Vísir - 09.11.1966, Blaðsíða 2

Vísir - 09.11.1966, Blaðsíða 2
V í SIR . Miðvikudagur 9. nóvember 1966. Sig, Einarsson skorar gegn Víkingi í gær. Fram átti í eriiBleikum — en Vikingar áttu slæman seinni hálfleik og misstu tökin á leiknum Víkingar virðast ætla að verða sitt af „topp“liðunum f í. deild f handknattleik í vetur, ef dæma má eftir leik þeirra gegn Fram í gær- kvöldi. Að vísu dalaði leikur liðs- ins mjög í síðari hálfleiknum, en greiniiegt er að liðiö býr yfir miklu öryggi og leikni. Framarar vissu ekki hvaðan á sig stóö veðrið f gærkvöldi í Laug-1 ardalnum fyrr en 4 mörk Víkings i voru komin gegn engu þeirra. Þeim | tókst þó að jafna 4:4 'og í hálf- leik var staðan 6:5 fyrir Víking. í seinni hálfleik tókst Vfkingi að i komast i 7:5 en Fram jafnaði 7:7 og hafði yfirhöndina það sem eftir var af leiknum, en vöm Víkings var þá orðin losaraleg og sóknin skipulagslftil. Korpst Fram í 13:8 og vann leikinn 15:9. Leikmenn eru yfirleitt að kom- ast í það horf að átta sig á stærð salarins í Laugardal og sumir notfæra sér þessa staérð hans, eink- um þó Framarar, en önnur liö eru talsvert að baki þeim &■ þessu sviði. Með þessum sigrí má segja að Framarar hafi komizt yfir erfiðan j hjalla, því Víkingsliðið er mjög hættulegt lið og til allra hluta lík- legt. Fram er nú éina liöið, sem enn hefur ekki tapáð stigi í Reykja- vikurmótinu og satt að segja lftur ekki út fýrir að neitt félaganna hirði stig af Fram í mótinu. Leikmenn Fram voru mjög jafnir í skorun þetta kvöld, allir skor- uðu og þrfr markhæstu menn voru með 3 mörk hver. Dómari var Magnús Pétursson. Ungur piltur stóð uð buki ÍR sigri Ungur piltur, Vilhjálmur Sigur- geirsson var svo sannarlega sá maðurinn sem mesta athygli vakti í gærkvöldi í Laugardalshöllinni. Hann var hreinlega maðurinn bak við sigur ÍR í lefknum gegn KR, skoraði ekki aðeins ein 8 mörk, heldur átti hann drýgstan þátt í hinum ágæta samleik liðsins og snjallar línusendingar, einkum til Gunnars bróður síns, Leikur ÍR og KR var ekki til- takánlega góður handknattleikur, en hann var eini vérulega spenn- andi leikur kvöldsins. ÍR náði for- ystunni í upphafi og tókst KR ekki að komast yfir fyrr en seint í leiknum á smákafla. í háifleik var staðan 10:7 fyrir ÍR. ÍR tókst að ná 4 marka mun f 13:9 og 14:10 en nú var eins og los kæmi á leik þeirra og KR tókst að jafna 14:14, en vörnin virtist alveg gleyma öllum varúð- arreglum. Þegar rúmar 8 mínútyr voru eftir komst KR yfir 15:14 en Vilhjálmur jafnar. Hilmar skorar fyrir KR úr víti 16:15 en ÍR jafnar og kemst yfir með skoti Vilhjálms 17:16. Enn var sami piltur að verki í 18:16 og 19:16 skorar hann úr vítakasti og loks fallegt mark und- ir lokin 20:16. Dómur Óskars Einarssonar var nokkuð skrykkjóttur og ekki sam- hengi í gerðum hans öllum. LÍNURNAR RUSLANDI Nýjar merkingar á ýmsum völlum á gólfi Laugardalshallar- innar virðast gera þaö að verk- um að handknattleiksmenn rugl- ast mjög á merkingum. Gólfiö lítur nú einna helzt út eins og málverk eftir abstraktlistmálara, skreytt öllum regnbogans lit- um. Þarna eru merktir 12 badmin- tonvellir, með hvítum strikum, tveir litlir handknattleiksvellir þvert á þann stóra með rauðu, körfuknattleiksvellir með grænu o. s. frv. Allt þetta línufargan virðist lenda í einni bendu. Fyr- ir leikmenn er þetta óþægilegt, dómara nánast ófært og áhorf- endur óþolandi. Var um f-átt meira rætt í gærkvöldi en þetta nýja listaverk á vellinum og voru flestir óánægðir. Vilja sum- ir halda því fram að svona vill- andi merkingar sem þessar verði vart viðurkenndar í alþjóða- keppni. Þýzkt handknattleiks- lið hingað í heimsókn j Um 20. þessa mánaðar er væntanlegt hingað til Reykjavíkur eitt af beztu handknattleiksliðum Þjóðverja. Oppun Kredfeld. Það var í fyrradag, sem Þróttur fékk endanlegt svar frá liðinu um að það gæti tekið boði félagsfns um að koma hingað. w Ekki mun enn ákveðið móti hverjum liðið keppir, eða hve margir leikir þess verða hér, en geta má þess, að liðið var í úrslitum um V-Þýzkalandstitilinn í handknattleik utan húss og er mjög framarlega í deildakeppninni innan húss. Verður því gaman að fá loks að sjá þýzkt lið hér aftur í keppni. Slagsmálaieikur Vals og Þróttar Kannski var gauðrifin Valsskyrta næg lýsing á leik Vals og Þróttar í Reykjavíkurmótinu í handknatt- leik. Þessi leikur var ákaflega hraustlega leikinn, en þvf minni kænska og snilli f handknattleik Ircmst þama aö. Þetta gilti um báða aðila jafnt. Það var eins og hand- knattleikurinn gleymdist oft en alls konar hryllingsbrögð voru höfð frammi f staðinn. Valsmenn koma sannarlega á ó- vart f þessu móti, ekki fyrir getu sína, heldur öfugt, getuleysið. Lið- iö hefur marga snjalla leikmenn og virðist hafa flest til að bera til að geta orðið eitt bezta hand- knattleiksliðið, en þessir leikmenn falla bara ekki saman, en vonandi verður þaö aðeins stundarfyrir- brigði. Valsmenn virtust í gær þó sann- arlega ætla að velgja Þrótturum undir uggum. Þeir komust f 2:0 og 4:1 en Þrótti tókst að halda fast í við Val og í hálfleik var staöan aðeins 7:6 fyrir Val. I seinni hálfleik jafnaði Þróttur 7:7 og komst yfir í 8:7. Valur tók aft- ur forystuna í 9:8 og hélt henni til leiksloka þó ekki munaði miklu á liöunum lengst af, en undir lokin skoraði Hermann tvö góð mörk og Valur vand 14:10. Slæmur leikur og áflogin oft skæðari en jafnvel að Hálogalandi. Dómari var Reynir Ólafsson og dæmdi vel. ................•;............................................... " ................................................................................................................ Þetta lýsir leik Vals og Þróttar vel. 0!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.