Vísir - 09.11.1966, Blaðsíða 3

Vísir - 09.11.1966, Blaðsíða 3
V1 SIR . Miðvikudagur 9. nóvember 1966, 3 Nokkur skaftfellsk andlit Ur samkvæminu í fyrradag. Fremst á mynd inni yzt til vinstri er elzti félagi Skaftfellingafélagsins, Hildur Jóns- dóttir, húsfrr; 'a og ljósmóðir í Álftaveri um áraraðir. Það lifir lengi í gömlum glæð- um. Þó að margur sé mörland- inn búinn að tína tengslum við uppruna sinn og átthaga og kom inn á vergang efnishyggjunnar á mölinni, þá lifa þ óennþá aidn ir kvistir, rótfastir í fornri menningu átthaga sinna og bera svip hennar innan um svipleysi Utþynntra kynslóða — ópersónu legar ásjónur vélmenningarinn- ar. Það er þetta, sem maður finn- ur, þegar litiö er inn á Skaft- fellingamót, einkum „öldunga- kvöld“ Skaftfellingafélagsins, eins og Myndsjáin leyfir sér að kalla samkvæmi elztu félaga átthagafélagsins, 65 ára og eldri. Skaftafellshéruð hafa jafnan fóstrað glæsilegt fólk, lífsglatt fólk og lifsseigt. Glíman við ógn ir náttUrunnar og mikilleik hafa varðveitt frumkraftinn i þessu fólki, það hefur öðlazt reisn í baráttu sinni við stórfljót og eyðisanda. Þar lifa ennþá glæð- ur af þeirri eldskírn, sem for- feðurnir hlutu í ægilegustu ham- förum íslenzkrar náttUru, Móðu- liarðindunum. Þar eimir eftir af þeim eldmóði, sem reis hæst í ildprestinum forðum — kynngi kraftur Jóns Steingrímssonar endurspeglast í mörgum ættlið- um. Þaö er kannski ekki fjarri sanni að annar hver Reykvík- ingur sé í átthagafélagi, þau eru ■nisjafnlega sterk og bera mis- iafnlega mikið svipmót af átt- högunum, sem þau eru helguð. Það væri gaman að kanna hve- nær straumurinn var þyngstur Ur hinum einstöku héruðum til kaupstaðanna viö Fióann. Flóttinn aö austan hófst ekki að neinu marki fyrr en í Kötlu- gosinu 1918 og svo streymdi fólk þaöan á stríðsárunum eins og víðast af landinu — í Breta- vinnuna og ævintýrin hér „syðra“. Þessi flótti er aðeins þjóðlífs- breyting, f og með sprottin af framfarahug og trU á nýja tíma, en ekki uppgjöf bóndans nema þá undan ellinni. Unga fólkiö fór fyrst og síðan komu þeir eldri, stundum með trega aö vísu. Og í átthagafélögunum hverfa menn aftur til gamallar menn- ingar, frumbýlisáranna, ungl- ingsáranna, uppruna síns. Þegar Skaftfellingafélagið hélt sitt fyrsta „öldungakvöld" fyrir nokkrum árum, var skemmtiatriðum varla komið viö vegna þess að menn höfðu svo mikið að taia. Þar hittust gaml- ir bændur, nágrannar, áttræðir skólabræður af Hvanneyri — og svo er enn. Salur meistarasambandsins f Skipholti 70 var fullskipaður þessu glaöværa fólki í fyrra- kvöld. Þar sat að teiti brot af sveitum Skaftafellssýslna fyrir hálfri öld, lífsglatt fólk með hrikaleik náttUrunnar í svipn- um. Frá vinstri: Ormur Ólafsson, kunnur skaftfellskur kvæðamaður, hjónin Sigríður Jónsdóttir og Jón Ormsson, MarkUs Jónsson, þingvöröur og Hjörieifur bróðir hans. Frá hægri: Haukur Þorléifsson, bankabókari, Jón Pálsson, formaður í.'kaftfellingafélagsins, kona.hans Yfir veizluföngum: Guðríður MagnUsdóttir, Halla Eiríksdóttir og Jónfna MagnUsdóttir snýr baki í myndavélina, I.ára g • -a - ' " ' • G"*r,x--.ir Gisiadóttir. Guöríður Vigfúsdóttir kona próf. Björns Ó. Björnssonar. T

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.