Vísir - 09.11.1966, Blaðsíða 16

Vísir - 09.11.1966, Blaðsíða 16
VISIR Miðvikudagur 9. nóvember 1966 Benedikt G. Wnnge látinn Benedikt G. Waage, heiðurs- forseti í. S. L er látinn. Bene- dikt lézt í fyrrinótt að heimili sonar síns í svefni, en hann hafði áður kennt smávægilegs lasleika. Benedikt var 77 ára og lands kunnur maður fyrir löngu fyrir íþróttastarf sitt. Sat hann í stjóm ISÍ frá 1915 og var for- seti sambandsins frá 1926 til 1962. Benedikts G. Waage verður minnzt hér i blaðinu síðar. Birgir Isl. Gunnars- son fornt. Stúdentn- félagsins Aðalfundur Stúdentafélags Reykja- víkur var haldinn laugardaginn 5. nóvember s.l. Fundurinn var hald- inn í 1. kennslustofu Háskóla ís- lands. Fráfarandi formaður, Aðalsteinn Guðjohnsen, verkfræðingur, flutti skýrslu stjómar fyrir liðið starfs- ár og Friðjón Guðröðarson lögfræð- ingur, geröi grein fyrir reikningum félagsins. Úr stjóm félagsins gengu nú: Aðalsteinn G\iðjohnsen, verkfræð ingur, Ólafur Þorláksson, lögfræð- ingur og Rúnar Bjamason, verk- fræðingur. í stjóm félagsins voru kjömir: Formaður: Birgir Isl. Gunnars- son, lögfræðingur. Aðalstjóm: Ell- ert B. Schram, lögfræðingur, Frið- jón Guðröðarson, lögfræðingur, Jón Reynir Magnússon, verkfræðingur, Lúðvík Gizurarson, lögfræðingur. Varastjóm: Jón Ólafsson, lögfræð- ingur, Haukur Hauksson, blaðamað- ur, Þór Guðmundsson, viðskipta- fræðingur, Benedikt Sveinsson, lög fr., Gunnar Sólnes stud. jur. Fjármálaráðherra boðar forstöðu menn stofnana til ráðstefnu Þar verður rætt um leiðir til að bæta rikis- reksturirtn, lækka tilkostnað og auka afköstin Fjármálaráðherra hefur boðið forstöðumönnum ýmissa stærri stofnana og fyrirtækja, sem ríkið rekur eða á hlut að, til ráðstefnu 17.—19. nóv. næstkomandi. Verkefni ráðstefnunnar er aö íhuga þær aðgerðir sem reynd- ar hafa veriö á liðnum ámm til að bæta ríkisreksturinn, lækka til- kostnað eða auka afköst rekstr- arins. Er ráðstefnunni ætlað að meta árangur þessa starfs og erfiðleika, sem kunna að hafa gert vart við sig. Ráðstefnan verður haldin á vegum hinnar nýstofnuðu fjár- laga- og hagsýslustofnunar fjár- málaráðuneytisins og er ætlaö að verða þeirri stofnun til stuðn- ings í viðleitni hennar til að koma fram umbótum í opin- berum rekstri. Á ráðstefnunni verða flutt nokkur erindi, erlend og inn- lend, auk þess sem gert er ráð fyrir hópumræðum, þar sem ein- stök viðfangsefni verða tekin til íhugunar. Þátttaka í ráðstefnunni er tak mörkuö, svo að ýmsar mikilvæg ar greinir ríkisrekstrar eiga ekki aðild að henni. Ætlun fjárlaga- og hagsýslustofnunar er að hlut ast til um, að síðar verði haldn- ir sams konar umræðufundir um einstakar greinir ríkisrekstrar- ins og sérstök viðfangsefni þeirra, t. d. skólarekstur og op- inbert eftirlit og gæzlu. Árbók Ferðafél. 