja að
i Sigurði heldur hefði tilviljun ein
j ráðiö að svo varð.
Ræddi ég síðan við þá sameigin-
lega, en Siguröur var aö sjálfsögðu
mjög reiður eftir atvik þetta, en
framkoma hans í leik þessum var
honum til sóma sem fyrirliöa leik-
sveitar sinnar. Harma ég að svona
biaðaskrif eigi sér stað um íþrótta-
keppni.
Með þakklæti fyrir birtinguna.
Grétar Norðfjörö.
Boðaður klukku-
tímu fyrir leikinn
• Ungi Víkingurinn, sem
vakti athygli meö SV-úrvalinu
í fyrrakvöld er ekki Hákonar-
son, eins og blöðunum hafði
verið gefið upp af landsllðs-
nefnd. Landsliðsnefnd valdi
Einar Hákonarson úr Víking,
en sá er aftur á móti markvörð-
ur llösins, en ætlaöi aö velja
Einar Magnússon.
• Einar Magnússon las þaö
i Vísi að félagi hans Hákonar-
son hefði veriö vaiinn, en sjálf-
ur fékk hann ekki að vjta hiö
rétta fyrr en kl. 7 um kvöldið,
— rúmum klukkutfma áöur en
leikur átti aö hefjast.
Aöalfundur.
Aðalfundur Frjálsíþróttadeild-
ar K.R. verður haldinn í KR-
heimilinu fimmtudaginn 27. okt.
1966 kl. 8,30 eftir hádegi.
Stjóm F.K.R.
keppninni. í þessum leik skoraöi hann 58 stig og sló þar meö
stigamet Oscars Robertson.
Eins og sagt var frá fyrir skömmu fékk íslenzkt dómara,,trió“
mjög góða dóma fyrir dóm sinn á leiknum í Swansea og voru
báöir aðilar mjög ánægðir.
Nú fyrir skömmu barst Björgvin Schram, formanni KSÍ, bréf
frá ritara Swansea Town-félagsins þar sem hann hælir þeim
Magnúsi Péturssyni, dómara, Grétari Norðfjörö og Eirtari Hjart-
arsyni, línuvöröum, fyrir frammistööuna.
„Viö vorum mjög ánægöir meö frammistöðu þeirra allra þriggja.
Sérstaklega stóö dómarinn sig vel. Við höfðum ánægju af nær-
veru þeirra og vonumst til að fá að sjá þá hér aftur bráðlega,“
segir ritari félagsins.
Evrópubikarkeppnin i k'órfuknattleik:
KR lendir móti Evrópumeist
urunum frá italíu
— Með Evrópumeisturunum, Zimmenthal,
leikur einn bezti k'órfuknattleiksmaður i heimi
Sl. laugardag var dreg
ið um það, hvaða lið
eiga að leika saman í 1.
umferð í Evrópubikar-
keppninni í körfuknatt-
leik. Fulltrúar íslands í
keppninni eru íslands-
meistarar KR 1965 og
1966. Mótherjar þeirra í
1. umferðinni eru engir
Einn af leikmönnum Zimmenthal skorar i leik gegn ungversku
meisturunum, Honved.
aðrir en Evrópumeistar
arnir Zimmenthal frá
Mílanó á Ítalíu. Zimmen-
thal er nú talið eitt allra
bezta lið Evrópu og þótt
víðar væri leitað. Með
því leika 3 Bandaríkja-
menn, þeirra á meðal
Bill Bradley, sem talinn -
er einn bezti körfuknatt
leiksmaður í heimi. Leikj
um 1. umferðarínnar á
að vera lokið um miðjan
nóv. og er leikið heima
og heiman.
Á undanfömum árum hafa
komiö hingað sterk erlend
körfuknattleikslið, svo sem
Kentucky-háskólaliðið, MIT-
háskólaliðið, bæði frá Banda-
ríkjunum og pólska landsliðið,
en líklega kemst ekkert þessara
ágætu liða með tærnar, þar sem
Zimmenthal hefur hælana. Lið-
ið hefur náð frábærum árangri
síðustu árin, og er nú um þess-
ar mundir á hápunkti ferils
síns. Nefna má sem dæmi, að
nú stendur yfir mikil körfu-
knattleikshátíð í Júgóslavíu,
þar sem taka þátt júgóslav-
nesku meistaramir Zadar, Zimm
enthal, júgóslavneskt félagslið
og Evrópuúrvalið. Zimmenthal
er ítalskir meistarar, og í einum
leikja sinna í ítölsku keppninni
í fyrra setti liðið stigamet, er
það skoraði 118 stig í einúm
leik.
I Evrópukeppninni í fyrra
sem Zimmenthal vann, mætt
liðið mörgum sterkustu félags
liðum Evrópu, svo sem meist
urum eftirtalinna landa: V.
Þýzkaland, Israel, Tékkósló-
vakía, Spánn (Real Madrid) og
Rússland. Ekkert meistaraliða
þessara landa stóðst hinum
ítölsku meistumm snúning. I
Framh. á bls. 6.
i