Vísir - 21.10.1966, Page 9

Vísir - 21.10.1966, Page 9
 n VÍSIR \ FÖEtisú: o . Hvort byggir nií enginn hin yztu nes? Nú byggir enginn hin yztu nes. Ógn er af hrundum vöröum. Oft í vályndum veðrum blés vindur af Drangaskörðum. Forðum stóð höfðingja höfuðból við hamranna nyrztu rætur. þar átti sér margur yl og skjól, indælar gleðinætur. [Vú er svo komið, að þann veg er háttað þjóðlífi Islend- inga, að fárra frétta er von af ferðum manna um útnes og yztu strandir, sízt á þeim tíma árs, þegar vetur sezt aö völd- um og veður gerast ill. Þar sem áður ' stóö byggð í blóma og bjargræði var sótt af kappi til hafs og heiða eru nú auðnir einar. Svalir vindar blása um rústir þeirrar reisnar, sem rikti hér fyrr. Um þessar mundir eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Ragn- heiður Pétursdóttir og Eiríkur Guðmundsson, er lengi bjuggu á Dröngum, öðrum nyrzta bæ i Strandasýsiu, við mikla rausn. Húimili þeirra er nú í Kópavogi og þangað legg ég leið mína til að samfagna þeim á þessum merku tímamótum og jafnframt fara þess á leit, að þau bregði úPP fyrir mig myndum úr svip- rfkri sögu fyrri starfsára. JPngum er í kot vísað, er, kem- ur hér að garði frekar en fyfr, jrótt ólíkar séu aðstæöur allar. ,,Já, lífiö er gjörsamlega breýtt,'1 segír Eiríkur. „Þótt-ég ungur væri og þekkti enga ný- þreytni út á við, rhan ég hvað mét/ fannst það fráleitt að sjá fólkið berja húsdýraáburðinn á túpinu, og sýndist, aö á þessu rmtr|di hægt að ráða einhverja bót. Á þessum árum bar það til, 8ð á bú föður mins réðust hjón, Samson og Karítas. Þau áttu son í fóstri inni í Skéljavík í Stein- grímsfirði, hjá manni er Halldór héf og var smiður góður. Vetur þannan fór Samson inneftir til fundar við son sinn. Þegar hann kempr til baka er hanrr glaður og reifur sem jafnan og segir, að í þessari ferð hafi hann séð ný- Ragnheiöur Pétursdóttir og Eiríkur Guömundsson á heimili sínu í Kópavogi. breytni nokkra, en það var kvörn til að mala í áburð, „tað- kvörn". Samson segir, að hér sé um að ræða önnur og fullkomn- ari vinnubrögð en hann hafi áður séö. Faðir minn epyr mjög nákvæmlega eftir þessu og seg- ir svo hvatskeytslega: „Skrifaðu Halldóri og pantaðu eina kvörn fyrir mig.“ Þetta var fyrsta taðkvörnin, sem kom í Víkur- sveit, en innan mjög fárra ára voru þær á hverjum bæ. Þetta eru þær fyrstu umbætur í búskaparháttum, sem ég kynnt ist í minni sveit, árið 1911 kom svo kerra í Ófeigsfjörð, en þá hafði einh sónur Guðmundar Péturssonar, bónda þar, Ásgeir, stundað nám á Hvannevri. En þrátt fyrir frumstæð skilyrði og einfalda lífshætti fyrri daga, er ljómi yfir minningunni. Fólkið var félagslynt. Það voru etfki samkomur með sama sniöi og nú, heldur heimsótti fólkið hvað annað og það stundum i stórum hópum. Ungt fólk nú á dögum aumkar æsku fyrri daga fyrir erfiðleika þá, er hún hafi átt við að stríða í sambandi við ferðalög og beimsókrtir, þar sem venjulega var farið fótgangandi langar vegalengdir. En þetta var miklu auðveldara en menn nú gera sér grein fyrir. Þjálfun sú, sem fékkst við hin ýmsu nauðsvnjastörf heimilanna, smalamennskur, rekaferðir og annað slíkt kom að góðu gagni. Það eitt, að vera á ferð með glöðu fólki er dásamlegt, sé gott veður. Ég held, að ég verði að láta í Ijósi þá skoðun mína, að lífið hafi boðiö upp á meiri gleði þá en nú er. Drangar, Ófeigsfjörður, Melar, Finnboga- staðir. Þessir voru aðal sam- komustaðimir. Á þeim bæjum voru rúmgóðar jDæjardyr og þar var dansaö, og spilað fyrir á einfalda harmoniku. Nyrzti bær í Strandasýslu er Skjaldabjarn- arvík. Þangaö er um 4 tírpa ferð frá Dröngum, kringum Bjamar- fjörð. Inn til Drangavíkur, næsta bæjar að sunnan, er tveggja stunda ferð. Oftast var farin sjóleiðin milli Dranga og Skjalda bjarnarvíkur, en hún er mun styttri. Segja má, að börnin, sem ólust upp á þessum bæjum, 8—10 á hvorum, væru leiksyst- kin,- þó nútímaæsku mundi vafa laust ekki finnast greitt um göt- ur. IVu eru þessar byggðir að leggjast í eyði, Eirikur. — „Já, því miður". — Hvers vegna segir þú: því miöur? — Ég segir því miður, af