Vísir - 21.10.1966, Síða 8
8
V í S IR . Föstudagur 21. október 1036.
Utgefandi: Blaöaotgáfan VISIR
Framkvæmdastjóri: Dagur Jðnasson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinson
Auglýsingar; Þingholtsstræti 1, símar 15610 og 15099
Afgreiðsla: Túngötu 7
Ritstjórn: Laugavegi 178. Slmi 11660 (5 linur)
Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuöi innanlands.
( lausasölu kr. 7,00 eintakið
Prentsmiðja VIsis — Edda h.t.
Fjárlagagagnrýnin
Qagnrýni talsmanna stjórnarandstööunnar viö út'
varpsumræðuna um fjárlagafrumvarpið var óvenju
máttlaus Qg innihaldslítil. Ræður þeirra voru efnis-
lega mjög svipaðar fyrri ræðum um sama efni. Virð-
ist málsmeðferð stjórnarandstæðinga við fjárlagaum-
ræður vera orðin að vítahring. Því oftar sem hin inn-
antómu orð eru endurtekin, þeim mun ljósari verður
hinn raunverulegi skortur ádeiluefna hjá þessum tals-
mönnum. Veilumar í málflutningi þeirra við þessa
fjárlagaumræðu voru margar, en þrjár voru sérstak-
lega áberandi.
í fyrsta lagi halda talsmenn Framsóknarflokksins
áfram að heimta sparnað í öðru orðinu en eyðslu í
hinu, Þeir kvarta almennt yfir pyðslusemi í fjármála-
stjórn ríkisins, án þess að benda á ákveðin atriði og
segja skýrt hvaða liði þeir vilji spara, hvemig og hvers
vegna. Þegar þeir hafa lokið hinni almennu og óljósu
sparnaðarmessu, kemur langur listi yfir framkvæmd-
ir, sem þeir sakna á fjárlögum. Engar tillögur fylgja
um, hvernig eigi að afla fjár til þessara framkvæmda.
Þeir segja, að niðurstöðutölur fjárlagafrumvarpa séu
allt of háar, og jafnframt heimta þeirí meiri fram-
kvæmdir. Þessi stefna hinna gengdarlausu yfirboða
í allar áttir ríkir áfram ár eftir ár og er enn í fullum
blóma, eins og kom fram við fjárlagaumræðuna.
í öðru lági halda hinir sömu talsmenn áfram að
feika sér að prósentusamanburði á fjárlagafrumvörp-
um mismunandi ára. í ár segir talsmaðurinn, að fjár-
lögin séu 400% hærri en fjárlögin voru 1959, og síðan
fylgir ýtarlegur prósentusamanburður í einstökum lið-
um. Gaman hefði verið, ef fylgt hefði hliðstæður pró-
sentusamanburður á fjárlögum Eysteins árin 1938 og
1951. Þá hefði talsmdðurinn fengið prósentur, sem
matur er í! Staðreyndin er hins vegar sú, að bæði
breytist það svið, sem fjárlögin ná yfir, og einnig
hækka fjárlögin í svipuðum stíl og verðlagið almennt.
í gamla daga þótti það hæfa að hafa stórar greiðslur
utan fjárlaga, en nú þykir það ekki lengur hæfa, enda
hafa nýir menn tekið við fjármálastjórn í landinu.
Það gefur töluverða innsýn í málefnahliðina, þegar
talsmaður stjórnmálaflokks eyðir töluverðum hluta
ræðutíma síns í annað eins barnagaman og prósentu-
reikningur af þessu tagi er.
í þriðja lagi halda talsmenn Alþýðubandalagsins
áfram öreigaræðum sínum í stíl Einars Olgeirssonar.
Talsmaður þess í umræðunum kom varla að neinni
gagnrýní á fjárlagafrumvarpið. Mestur hluti ræðutím-
ans fór í upphrópanir um sult og seyru fátæka manns-
ins og minnkandi kaupmátt. Þessar harðindaupphróp-
anir eru sérstaklega athyglisverðar fyrir þá sök, að
í haust hefur komið fram skýrar en nokkru sinni áð-
ur og svo ekki verður um villzt, að rauntekjur alþýðu-
fólks hafa aukizt ár frá ári hin síðustu ár og það meira
að segja hraðar en þjóðartekjurnar, sem þó hafa vaxið
gífurlega. Slíkar öreigaræður sýna glögglega, hverjir
eru úti á þekju í þjóðmálunum.
Endurreisti
Wagneróperuna
í nýjum stíl
Sonarsonur Richards Wagner nýlátinn
Aðfaranótt sl. mánudags and
aðist í Munchen sonarsonur
Richards Wagner, Wieland að
nafni, 49 ára gamall, bá þegar
orðinn eitt stærsta nafnið i
menningarlífi Vestur-Þýzka-
lands eftir að hafa endurreist
verk afa sfns í anda nýrra tíma.
Hin miklu óperuverk Richards
Wagner komust í hæpna að-
stöðu á dögum ftitiers, er þau
voru innblástur og tákn Stór-
Þýzkalands, þjóðernisstefnu og
heimsveldishyggju þýzkra naz-
ista. Tónlistarhátíðirnar í Bay-
reuth höfðu frá árinu J872 ein-
göngu verið helgaðar verkum
Wagners. En á dögum Adolfs
Hitlers urðu þær öðrum þræð-
inum jafnframt eins konar helgi
athafnir, þar sem Adolf Hitler
var æðsti presturinn í heiðurs-
stúkunni. ;J
★ ' ’ ’
ifv'í (i.sj.r. .aifioítnsii abifiiaið
Óperuhúsið í Bayreuth, sem
Richard Wagner hafði látið
byggja eyðilagöist í loftárásum
1944 og var ekki opnað aftur
fyrr en sjö árum seinna undir
stjóm Wielands Wagners og
bróður hans Wolfgang. Endur-
opnun hússins og Bayreuth-leik
anna hafði þá verið í undirbún-
ingi frá árinu 1946, er banda-
rísk rannsóknamefnd lagði til
að Wagnerbræðrum yrði leyft
að hefja störf aö nýju. Mark-
miðið var að endurvekja Wagn-
eróperuna áybýjum iistrænum
grundvelli. Hugmyndir Wie-
lands Wagner gengu í berhögg
við þriggja kynslóöa túlkun og
skilning á anda og uppfærslu
verka Wagners, en þær stað-
festust þegar í vestur-þýzku
menningarlífi.
