Vísir - 21.10.1966, Qupperneq 4
V í S IR . Föstudagur 21. október 1966.
A
m
m
Sveinn Jónsson,
framkvæmdastjón — Minning
f. 21. okt. 1907 - d. 1S. okt: 1966
Cveinn Jónsson, framkvæmda-
^ stjóri, var fæddur f Reykjavík
21. okt. 1907, og hefði því orðið
59 ára í dag. Hann var sonur hjón-
anna Sigurveigar Jónsdóttur og
Jóns Einars Jónssonar, prentara,
sem bjuggu lengst af á Bergstaða-
stræti 24, og þar ólst Sveinn upp
frá 5 ára aldri er foreldrar hans
fluttu þangað frá Bergstaðastræti
20, en þar fæddist Sveinn.
Hann hóf á unga aldri verzlun-
arstörf. Byrjaði sem sendisveinn
hjá Tómasi Jónssyni, kaupmanni í
Reykjavfk, og vann sig til mennta
í verzlunarstörfum. Hann var í und-
irbúningsdeild Verzlunarskólans og
tók próf upp í 1. bekk. Hann hélt
þar ekki áfram en stundaði nám á
kvöldnámskeiðum, þar til hann fór
til Englands og var þar á verzlun-
arskóla árin 1925 til 1926.
Eftir heimkomuna starfaði hann
hjá Tómasi Jónssyni og fleirum,
til ársins 1928, en þá réðst hann
til Sandgerðis h.f., útgerðar- og
verzlunarfyrirtækis Lofts Loftsson-
ar f Sandgerði.
Árið 1933 gekk hann í félag með
Haraldi Böðvarssyni á Akranesi,
ásamt Ólafi Jónssyni, um verstöð-
ina og verzlunina í Sandgerði, sem
Haraldur Böðvarsson hafði rekið
þar í mörg ár.
Árið 1941 stofnuðu þeir Sveinn
og Ólafur Miðnes h.f., sem keypti
eignir stöðvarinnar. Miðnes h.f. hef
ir síðan rekið stóran útgerðarrekst-
ur og fiskvinnslu, það er hrað-
frystihús, saltfisk- og skreiðarverk-
un o. fl. Sveinn var framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins til dauðadags,
ásamt ólafi.
Þeir félagar voru stofnendur að
mörgum öðrum fiskvinnslufyrir-
tækjum. Þar má telja Keflavík h.f.,
Dráttarbraut Keflavíkur h.f., Fisk-
iðjuna h.f. öll í Keflavík, Sunnu h.f.,
Siglufirði, ásamt fleiri fyrirtækj-
um. Og hafa þeir verið aðilar að
rekstri þessara fyrirtækja til þessa.
Sveinn var duglegur og þar eftir
afkastamikill starfsmaður. Hann
vann sér öll bókhaldsstörf létt,. og
með löngum starfsdegi, iðni og at-
orku urðu vinnuafköst hans með
afbrigðum mikil. Hann var vak-
andi og sofandi, lifandi í starfi yfir
fyrirtæki sinu f Sandgerði. Hann
TRESMIDJAN
'lfátí
}/ Laugavegi 166 framleiðir
húsgögn í alla íbúðina. SERGREIN: einkaleyfishúsgögn
og finnskum arkitektum. MARKMID: ódýr og vönduð
húsgögn, sem standast kröfur tímans.
22229
með ^ý-grind
(úr plaststeypu), teiknuð af norskum
lét sig hafa aö dvelja þar öllum
stundum, sem hann var utan heim-
ilis síns. Og lengstum tíma starfs-
ævi sinnar eftir 1933, að hann eign-
aðist hluta í fyrirtækinu, eyddi
hann þar.
Þegar hann byrjaði starf sitt við
útgerðina hjá Lofti Loftssyni, voru
viðsjárverðir tímar, og áttu þö eft-
ir að versna. Hann gerði sér far
um að vinna fyrirtækinu álits með
oröheldni og áreiðanleik á öllum
sviðum.
Þessi framkoma hans varð fast-
mótuð í fari hans á lífsleiðinni.
Og fyrirtæki hans, Miðnes h.f., var
þekkt fyrir ábyggilegheit og öryggi
f viöskiptum alla tíð.
í daglegri umgengni var Sveinn
ljúfur og viðfelldinn í viðmóti.
Hann eignaðist þvi marga vini, og
engan veit ég sem ekki viðurkenndi
velvilja hans og drenglund í garð
annarra.
Hann vildi hvers manns vanda
leysa, og lagði sig fram um að
vera i sátt við alla, sem hann kynnt
ist og hann átti einhver samskipti
við. Og gilti þá einu hvort það
voru skipti viðskiptalegs eðlis eða
önnur.
Hann hafði samúð með þeim sem
minna máttu sfn og rétti mörgum
hjálparhönd, sem bágt áttu. Sveins
er saknað af öllum sem þekktu
hann, og þar er genginn góður
drengur langt um aldur fram.
Árið 1937 giftist Sveinn eftirlif-
andi konu sinni, Ragnheiði Einars-
dóttur. Foreldrar hennar voru Ol-
afía Jónsdóttir og Einar Þorgilsson,
skrifstofustjóri Alþingis.
Þau eignuðust tvær dætur, Sig-
urveigu, sem gift er Pálmari Óla-
syni, hann er við nám í Svfþjóð
og lýkur arkitektúmámi á næsta
ári og Ólaffu, sem er heima hjá móð
ur sinni.
Heimili þeirra hjóna var ástúð-
legt, gestrisni og höfðingsskapur
ríkti þar og vinir þeirra höfðu ó-
blandna ánægju af að sækja þau
heim.
Seinustu 2—3 ár ævi sinnar átti
Sveinn við vanheilsu að strfða.
Hann lá þá oft erfiðar sjúkdóms-
legur og varð eftir það aldrei heill
heilsu. En síðustu mánuðina, sem
hann lifði, varð hann að heyja
þunga sjúkdómslegu á Landakots-
spítala.
Ég votta eiginkonu Sveins, dætr-
um þeirra svo og öðrum ástvinum
hans innilega samúð.
Guð varðveiti minningu hans.
Baldur Guðmundsson.
floskum
og miklu ódýrari
Erai