því, að ég álít þar mjög lífvænlegt. Kannski er ég ekki dómbær á það, hvort lífvæniegt er á nú- tíma vísu. En hvernig stendur á því, að menn lifðu vel og efn- uðust á hálfri Skjaldabjamar- víkinni? Ég skal t.d. nefna Óla Halldórsson frænda minn. Hann bjó þar í 9 ár, byrjaði meö fá- einar kindur og var mjög efna- lítill. Þegar hann fór þaðan voru bömin orðin 4 og það 5. á leiö- inni, en svo haföi hagurinn batn að, að hann gat kevpt á ísafirði sæmilegt ibúðarhús, eftir þeirra tíma hætti, án þesjs að skulda neitt að ráði, þó mun bú Óla aldrei hafa veriö stærra en rúmar 70 kindur og líklega 2 kýr. Nú er taliö að fjölskylda geti ekki lifað af minna en 250 —300 kindum. Ég vil spyrja: Hvernig stendur á þessu? Þegar þú bjóst á Dröngum, Eiríkur. Fannst þér erfiðleik- arnir yfirþyrmandi? — Nei, síður en svo. Ég fann ekkert fyrir erfiðleikunum. Þú varst nú sterkur maður. Já, kannski að lömbunum hafði verið slátr- að, og tóku þær göðum haust- bata. Bjarnarfjörður er fremur gróðurlítill og engjalönd eru þar engin nema fyrir botni fjarðar- ins, þar er ágætt slægjuland 80—90 hesta, tilheyrir það að mestu Skjaldabjarnarvík, en var- þó oft með leyfi bóndans, nytj- að frá Dröngum. Berjalönd eru þama góð, og á mínum æsku- ámm var mjög mikil silungs- veiði í ánni. Á síðari árum hef- ur henni farið mjög hrakandi og legg ég áherzlu á, að þar er svartbakurinn aöal skaðvald- urinn. Hann situr í stórum flokk um við mynni ánna við hvern svona fjörð, þar sem leirfram- burður er, en þar er fullt of silung í kvíslunum og mun svart bakurinn gera þar nokkum usla i ungviðinu. Eitt voriö veiddi ég " Séö heim aö Dröngum. Það rak vel áriö þetta. var ég vel skapaður til aö vera þar. Mér þótti gaman aö glíma við erfiðleikana. Sem dæmi skal ég nefna, aö ég fór hvert vor róandi á árabót við annan mann rúmlega 8 tíma róður út að Horni, enda þótt ég ekki beint þyrfti þess með. En ég hafði af þessu svo mikið gaman. Landými er mikið á Dröngum og má kannski telja það til kosta, a.m.k. hvað strandlengj- una snertir, því það gefur meiri rekavon. En tvo stóra ann- marka hafði jörðin, annar var sá, að þar var flæðihætta mikil og hin, að engjar voru þar því nær engar, eöa þær lélegustu í sveitinni, að undanskilinni Drangavík. Var ekki fé fóðurlétt yfir veturinn? Á fyrstu búskapar- árum mínum voru harðir vetur og þótti ekki fært að ætla minna fóður en 6 aP fyrir kind. Þó að túnið á Dröngum væri ekki nema 10—11 dagsláttur, þegar ég byrjaði aö búa, þá álít ég að næringargild,i þess fóðurs, er af því fékkst, hafi verið mun meira en af jafnstórum skika nú. Kýmar mjólkuöu mjög vel af töðunni einni saman, án nokkurrar fóöurbætisgjafar. Þetta reyndist mér annað eftir að ég hóf ræktun í stærri stíl. Fjörubeit er góð á Dröngum, einkum á haustin. Inni í Bjarnar firði er sölvafjara. Þangað voru stundum látnar eldri ter, eftir 13 silunga í einu fljóti og voru 11 þeirra særðir eftir svartbak. U vernig var svo lífiö á Dröng- um í ykkar tíð, Eiriktir? — Þaö var dásamlegt, í einu oröi sagt — dásamlegt. Ég var svo lánsamur að læra ungur að leika á orgel, að vísu ekki mik- iö, en þó nóg fyrir mig. Af þessu hafði ég og heimili mitt mikla ánægju og einnig gestir, sem komu. Margt fólk í sveit- inni var mjög vel sönghæft, og ýmsir áttu hljóðfæri. Þetta lyfti lífinu. Til einangrunar fann ég aldrei fyrr en þessir blessaðir nágrannar mínir að norðan og sunnan fluttu bu :. Þó var ég á Dröngum 3 ár eftir að jarðimar beggja megin við mig voru komn ar 1 eyði. Sem dæmi um það, hve gott samband var milli fólks ins í þessari norðlægu byggð, skal ég geta þess, að konan mín og konan í Reykjarfirði, það er næsti bær norðan Geirólfsgnúps, voru fæddar sama mánaðardag. Þennan dag héldu þær saman öH þau ár sem við vornm á Dröngum. Þú hefur einhvern tíma sagt mér það, Eiríkur, að Guðmund- ur sonur þinn, meðan hann var unglingur í fööurgarði, hafi far- ið á opinni trillu ferðir fyrir Horn til ísafjarðar. Nú var ekki sími og ekki tök á að fylgjast Framh á bls. 6

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.