★
Rómantíkinni var varpað fyr-
ir borð, hymdu hjálmunum,
púðanum, .sem Parsifal hafði
kropið á síðan húsiö var opnaö
í fyrsta sinn, kyrtlurium, vík-
ingaskegginu, eldspúarjdi drek-
um og kyrtli Brynhiidar. Allt
þetta hafnaði í Wagnersafninu
í Bayreuth. í þeirra stað komu
nýtízkulegir búningar og ein-
faldari, naktari, harðari svið-
setningar. Gömlu sviðstjöldin
hurfu einrlig. 1 þeirra staö
komu ný sviöstjöld, sem Wie-
Iánd Wagner teiknaöi eins og
arkitekt fer að því að teikna, ein
faldir, stórir fletir, engar mynd
ir af hinum myrka suður-þýzka
trjáskógi, aðeins heill svartur
flötur. Ljósin lýstu ekki upp
myndir eins og áður heldur voru
þau hluti þeirra forma, sem
mynduðust á sviðinu. SymboL-
isminn varð ríkjandi.
★
Við opnunarhátíðina 1951
voru sýndar fjórar Wagneró-
perur í hinum nýja anda, fjög-
ur kvöld sátu áhorfendur, sem
gjörþekktu hefðbundnar upp-
færslur á Wagner, eins og steini
lostnir. En hrifningin, sem
þama skapaðist breiddist út um
alla Evrópu og Bayreuth-leikam
ir uröu ein helzta menningarhá-
tið Vestur-Þýzkalands, þjóðar,
sem nú kepptist við að reisa
úr rústum, samræma það bezta
í menningararfleifð sinni á nýj-
um tímum lýðræðis og jákvæðr
ar þjóðemishyggju. Sigur Wie-
lands Wagners varð einn af
sigrum hins nýja þýzka þjóð-
félags.
★>
Wieland Wagner var sonur
Siegfried Wagner, er tekið hafði
við af móöur sinni, Cosimu,
dóttur píanósnillingsiná Lizst,
s^m. atjómandi Bayreuth-hátíð-
arinnar. Hann varð vitni að hag-
nýtingu nazista á verkum afa
síns, var af Hitler b^nnað aö
fara til vígvallanna, hann mátti
ekki lenda í lífshættu, afkom-
andi hins mikla Wagners. í þess
stað varð hann leikstjóri í Alt-
enburg.
Eftir að Bayreuthóperan
komst á laggirnar að nýju var
eftir honum sótzt um víða ver-
öld til að stjóma sýningum á
ópemm Wagners. Hann var á
sl. ári við Metropolitanóperuna
og átti á næsta ári að fara til
óperunnar í Vín. Hann var eðli
lega umdeildur f hópi lista-
manna. Hljómsveitarstjórinn
von Karajan neitaði að starfa
með honum. En við Bayreuth
störfuöu þó í hans tíð margir
Á fundi borgarráðs á þriðju-
dag var samþykkt að ráða Tor-
ben Frlðriksson framkvæmda-
stj. Innkaupastofnunar Reykja-
vfkurborgar. Hafði stjóm Inn-
kaupastofnunarinnar mælt með
Torben í starfið.
Eins og áður hefur komiö
fram í fréttum, hefur Valgarð
Briem, hdl., sagt starfi sínu sem
framkvæmdastjóri Innkaupa-
stofnunarinnar lausu. Torben
maöur.
freipstu ópemsöngvarar samtím
ans, Birgit Nilson, Hans Hotter,
Wolfgang Windgassen, Georg
London og hann lét þeldökku
ópemsöngkonuna Grace Bum-
bry syngja hlutverk Venusar.
★
Umbrotasamur uppvaxtar-
tími hans hafði gert hann að
uppreisnarmanni. Hann hefði ef
iaust gert uppreisn gegn nú-
verandi hugmyndum sínum ei
honum hefði orðið auðið lengra
lífs. Það er ekki hægt að benda
á neitt sambærilegt við Wagner-
stíl hans. Hann hafði hugrekki,
sem eflaust átti sér heldur ekki
hliðstEeðu.
Með hugmyndum sínum og
hugrekki hóf hann ópem Wagn
ers til vegs og virðingar í landi
sem var búið að hafna þeim í
þeirra gamla formi vegna hins
rómantíska og tengsla þeirra
og nazismans. Hann vann þeim
einnig fyigi nýju kynslóðarinn
ar um alla Evrópu.
Friðriksson er íslendingur af
dönskum ættum. Hann hefur
lokið viðskiptafræðiprófi frá Há-
skóla íslands, starfaði að námi
loknu við Framkvæmdabanka lg
lands, réði sig síðan til Efna-
hagsstofnunarinnar, varð þá fu|l
trúi á þingum og fundum Efna-
hagssamvinnustofnunarinnar,
OECD, í Parfs, en hafði aftur
tekið við sfnu fyrra starfi hjá
Efnahagsstofnuninni.
Nýr framkvæmdastjóri Inn-
knupastofnunnr R.víkur