1933 Ijósprentuð Feröafélagið hefur látið ljós- prenta árbókina 1933, en hún hef- ur lengi verið mjög torfengin. Að- alefni bókarinnar er lýsing Pálma Hannessonar á Landmannaleiö og Eldgjá, snilldarlega skrifuö, sem vænta mátti. Bókinni fylgir lit- prentað kort, sem nær yfir Veiði- vötn, Landmannalaugar og Torfa- jökuí. Landshappdrættið Ákveðið hefur verið að fresta drætti til 22. þ. m. Landshappdrætti Sjálfstæðisflokksins. íslendingar í 12. sæti eft- ir 5 umferðir Fridagur á Olympiumótinu á morgun Eftir hrakförina í 4. umferðinni, gegn Bandaríkjamönnum tefldu ís- lendingar við gestgjafa Ólympíu- mótsins, Kúbumenn, sem til þessa hafa skipað neðsta sætið í A-riöl- Gat ekki gert grein fyrir fótbrotinu Á 11. tímanum í gærkveldi var tilkynnt til lögreglunnar að drukk- inn maður lægi á Togarabryggj- unni og væri hann fótbrotinn. — Gerði lögreglan ráðstafanir til að koma manninum á sjúkrahús, en jafnframt reyndi hún að fá upplýs- ingar frá manninum með hvaða hætti hann hefði fótbrotnað, en hann gat enga grein fyrir því gert. inum. Guðmundur Pálmason hefur sýnilega komið vel upplagður eftir hvíldina i 4. umferð, en hann vann García, Freysteinn tapaði hins veg- ar fyrir Santa Crus. Þeir Friðrik og Ingi eiga biðskákir við Ortega og Rodrigue. Viðureign annarra landa í 5. um- ferðinni fór svo: Rússar 3 Rúmenia 1 Búlgaría 3y2 — Noregur V2 Tékkóslóvakía 2 y2 — Ungverja- land iy2 Bandaríkin V/2 — Þýzkal. y2 (2 bið) Danmörk 1 — Spánn 0 (2 bið) Biðskákir úr þriðju umferð fóru svo aö Sovétmenn unnu allar skák- imar gegn Dönum, Júgóslavar höfðu 2 y2 vinning móti V/2 Rúm- ena. Ungverjaland fékk 2 y2 vinn- ing á móti V/2 vinning Búlgaríu. Á morgun verður frídagur á mót- inu. Staðan eftir þessar 5 umferöir er þá þessi: 1. Rússland 17 vinninga 2. Búlgaría 13 vinningá 3-4 Argentína og Bandaríkin 12*4 vinning og 2 bið. hvor. 5. Júgóslavía 12 vinninga (2 bið) 6. Tékkóslóvakía lV/2 7. Ungverjaland 11 vinninga Framh. á bls. 6. Hafizt er handa við að rifa kofa þá, sem standa við Tryggvagötu og Naust, en þama eiga að risa bækistöðvar toll- yfirvalda borgarinnar með tið og tíma, enda mun það ekki of- sögum sagt að fá ríkisfyrirtæki búa við jafnslæm skilyrði til starfs og einniitt tollyfirvöldin. Mun hið nýja hús eflaust skapa þau skilyrði, sem tollgæzlan þarf að búa við svo vel sé. Myndin er tekin í morgun, þar sem menn eru að starfa viö niðurrif á gömlum geymsluskúr- um. \ , •••>•■ wwmj; vss y,.-. Vilja fleiri ísL farþega til Japan „Við höfum notið nokkurra til skrafs og ráðagerða við ferða viðskipta við íslendinga, en þau málafólk‘‘, sagði Yasunobo Mat- viljum við enn auka og í því umoto, deildarstjóri Japan Air- skyni höfum viö komiö hingað lines í Skandinavíu í gærdag á fundi sínum með blaðamönn- um og ferðaskrifstofumönnum. Japan Airlines er um þessar mundir að koma inn á Atlanz- hafsflugið og með þ,ví nær flug- net félagsins umhverfis hnött- inn. Nokkrir íslendingar fara ár- lega til Japan og þá næstum alltaf flugleiðis með SAS eða Japan Airlines. Hefur þetta auk izt að sögn töluvert mikið með stórauknum viðskiptum við Jap ani. Verð farmiða fram og til baka til Japan er eitthvað f 15. hundrað bandarískra dala, eða um 60 þús. krónur. DC-8 þotur eru á förum milli Norðurlanda og Japan. t t i t t t i t i i i i i t t i t t t t t i t t t i t t t t t t i t t t t i t t t t t t t t t t t t t 4 1

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.